SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Side 12

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Side 12
12 27. júní 2010 MÓTI Sævar Guðjónsson Formaður Félags leiðsögumanna með hrein- dýraveiðum Þ að eru nokkrir samverkandi þættir sem valda þessum ágreiningi. Félagi leiðsögu- manna með hreindýraveið- um ber að standa vörð um hagsmuni félagsins og við höfum ekki séð hald- bær rök fyrir þeim takmörkunum á veiðum sem lagt er upp með. Í fyrsta lagi var alltaf talað um það, þegar drög voru lögð að Vatnajökuls- þjóðgarði, að allar hefðbundnar nytjar yrðu áfram leyfðar, svo sem veiðar og beiting sauðfjár. Það var aldrei talað um annað, að minnsta kosti þar sem við vorum við- staddir. En svo um leið og áætlunin var komin í gagnið, þá var byrjað að kroppa í. Fyrst voru það refaveiðar, en reyndar var fallið frá banni á þeim veiðum, svo hreindýraveiðar og svo rjúpa og gæs. Þetta eru trúlega elstu nytjar á þessu svæði ásamt sauð- fjárbeit. Það er eins og veiðimenn sem úti- vistarmenn séu settir í allt annan flokk en göngumenn eða skíðamenn. Við erum ekki flokkaðir sem útivist- armenn, þó að við séum klárlega þeir sem hafa notað þetta svæði í gegnum tíðina til útivistar. Ég vil undirstrika að við sjáum ekkert því til fyrirstöðu að þetta geti spilað saman. Auðvitað þarf að stýra veiðum þar sem hópar fólks eru á göngu, enda eru engin hreindýr þar – þau forðast auðvitað manninn. En við erum ósáttir við til- lögur um bann á veiðum við Snæfell og á Vesturöræfum innan skil- greindrar línu til 15. ágúst. Enda segir í yfirlýsingu félagsins: „Ekki er lengur heimilt að fella kálfa“ þannig að þau rök sem upphaflega voru fyrir þessari línu eru ekki lengur til staðar. Þess vegna er e.t.v. eðlilegast að veiði inn- an þessa svæðis fylgi veiðitíma á kúm, þ.e. frá 1. ágúst, ef eitthvert tíma- bundið bann á að vera á svæðinu.“ Einnig leggst félagið gegn algildu veiðibanni á hreindýrum á svæðinu austan Snæfells og á Eyjabökkum, en í yfirlýsingunni segir: „Lítil hreindýra- veiði er á svæðinu en það getur verið mjög gagnlegt að hafa aðgang að hjörð þar til að veiða úr ef ekki gefur til veiða á öðrum stöðum á veiðisvæð- inu.“ Hafa þarf í huga, að með því að banna veiðar á ákveðnu svæði er í flestum tilfellum verið að auka veiði- álag á öðrum svæðum. Ég spyr mig hvort það sé það sem menn vilja sjá gerast í auknum mæli á Íslandi. Við bjóðum fram þá sátt í málinu að þjóðgarðsvörður hafi með það að gera hvort veitt sé á svæðinu þann og þann daginn, eftir því hvort ferðamenn eru á göngu um það eða ekki. Það gekk vel í fyrra, nánast án árekstra, um leið og menn fóru að tala saman. Þriðjudagur Sigríður Andersen finnst staða miðjumanns í fótbolta óþörf. Eva María Jóns- dóttir Fór á Sex and the City með vinkon- um. Vinkonurnar voru meira bíó en myndin og mun skemmtilegri. Miðvikudagur Páll Bergþórsson Með norðvestan hafgolunni hefur öskumistrinu létt af Esjunni í dag svo að hún er tand- urhrein og fögur. Í hlýjunni má sjá dagamun á sköflunum í Gunn- laugsskarði, og sá minnsti og vest- asti er að hverfa, hinir bíða örlaga sinna. Fimmtudagur Elísabet Kristín Jökulsdóttir Fjall- konan vaknaði með mígrenikast, fékk sér kaffi, kveikti á útvarpinu, með margar hugmyndir í kollinum, á leið í bað, búin að opna út og hleypa Jónsmessunni inn. Eiður Svanberg Guðnason Sýnist heilbrigðisráðherra stefna leynt og ljóst að eyðileggingu heilbrigð- iskerfisins með því að flæma lækna úr landi. Hvaða vit er í því að læknir með allt að tíu ára há- skólanám og séfræðinám að baki eigi að vera með lægri laun en for- sætisráðherra ? Í því er ekkert vit. Það er arfavitlaust. Fésbók vikunnar flett Nálhúshnjúkar Snæfell Þjófahnjúkar Ketilhnjúkur Langihnjúkur Sandfell Ey ja ba kk ar Há ls ló n Brúarjökull (Vatnajökull) Eyjabakkajökull Gr un nk or t: LM Í Á að takmarka frekar skot- veiði í Vatnajökulsþjóðgarði? MEÐ Skarphéðinn G. Þórisson Náttúrustofu Austurlands S væðisráð austursvæðis Vatnajök- ulsþjóðgarðs lagði til í tillögu að verndaráætlun ákveðnar tak- markanir á skotveiðum á Snæ- fellsöræfum og að stofnað yrði griðland þar sem hreindýra- og fuglaveiði væri bönnuð. Griðlandið er fyrst og fremst Snæfellið sjálft og undirhlíðar þess auk svokallaðs Eyjabakkasvæðis. Nú er unnið að því í um- hverfisráðuneytinu að Eyjabakkar verði svokallað RAMSAR-svæði og njóti þar með alþjóðlegrar verndunar og viðurkenningar sem merkilegt votlendi sem m.a. hýsir stóran hluta heiðagæsastofnsins í sárum. Innan griðlandsins eru helstu göngu- leiðir gesta þjóðgarðsins og ekki talið æskilegt m.a. þess vegna að stunda þar skotveiðar. Í fylgiskjali með fundargerð svæðisráðs austursvæðis Vatnajök- ulsþjóðgarðs frá 8. apríl 2010 segir eft- irfarandi: „Rökin fyrir því að heimila ekki hrein- dýra- og fuglaveiðar á þessu afmarkaða svæði eru fyrst og fremst af tvennum toga: Í fyrsta lagi er viðkvæmur gróður í hlíðum Snæfells og hnjúkanna kringum það, sem krefst jafnvel stýringar á umferð göngufólks. Þá er votlendið á Þóriseyjum og nágrenni viðkvæmt fyrir umferð auk þess sem þar er stór fellistaður og varp- lönd heiðagæsar. Í öðru lagi hentar svæð- ið einkar vel fyrir gönguferðamennsku, fræðslutengda ferðamennsku, rann- sóknir og náttúruskoðun, m.a. skólahópa á haustin. Að kynna þetta svæði og byggja upp sem slíka útivistarperlu en stunda jafnhliða veiðar innan þess sam- ræmist illa og æskilegra að geta kynnt það sem friðland.“ Í þjóðgarðinum innan Kárahnjúkaveg- ar verða hreindýraveiðar bannaðar fram til 15. ágúst – til að koma til móts við úti- vistarfólk sem ekki stundar veiðar og til að kýr og kálfar á þessu svæði fái aðeins meira næði til að fita sig fyrir veturinn. Fyrir 2006 gilti slík veiðitakmörkun á fyrrnefndu svæði, komið á að tilstuðlan Fljótsdælinga upp úr miðri síðustu öld. Þá var ferðamönnum fyrir að fara en þeir vildu að kýrnar með kálfa sína fengju frið fram í miðjan ágúst. Bent skal á að tiltölulega fá hreindýr hafa verið veidd á þessu svæði á hverju hausti. Nú hefur veiðitíminn einnig verið framlengdur til 20. september og veiði- svæði austan Jökulsár í Fljótsdal orðin mun aðgengilegri, bæði innan og utan þjóðgarðs vegna Hraunaveitu. Svæðisráðið lagði líka til að ekki væri heimilt að nota sexhjól til að sækja fellda bráð utan vega eins og heimilt er almennt á hreindýraslóðum. Ekki var talið við hæfi að leyfa utanvegaakstur innan þjóð- garðs þar sem gestir koma til að njóta m.a. öræfakyrrðar og aldrei verður fylli- lega komið í veg fyrir að einhverjar slóðir sjáist þó svo að skemmdir verði ekki á gróðri.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.