SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 2
2 27. júní 2010 13 Höfðingjar heim að sækja Ungir hljóðfæraleikarar frá Íslandi og Póllandi sameinuðu krafta sína hér á landi með góðum árangri á dögunum. 20 Semur fyrir stjörnurnar Helgi Már Hübner, eða Hitesh Ceon, flutti ungur til Noregs, þar sem hann hefur starfað við tónlist um langt árabil. 32 Karlmenn verða alltaf börn mæðra sinna Jakobína B. Jónasdóttir, 83 ára, lítur ekki á sig sem hetju enda þótt hún hafi komið átta börnum til manns. 38 Svarta perlan Josephine Baker var skemmtikraftur af guðs náð en litarhátturinn varð til þess að hún sló ekki í gegn fyrr en eftir dauða sinn. 42 Stjörnur hrapa Hvað er eiginlega á seyði hjá gömlu eðalleik- urunum Dustin Hoffman, Al Pacino og Ro- bert De Niro? Lesbók 48 Voðaverk á íslensku sögusviði Breski rithöfundurinn Michael Ridpath kynnir til sögunnar harðsoðna stórborgarlöggu af íslenskum uppruna. 52 Morð í skuggahverfi borgar Í reyfaranum The City & The City segir frá morði í skuggahverfi borgar. 54 Að aflokinni Grímu Hugleiðingar Sveins Einarssonar. Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson af Katrínu Jónsdóttur. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. 34 26 Augnablikið Þ að er hrópað á blaðamann þegar hann ætlar að fara á „kvennateiginn“ til að slá upphafshöggið. Eru þó rauðu taug- arnar ekkert sérstaklega fyrir konur. Jafnvel blaðamaður veit það. En kemst ekki upp með annað en að stilla upp á gulum teig. „Ég hef aldrei áður lent í því að þetta sé reynt,“ segir annar í hópnum og hristir höfuðið gáttaður. Það eru fjórir í hollinu, blaðamaður og félagi hans og kærustupar sem þeir hittu á golfvellinum á Seltjarnarnesi. Kærastinn er með krúnurakað höfuð, eflaust til að draga úr vindmótstöðu á vellinum, enda með 16 í forgjöf. Eitt af því sem er heillandi við golfið er að þar kynnist maður fólki við afslappaðar aðstæður og í fallegu umhverfi; nýtur útiveru og félagsskapar samhliða heilbrigðri hreyfingu. Þennan dag verður blaðamaður karlmenni, slær af gulum teig og fyrir vikið tekur það hann fimm högg að komast upp að flötinni á fyrstu braut. En hverjum er ekki sama. Maður er fyrst og fremst í keppni við sjálfan sig og þess vegna geta allir „unnið“. Og hvílíkur vettvangur fyrir rimmuna við sjálfan sig. Golfvöllurinn á Seltjarn- arnesi er einstakur í heiminum. Hann er nánast eins og eyja í hafinu – yst á Nesinu. Fjallasýnin er stórbrotin og svo er hann í miðju kríuvarpi! Auðvitað hefur krían áhrif á spilamennskuna. Einn í hópnum er kyrfilega merktur, með skít á bakinu eftir kríuna, sem hann hefur ekki þvegið úr frá því síðast – kannski af því að hann sér hann ekki sjálfur. Og allir kunna sögur af nábýl- inu við kríurnar. Blaðamaður rifjar upp er hann heyrði konu segja frá því að hún hefði drepið kríu í upphafshöggi. Hún var miður sín. „Það kallast fugl,“ segir kærastinn og lætur sér hvergi bregða. Kærastan rifjar upp er vinkona hennar hafði komið sér fyrir á kaffihúsi í sumarkjólnum á sól- björtum degi. Þá skeit kría beint á höfuðið á henni, svo það klístraðist í hárið og fór yfir kjól- inn, og hún hvarf þegar af vettvangi. Kærastinn strýkur krúnurakaðan kollinn og veltir því upp- hátt fyrir sér hvernig þetta væri fyrir hann. „Ætli ég myndi ekki bara strjúka hann af?“ Á þriðju braut hittir blaðamaður ekki kúluna, hún skýst á ská, lendir á fyrirstöðu og kastast aftur fyrir „kvennateiginn“. Honum er gert það ljóst að fyrir vikið þurfi hann að punga út fyrir bjór handa hópnum. Það nálgast miðnætti. Síðasta brautin er spiluð í rauðu sólarlaginu. Kærastinn slær kúluna yfir skemmurnar beint inn í kríuvarpið. Og það fer eins og í morðsögunum: ef byssa er kynnt til sögunnar, þá kemur hún við sögu í einu morð- inu, þótt síðar verði. Krían hnitar hringi yfir höfðinu á honum og „skýtur“. Hann hrópar upp yfir sig, strýkur skítinn ósjálfrátt af skallanum og fer úr peysunni. „Eins gott hún skíti ekki á mig aftur! Þá verð ég að fara úr að ofan.“ Hann hlær. „Þá mynduð þið ekki líta vel út, strákar!“ Návígið við kríuna setur svip á golfið á Seltjarnarnesi. Morgunblaðið/Emilía Björg Kríur í golfi 29. júní Næstkomandi þriðjudag heldur tónlistarkonan Ólöf Arnalds tónleika í Norræna húsinu kl. 21. Þetta eru fyrstu tónleikar Ólafar hér á landi í nokk- urn tíma, en þeir marka útgáfu fyrstu smáskífu plötunnar Innundir skinni, sem kemur út á vegum One Little Indian í september. Smáskífan inniheld- ur lagið „Close My Eyes“ eftir Arthur Russel, en á tónleikunum verður m.a. frumflutt tónlistarmyndband við titillag plötunnar. Ólöf Arnalds í Norræna húsinu Við mælum með… 26. og 27. júní Um helgina verða tvennir tónleikar í Hall- grímskirkju á vegum Alþjóðlegs orgel- sumars. Fram koma básúnuleik- arinn Jessica Buzbee og Hörður Ás- kelsson orgelleikari. 27. júní Jónsvaka endar á sunnudaginn, en kl. 16 verður frumsýnd í Hafnarhúsi heimildarmynd um The Weird Girls Project. Í myndinni er fylgst með listakonunni Kitty Von- Sometime þá fjóra mánuði sem hún vann að undirbúningi gjörn- ings fyrir Grundafjörð- ur Film Festival. 1.-3. júlí Næstkomandi fimmtudag hefst tónlistarhátíðin Funk í Reykjavík. Þá mun fjöldi tónlistarmanna stíga á svið á skemmtistaðnum Nasa og spila fönk, afro beat, dub og fleira. Brasilískur aðdáandi bíður eftir að leikur Brasilíumanna og Portú- gala hefjist í Durban á föstudag. Gulklæddu Brassarnir voru þegar búnir að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum fyrir leikinn og verða þeir að teljast líklegir til að standa uppi sem heimsmeistarar. Þessi stuðn- ingsmaður var í það minnsta bjartsýnn enda dugði honum ekkert minna en tvö pör af sólgleraugum, eitt fyrir hann sjálfan og annað fyrir plastpáfagaukinn. Veröld Bjartsýnn Brassi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.