Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 51

Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 51
Krossgáta 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 LÓÐRÉTT 1. Gott heilbrigði sem ætti að gera hrossa- lækna óþarfa. (11) 2. Talið um bilaðan og viðbragðsflýtinn hjá honum. (9) 4. Rúnar og Snati flækjast um til að finna áletrunina. (10) 6. Flækja eins og 5832490176. (10) 8. Andrea flækist fyrir framan lánastofnun út af hormóni. (9) 10. Einhvern veginn gusa vel yfir illfæran. (7) 11. Æpti bókstaf um leið og hann veiddi. (7) 13. Bor-varningur í raunveruleika. (6) 14. Portret sem við höfum öll í huganum. (10) 16. Æðsti draugurinn fær fimmhundruð og einn fyrir það sem má búast við. (11) 17. Fjöldi eggjar menn af þjóðflokki (8) 18. Vill ná utan um Erp og tening. (7) 19. Snauðar biðja um. (5) 22. Arnar fær einhvern veginn kork af sáðlönd- um. (9) 25. Ennþá bölið skapast af tímaritunum. (6) 27. Hönk af loku. (5) 28. Sponsa stelpu. (5) LÁRÉTTT 3. Þinn er í því að skapa þann sem er bæði þrí- skiptur og einn. (7) 5. Veiðarfæri sem ekki eru notuð á daginn. (5) 6. Organisti á skartgrip. (5) 7. Ull á fiski. (5) 9. Stök verndar kónga eða álíka. (9) 12. Tillaga fóta nær að leiðbeina. (9) 15. Næ að gera Sigfinn Levy að félaga. (11) 20. Vaxtakjör í Landsbankanum gefa okkur drykk. (6) 21. Rekur úr sér tunguna fyrir dáinn út af fatn- aði. (9) 23. Stíflið hvílu með ábreiðu (9) 24. Sænskar söngkonur gerast forstöðumenn trúarsamfélags. (9) 26. Kapphlaup á vegum íþróttafélags sýnir skyndilegt skrið. (9) 29. Slátra pílu í logni. (7) 30. Auðn sem virkar sem TNT á Íslandi. (13) 31. Hausta að kveldi við grip. (7) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn með nafni og heim- ilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Kross- gáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykja- vík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 31. desember rennur út föstudaginn 8. janúar. Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 10. janúar. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi kross- gátunnar 24. desember sl. er Kristín Axelsdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Oliver Twist eftir Charles Dickens. JPV gefur út. Næsta sunnudagskrossgáta verður í blaðinu hinn 10. janúar. Krossgátuverðlaun Nafn Heimilsfang Póstfang  MARIE Keiding jarðeðlisfræð- ingur varði doktorsritgerð sína Stress and strain of a plate bound- ary – the Reykjanes Peninsula, SW Iceland (Spenna og aflögun á fleka- skilum Reykjanesskagans) frá jarð- vísindadeild verkfræði- og nátt- úruvísindasviðs Háskóla Íslands 29. október síðastliðinn. Leiðbeinendur í verkefninu voru dr. Þóra Árnadóttir við Norræna eldfjallasetrið, Jarðvísindastofnun Háskólans, og dr. Björn Lund við jarðeðlisfræðideild Uppsalaháskóla. Doktorsritgerðin fjallar um rann- sóknir á jarðskorpuhreyfingum og jarðskjálftum á Reykjanesskaga. Flekaskil Norð- ur-Ameríku- og Evrasíu-flekanna liggja eftir skag- anum endilöng- um, frá Reykja- neshrygg í vestri að Suðurlands- brotabeltinu í austri. Rek- stefnan er ekki hornrétt á fleka- skilin sem veldur mikilli jarð- skjálfta- og eldvirkni. GPS-land- mælingar og radarmælingar með gervitunglum voru notaðar til að meta jarðskorpuhreyfingar og af- lögun á tímabilinu 1993-2009. Stað- setningar og brotlausnir smá- skjálfta, ákvarðaðar með jarð- skjálftaneti Veðurstofu Íslands, voru einnig notaðar til að reikna spennuástand jarðskorpunnar. Rannsóknirnar beinast að sam- bandinu á milli jarðskorpuhreyfinga sem mælast á yfirborði og jarð- skjálftavirkni í tíma og rúmi. Rannsóknirnar voru styrktar af Háskólasjóði Eimskipafélags Ís- lands, styrkþegaverkefni Norræna eldfjallasetursins, Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og Rannsóknasjóði Vísinda- og tækniráðs. Jarðskjálfta- gögn frá Veðurstofu Íslands voru notuð í verkefninu. Marie Keiding fæddist í Kaup- mannahöfn 9. febrúar 1978. Hún lauk meistaraprófi í jarðfræði frá Kaupmannahafnarháskóla vorið 2005 og um haustið kom hún til Ís- lands sem styrkþegi við Norræna eldfjallasetrið. Hún hóf nám í jarð- eðlisfræði við Háskóla Íslands haustið 2006. Nánari upplýsingar um verkefnið og kandídatinn má finna á heimasíðu Marie Keiding, http://www3.hi.is/~marie. Doktor í jarðvísindum Marie Keiding Stórfréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.