Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 38
38 Umræðan BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
HÉR Á EFTIR fylgir listi yfir ým-
islegt sem gott er að hafa í huga þeg-
ar þú hættir að reykja.
Útvegaðu þér staðgengla fyrir
sígarettuna. Sá sem reykir einn
pakka á dag ber höndina u.þ.b. 1.000
sinnum á viku upp að munninum.
Þetta er orðinn sterkur vani sem
skilur oft eftir sig tómleikakennd
sem heilinn túlkar sem tóbaks-
löngun. Hér á eftir fylgir listi yfir
ýmislegt sem gott er að hafa í huga
þegar þú hættir að reykja. Láttu
annars hugmyndaflugið ráða og leit-
aðu leiða sem passar þér best:
* Sankaðu að þér lesefni um skað-
semi reykinga og haltu áfram að
leita að nýju efni.
* Í apótekum og víðar fæst mentól
munnúði í litlum aflöngum brúsum
sem gott er að fitla við og úða annað
slagið upp í sig til að fá ferskt bragð.
* Mentól nefstifti geta líka hjálpað
á svipaðan hátt.
* Í ýmsum heilsubúðum er hægt
að kaupa lakkrísrót sem mörgum
finnst gott að naga eftir að þeir
hætta að reykja. Sagaðu hana gjarn-
an niður í bita á stærð við sígarettur
og hafðu bitana í öskju þar sem þú
varst vön/vanur að hafa tóbakið áð-
ur.
* Drekktu mikið af vatni og hrein-
um ávaxta- og grænmetissafa.
* Hvernig væri að safna stubb-
unum og ösku í sultukrukku? Helltu
gjarna smávatni yfir og settu lokið á.
Opnaðu ef þú færð löngunarkveisur
og lyktaðu upp úr krukkunni.
* Hafðu gjarnan tannbursta og
tannkrem við höndina og burstaðu
tennurnar nokkrum sinnum á dag.
* Reyksíminn – 800 6030. Hringdu
gjarnan í Reyksímann strax í dag og
skráðu þig hjá þeim. Þú getur hringt
eins oft og þú vilt og beðið um að
hringt verði í þig og það kostar ekki
neitt.
ÁSGEIR R. HELGASON,
dósent í sálfræði við Háskólann í
Reykjavík.
Viltu hætta að reykja?
Frá Ásgeiri R. Helgasyni
NÚ VIRÐIST fyrirsjáanlegt að
kreppan muni lenda á unglingum
þessa lands öðrum fremur. Er það
vegna þess að nið-
urskurður hefur
orðið í fjár-
framlögum til
framhaldsmennt-
unar eftir skyldu-
námsstig. Því
hlýtur nú að fjölga
þeim nemendum
sem komast ekki í
neitt nám eftir
grunnskóla, og
ekki í vinnu heldur. Þeim mun því
fjölga sem eru á aldrinum 15 til 18
ára, sem þurfa að læra að ala sig upp
sjálfir, án aðstoðar skólakerfis eða
vinnustaðar. Gallinn er, að á þessum
aldri hefur fólkið ekki þroska til að
vinna skipulega að langtímamark-
miðum á eigin spýtur. Jafnvel vænstu
unglingar geta afvegaleiðst á þessum
aldri ef slakað er á aðhaldi frá skóla,
foreldrum eða vinnustað. Því má
vænta að æskulýðsráðum, fé-
lagsheimilum unglinga og Hinu hús-
inu og Skólabæ, og upptökuheimilum,
muni lítt ganga að stoppa upp í það
stóra gat sem margir unglingar munu
nú lenda í um árabil; þrátt fyrir góðan
vilja til að miðla til þeirra tóm-
stundaiðkunum og metnaði til að láta
ekki fallast hendur.
Verst mun þó fara fyrir þeim sem
komu frá heimilum þar sem einhverju
var áfátt, sem bjuggu ekki að tveimur
menntuðum og starfandi foreldrum
með sæmileg fjárráð og heilsu-
samlegt líferni. Þeir gætu auðveld-
lega lent í spillingargildrum sem eng-
inn hefði valið fyrirfram. Og þá
fjölgar þeim sem afvegaleiðast fyrir
lífstíð, oftlega með meiri fjárhags-
legum kostnaði fyrir þjóðfélagið en
sem svarar einu starfsmannastöð-
ugildi á hvern skjólstæðing.
Við þessar aðstæður neyðumst við
til að horfast í augu við að þátttakan í
framhaldsmenntun er miklu minni að
hlutfalli en í löndunum sem við berum
okkur helst saman við. Það var auð-
velt að horfa fram hjá þessu í góð-
ærinu þegar okkar hámenntuðu og
hágáfuðu útrásarvíkingar virtust
vera dæmigerðir fyrir meðal-
Íslendinginn. En nú virðist spurn-
ingin blasa við: Viljum við horfa til
framtíðar, þar sem við reynum að
tryggja að allir vinnufærir Íslend-
ingar geti notið krafta sinna í einum
þjóðarhópi, eða eigum við að beina
augunum aftur til fortíðar, þar sem
sjálfsagt þótti að þeir verst settu
mættu afgangi? Því ekki skortir þann
fortíðarveruleika til viðmiðunar held-
ur.
Við verðum að horfast í augu við
þann veruleika, að annaðhvort séu Ís-
lendingar fremur lítið menntuð þjóð
að meðaltali, eða þá að Íslendingar
séu tvær þjóðir, þar sem sú minni er
vel menntuð, en þorri fólks er lítið
menntaður; þrátt fyrir allar hégiljur
um hið gagnstæða. Þrátt fyrir bók-
elsku, vinnusemi, ættarsamfélag og
mikil útgjöld til menntamála.
Ef við horfumst í augu við þetta,
blasa tveir kostir einkum við: Að hinir
illa settu flýi land sem sitt helsta úr-
ræði, eða: Að við sættum okkur við að
vera bara eins og við erum, um fyr-
irsjáanlega framtíð: Hégómleg ætt-
arþjóð á eyju í Ballarhafi, sem læst
ekki frekar en verkamaðurinn vera
mikið meira en heiðarleg fjölskylda;
sem horfir til fjarlægrar framtíðar í
von um að minnka lífskjarabilið við
nágrannaþjóðirnar, en er um leið
viðbúin því að sætta sig við að svo
muni kannski aldrei verða; því mestu
skiptir jú þegar öllu er á botninn
hvolft að vera bara hraustur og lífs-
glaður, og að vinna vel fyrir sitt
grenndarsamfélag! (Og kannski einn-
ig að reyna að efla með sér vonina um
að þetta góða jarðarlíf muni í raun og
veru aldrei taka enda).
Og að sjálfsögðu að reyna að gera
það sem við getum fyrir unglingana
okkar í leiðinni, til að sem flestir
þeirra geti fundið sér eitthvað gef-
andi til að vera við uppi á okkar bless-
aða skeri.
TRYGGVI V. LÍNDAL,
þjóðfélagsfræðingur og skáld.
Kreppan og
unglingarnir
Frá Tryggva V. Líndal
Tryggvi V. Líndal
V i n n i n g a s k r á
35. útdráttur 30. desember 2009
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 8 1 8 2
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
5 7 1 0 6 9 6 8 4 4 3 2 1 6 9 8 7 4
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3723 10868 33831 56291 62630 64052
4731 22806 43871 62428 62662 66773
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
1 2 7 0 8 1 8 8 1 7 1 6 0 3 4 3 3 1 4 5 7 7 6 5 6 5 6 0 6 6 1 4 8 7 5 4 2 1
1 6 5 6 9 4 1 3 1 8 6 8 7 3 4 8 4 8 4 6 2 5 8 5 7 5 8 6 6 6 7 4 9 7 6 5 1 5
1 6 8 4 1 2 0 8 5 1 8 8 5 0 3 5 7 4 4 4 7 0 4 4 5 8 0 0 7 6 7 2 7 9 7 6 5 3 1
2 1 6 4 1 3 7 0 6 1 9 5 8 4 3 7 3 9 2 4 7 0 7 6 5 9 1 9 1 6 7 7 0 7 7 6 6 0 5
2 6 6 8 1 5 3 9 9 2 1 0 4 4 3 8 6 3 7 4 7 3 4 6 6 0 2 1 6 6 8 1 0 0 7 6 7 0 0
2 9 7 9 1 5 4 8 9 2 2 5 8 7 4 0 1 9 3 4 7 7 6 3 6 2 0 1 9 6 9 2 8 1 7 7 1 5 0
3 1 4 1 1 5 8 4 9 2 5 6 0 4 4 0 8 7 6 4 8 8 9 0 6 2 4 6 4 7 0 0 2 2 7 7 2 2 8
4 3 3 7 1 5 8 9 9 2 7 1 8 4 4 1 4 1 7 4 9 4 8 4 6 2 8 9 6 7 1 9 1 9 7 8 7 0 7
5 2 2 2 1 6 2 7 3 2 8 0 2 5 4 1 6 4 7 4 9 4 8 8 6 3 2 6 7 7 2 2 5 2 7 8 7 8 5
7 1 9 6 1 6 4 0 6 2 9 2 0 9 4 2 2 9 4 5 0 6 8 5 6 3 6 9 3 7 3 8 2 2
7 4 2 5 1 6 8 3 2 3 1 2 3 2 4 2 9 2 8 5 3 0 7 4 6 4 6 4 5 7 3 8 9 2
7 9 1 3 1 7 0 6 5 3 1 7 6 5 4 3 7 3 2 5 3 1 7 9 6 5 7 5 3 7 4 0 5 6
8 1 0 4 1 7 1 1 5 3 3 4 5 7 4 4 3 3 3 5 4 5 1 8 6 6 0 8 6 7 4 6 9 1
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
1 8 6 1 0 4 4 9 1 9 3 5 1 3 0 7 8 7 4 2 8 6 8 5 2 1 1 9 6 1 7 0 2 7 1 5 9 0
8 5 9 1 0 4 5 0 1 9 7 1 3 3 1 2 2 8 4 2 8 9 8 5 2 4 1 8 6 2 1 3 2 7 2 3 7 8
9 0 4 1 0 8 3 7 1 9 7 8 0 3 1 4 0 4 4 3 1 0 8 5 2 7 4 0 6 2 1 6 7 7 2 4 9 2
9 9 7 1 1 1 0 3 1 9 8 8 0 3 1 4 5 2 4 3 1 9 2 5 2 7 6 0 6 2 5 0 1 7 2 6 4 7
1 4 7 5 1 1 9 4 0 2 0 4 6 7 3 1 6 3 9 4 3 5 2 7 5 3 0 8 8 6 2 5 8 1 7 2 6 5 5
2 3 8 7 1 2 2 5 4 2 1 2 9 7 3 2 1 3 5 4 3 8 0 5 5 3 3 1 1 6 2 7 5 2 7 3 4 0 7
2 5 2 8 1 3 0 4 5 2 1 6 0 8 3 2 1 4 5 4 3 9 9 6 5 3 3 6 6 6 2 7 6 9 7 3 9 1 9
2 7 3 4 1 3 1 8 7 2 1 6 7 7 3 2 2 5 4 4 4 0 7 5 5 3 3 7 4 6 3 6 4 8 7 3 9 3 2
3 2 7 0 1 3 2 1 4 2 2 3 6 5 3 2 3 4 3 4 4 2 0 8 5 3 4 4 4 6 3 6 6 0 7 4 6 1 8
3 5 5 8 1 3 2 2 3 2 3 7 2 5 3 2 9 4 8 4 4 9 3 8 5 3 7 5 3 6 3 8 1 0 7 4 6 1 9
4 0 3 6 1 3 3 2 4 2 3 8 6 2 3 3 2 6 0 4 5 0 6 6 5 3 8 6 3 6 3 9 7 5 7 4 6 3 2
4 2 5 4 1 3 8 9 5 2 4 0 3 7 3 3 3 6 6 4 5 3 9 8 5 4 5 0 2 6 3 9 9 0 7 4 9 4 3
4 6 6 0 1 3 9 6 9 2 4 0 3 8 3 3 7 3 2 4 5 4 3 8 5 4 7 2 6 6 3 9 9 7 7 5 1 0 8
4 6 8 0 1 4 2 6 6 2 4 2 5 3 3 4 1 3 4 4 5 6 6 5 5 4 8 1 6 6 4 3 2 8 7 5 3 0 4
5 5 8 2 1 5 0 4 0 2 4 2 7 7 3 5 0 6 2 4 5 7 3 9 5 5 1 3 0 6 4 5 3 1 7 5 6 5 8
5 6 3 7 1 5 2 1 4 2 5 4 7 6 3 5 0 8 5 4 6 2 3 9 5 5 2 9 1 6 5 8 4 9 7 6 2 0 4
7 2 9 8 1 5 9 9 2 2 6 3 7 7 3 5 7 9 5 4 6 4 6 9 5 5 5 1 7 6 5 9 5 2 7 6 4 8 7
7 3 2 2 1 6 7 0 4 2 6 4 1 9 3 6 3 3 5 4 6 5 3 1 5 5 5 2 4 6 6 3 1 7 7 6 6 7 8
7 3 8 8 1 6 7 3 9 2 6 7 1 6 3 7 6 5 0 4 6 6 7 5 5 6 7 5 3 6 7 1 9 4 7 7 1 2 5
7 5 4 4 1 6 9 5 9 2 6 7 8 7 3 8 2 6 7 4 7 2 6 4 5 6 7 6 3 6 7 2 3 5 7 7 6 6 5
7 6 8 9 1 7 1 7 3 2 7 2 2 8 3 8 4 9 7 4 7 6 8 8 5 6 7 9 5 6 7 2 5 0 7 8 4 1 3
7 7 5 0 1 7 1 9 1 2 7 5 5 1 3 8 5 9 6 4 7 7 4 8 5 7 5 4 9 6 7 4 0 3 7 8 6 2 4
7 9 0 0 1 7 3 0 6 2 7 6 1 1 3 8 7 6 6 4 7 9 2 1 5 7 7 4 9 6 7 4 2 5 7 9 2 9 0
8 0 6 8 1 7 4 0 7 2 7 6 2 2 3 9 9 8 1 4 8 6 2 0 5 8 0 8 8 6 7 5 8 3 7 9 3 9 2
8 3 8 5 1 8 3 6 1 2 7 7 2 4 4 0 2 3 5 4 8 7 8 3 5 8 4 9 9 6 7 9 4 0 7 9 7 5 8
8 9 8 3 1 8 3 9 5 2 7 8 9 1 4 1 2 0 7 4 9 6 9 3 5 8 7 7 0 6 9 2 6 8 7 9 7 6 1
9 3 0 4 1 8 4 1 3 2 8 2 1 9 4 1 3 2 8 4 9 7 1 5 5 8 8 0 5 6 9 7 8 2
9 4 5 1 1 8 4 2 4 2 8 9 4 6 4 1 6 1 7 5 0 6 1 3 5 9 0 6 5 7 0 6 6 1
9 4 6 5 1 8 9 2 2 2 9 1 9 5 4 1 9 0 6 5 0 6 4 2 5 9 6 2 3 7 0 7 1 6
9 6 3 1 1 8 9 5 3 2 9 3 3 3 4 2 6 0 3 5 0 8 2 9 6 0 0 9 7 7 0 7 8 6
9 8 0 1 1 9 1 5 3 3 0 0 9 1 4 2 6 6 4 5 1 0 9 1 6 0 6 9 8 7 1 0 7 2
1 0 1 0 8 1 9 2 0 2 3 0 4 1 6 4 2 6 8 9 5 1 8 5 3 6 1 0 4 6 7 1 1 3 9
Næstu útdrættir fara fram 7. jan, 14. jan, 21. jan & 28. jan 2010
Heimasíða á Interneti: www.das.
HÆGBRENN-
ANDI tundurþráð-
urinn hlykkjaðist
hvissandi um Banda-
ríkin í leit sinni að
fjármálastofunum
með nægu tundri til
að gera gaman.
Þessi hægbrennandi
þráður náði til Bret-
lands og gerði þar
nokkrar góðar
stjörnur. Á meg-
inlandi Evrópu var betri tundur-
þráður, hraðbrennandi og nóg af
púðri sem olli keðjusprengingum.
Í fjármálastofnunum um allan
hinn vestræna heim. Á Íslandi var
og nóg af sprengiefni okkur sjálf-
um til gamans, en á Bretlands-
eyjum, Hollandi og
víðar voru nokkrir ís-
lenskir pörupiltar að
föndra við sprengju-
gerð með leyfi þar-
lendra yfirvalda og
studdir regluverki
Evrópusambandsins.
Við hér uppi á Íslandi,
þ.e.a.s. þau okkar sem
erum einföld og stönd-
um á fótunum, borgum
skatta og vinnum með
höndunum, vissum
næsta lítið um það sem
þeir voru að bauka þarna suð-
urfrá, enda kom það okkur ekkert
við, þeir áttu þessi fyrirtæki og
voru að sínu bauki sér til handa
en ekki okkur. Töldu og margir
hérlendis að best væru þeir komn-
ir með sín klækjabox sem lengst
frá Íslandi. En þar bilaði vísdóm-
urinn, því gamlir bændur vita að
ódæla vandræðahunda á að hafa í
keðju svo þeir komist ekki í féð,
eða slá þá af ella.
Gjörkostir
Af sinni alkunnu háttvísi veittu
Bretar okkur lán, óumbeðið, og
sömdu skilmála þess fyrir okkur.
Tilgangur þessara sérstöku al-
mennilegheita er að lagfæra kerf-
isbilun og Darling og Brown veitt
Evróheimild til að sparka í tækið
ásamt þeim öðrum sem tekið hafa
Evrópestina. Áður á tímum var
svona háttur nefndur einelti. En
lán þetta var til greiðslu á tjóni
sem pörupiltarnir íslensku eiga að
hafa valdið þeim Bretum með
sinni sprengjusmíð. Ekkert hefur
frést af að Bretar hafi veitt
Bandaríkjamönnum svona sér-
þjónustu vegna þess tjóns sem af
þeirra drengjum leiddi. En það er
nú önnur saga.
Varnarkostir
Við hér uppi á Íslandi erum að
því leyti verr stödd en aldareyndir
grannar okkar hér suður af að
vera ekki langreynd í neinu öðru
en ósjálfstæði og kúgun. Þeim er
því nokkur vorkunn sem ekki urðu
forvitrir fyrr en eftir á. Það villti
og sýn að eftir Steingríms-
tímabilið fyrra tóku við betri ár en
íslensk þjóð hafði lifað síðan land
byggðist. Enda er það innbyggt í
allar heilbrigðar skepnur, að
hrista af sér doða þrenginga og
lifa á meðan gefst. Varnir eru
reyndar bannaðar á Íslandi og
upplýsingar um krosstengdar
sprengjusmíðar voru læstar inni í
bönkum sem við áttum ekkert í og
kom þar með ekkert við. Kostir til
varna voru því frekar fáir, og linir
þeir er voru. Fjölmiðlar, að út-
varpi þjóðarinnar meðtöldu, voru í
föðurlegum höndum Bessa-
staðavaldsins.
Alsæla
Allt er þetta gott og blessað, því
nú gengur yfir Steingríms-
tímabilið hið síðara og eitt af
þremur fjöreggjum þjóðarinnar á
leið í örugga vörslu hjá Bretum og
Hollendingum. Evrópusambandið
tekur svo til verndar egg Jóhönnu,
og þar með verða þau kæst í
öruggri geymslu, líkt og ostar og
vín Evróaðalsins. Pottaglamrarar
og grjótkastarar geta svo spælt
það síðasta á lögreglunni okkar og
haldið veislu til heiðurs Bretum og
Evrópusambandinu, og svo sjálf-
um sér sem og forsauði sínum,
Steingrími hinum síðari.
Í hnotskurn
Eftir Hrólf
Hraundal » Á Íslandi var og nóg
af sprengiefni okkur
sjálfum til gamans, en á
Bretlandseyjum, Hol-
landi og víðar voru
nokkrir íslenskir pöru-
piltar að föndra við
sprengjugerð með leyfi
þarlendra yfirvalda ....
Hrólfur Hraundal
Höfundur rekur vélsmiðju
á landsbyggðinni.
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar
umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að
hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og
ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðs-
ins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra
stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna við-
burði, svo sem fundi og ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Formið
er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is.
Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í
tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að
nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er
nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið
virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur
þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efn-
isþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar.
Móttaka aðsendra greina