Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1961, Blaðsíða 14

Ísfirðingur - 15.12.1961, Blaðsíða 14
14 ÍSFIRÐINGUR GUÐMUNDUR INGI KRISTJÁNSSON: \ j Hannes Hafstein | sýslumaður Manst þú, elztur Isfirðinga, aldamótin hér um bil? Sástu Hannes Hafstein þinga, heyja dóm og lagaskil, gáfna og mælsku taka til? Sást þú annan sýslumann, sem var glæsilegri en hann? Hér var oft á héraðsfundum harkalega málum skipt. En á lofti löngum stundum léku snilld og andagift, máli og hugsun hátt var lyft. Hversu stórt sem höggið var, Hafsteins máí af öðru bar. Þá var ungum létt að lifa, ljós og draumar yfir jörð, gott að vinna, gott að skrifa, gæfan lék um ísafjörð, skein af lífi og ljóðagjörð. Yfir setri sýslumanns svifu vonir þessa lands. Hans þótt opinn yrði vegur upp í hástól ráðherrans, það var aðeins eðlilegur óskabyr í seglum hans, glæsilegs og mikils manns. í Það var létt að hyggja hann heillar þjóðar fyrirmann. Hlustir þú á íslands óma yfir frjálsri, vaskri þjóð, enn 1 dag þú heyrir hljóma Hafsteins aldamótaljóð. Hvatning þeirra er holl og góð. Enn er boðorð íslenzks manns aldamótakvæðið hans. Á vetívangi blaðaima Framald af 10. síðu. morguninn hve mjög umræður væru takmarkaðar virtist Einari Olgeirssyni verða all mikið um. Hann kvaddi sér hljóðs til lað mót- mæla því gerræði að alþingis- menn væru sviptir málfrelsi eins og hann orðaði það. Tveir ráð- herranna, þeir Stefán Jóhann og Emil Jónsson gripu framm í fyrir honum. Meðai annars sagði Stefán Jóhann: — Þú ert alþingismaður Rússa. Einar Olgeirsson svaraði sam- stundis: — Ég er íslenzkur alþingismað- ur. Sjö þúsund Reykvíkingar kusu mig á þing, en þú ert andskotans uppbótarþingmaður, sem svindlað- ir þig inn á þing á fáeinum at- kvæðum norður í Eyjafirði. V'arð úr þessu hressilegt samtal milli þeirra Einars og Stefáns Jóhanns en Emil bað forseta að láta ekki eyða tímanum á þennan hátt. Forseti stóð og sló af og til í bjöllu sína og þegar hann kom orði að bað hann Einar Olgeirsson að vera stuttorðan. Einar kvaðst skyldi vera það ef hann hefði að- eins frið til að tala, enda lauk hann máli sínu skjótt eftir að hljóð fékkst. Þetta er rifjað upp hér til að minna á það, að margur var í uppnámi þennan dag. Töluverð blaðaskrif urðu að vonum um atburðina 30. marz. Hér verður það ekki rakið en vitn- að í baðstofuhjal Tímans tvívegis til að gefa hugmynd um vissa þætti þeirra. þar segir svo 2. apríl. ,,Það hafa orðið blaðaskrif og umræður á Alþingi út af því, að unglingsstúlka reyndi að slá til forsætisráðherra, þegar hann gekk út úr Alþingishúsinu. Sumir vilja gera telpuna iað einhvers konar þjóðhetju og virða það Stefáni Jóhanni til hnjóðs, að kona hafi barið hann. Þó mun þetta land seint verða frelsað með löðrungum og flestir munum við geta orðið fyrir því, að kvenfólk geti slegið til okkar að óvörum og er hvorki ástæða til að miklast af því eða skammast sín fyrir það. Það haggar ekki verðleikum nokkurs manns, þó að til hans sé slegið í æsingu. Og um sök stúlkunnar er það að segja, að þó að hver eigi að ábyrgjast sjálfan sig, er sök æstra unglinga lítil hjá því, sem segja má um fullorðna og reynda menn, sem vikum saman standa fyrir æsingum. Brynjólfur Bjarnason skaut því inn í ræðu Áka Jakobssonar, að stúlkan sem sló til ráðherrans, hefði átt að fá verðlaun fyrir það. Þá vatt Ólafur Thórs sér við á stólnum, þar sem hann sat fyrir framan Brynjólf og sagði: — Engin verðlaun fékk Her- mann, þegar hann gaf þér á kjaftinn. Margir munu m'innast þess, að Brynjólfur Bjamason bar sig einu sinni mjög upp undan því, að Hermann Jónasson hefði skellt flötum lófa á kinn sér, þar sem þeir ræddust við í hliðiarherbergi einu í þinghúsinu." Blöðin áttu sitthvað ósagt um þessi mál. Og 6. apríl segir svo í baðstofuhjali Tímans: „Það hafa orðið svo mikil blaða- skrif um telpuna, sem ætlaði að slá til ráðherrans, að mér finnst afsakanlegt að bæta þar einu orði við. Fyrir rétti segir stúlkan að hún hafi naumast vitað hvað fram fór, en sér hafi bara fundizt að hún yrði eitthvað að gera. Mér hefði fundizt að þessi unga stúlka ætti rétt á því að fá að vera í friði með tilfinningar sínar eftir að þetta var skeð. En þá koma blaðamennirnir. Einn heimtar, að íslenzkar konur rísi nú upp og mótmæli fyrir hönd kynsystra sinma því, sem skeð hefur. Annar lýsir þvi með fjálglegum orðum og mikilli rómantík að tilræði stúlkunnar hafi orðið sér mikill andlegur léttir og gefið sér þrek til að lifa og trúa á íslenzku þjóð- ina, ef ég hef skilið hann rétt. Nú er það hversdagslegur hlut- ur að skólatelpur komist í geðs- hræringu og hendir það raunar fleira fólk. Ég sé ekki að það sé neimr höfuðglæpur, svo að þurfi alþjóðarmótmæli, og ég finn ekki heldur 'neina þjóðarfrelsun í því. Hins vegar finnst mér að hver á- byrgur og heiðarlegur maður ætti að forðast að hafa tilfinningar æstra unglinga að leiksoppi, bæði pólitískt og öðruvísi.“ Hér hafa þá tildrög og viðbrögð verið rifjuð upp. Vera má, að í þessum tilvitnunum leynist nokk- ur vilji í þá átt að vekja athygli á yfirsjónum þeirra blaða, sem vikið er að. Slíkt er vitanlega ekki nerna mannlegt í baráttunni. Hitt skipt- ir öllu máli, að í þessum tilvitn- uðu ummælum er rétt sagt frá hvernig tekið var á málunum. Samvizkuspurning til lesenda. ÞAÐ ER GERT með vilja að velja þessi gömlu dæmi heldur en önnur nýleg, sem. þó myndi vera hægt að finna. Svo er það að lokum spurning, sem lesendur eru beðnir að svara, þar nægir alveg að hver óg einn svari sér sjálfur. En spumingin er þessi: Til hvers ætlast þú af blöðunum? Vilt þú að blöðin svíf- ist einskis í baráttu sinni eða ætl- astu til þess að þau fylgi ákveðnu

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.