SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 16
Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is
Texti: Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is
É
g væri til í þennan kjól, þessar legg-
ings verð ég að eignast, ó hvað ég
myndi gera margt fyrir þessa skó,“
voru á meðal hugsana sem flugu í
gegnum höfuðið á mér á tískusýningu PopUp
Verzlunar síðastliðinn fimmtudag. Sýningin
var hluti af miðsumarhátíðinni Jónsvöku og
fór fram í Listasafni Reykjavíkur. Þar sýndu
þrettán ungir og upprennandi fatahönn-
uðir mjög svo ólíkar línur sínar, sem náðu
að höfða til breiðs hóps áhorfenda, allt frá
meðalmönnum til tískuljóna.
Sýningin var „edgy“, en þó ekki svo að
gestir sæju hönnunina einungis eiga
heima uppi á palli. Það má segja að
þessum ungu hönnuðum hafi tekist
að skapa formúlu fyrir einstaklega
vel heppnaðri tískusýningu.
Þórey Björk Halldórsdóttir, fata-
hönnuður og annar skipuleggjenda
sýningarinnar, var í skýjunum með
heildarútkomuna.
„Við fengum frábærar viðtökur og
rosalega góð viðbrögð eftir sýn-
inguna. Módelin, hönnuðirnir og
allir sem komu að þessu stóðu sig
eins og í sögu, ég hefði ekki getað
fengið betri liðshóp.“
Þórey segir að markmið þeirra hafi
verið að koma sem flestu ungu og
efnilegu fólki á framfæri, enda
væri það í anda Jónsvöku-
hátíðarinnar.
Þess vegna hafi ekki allir verið
þaulreyndir í sínu starfi, svo sem
fyrirsæturnar og förðunarfólkið.
Það var þó enginn byrjenda-
bragur á neinu, svo óhætt er að
segja að listaheimur okkar Ís-
lendinga eigi einungis eftir að
blómstra þegar fram líða stund-
ir.
Frábært framtak hjá PopUp
Verzlun og kærkomin sum-
arleg upplyfting á virk-
um vikudegi. Ég bíð
spennt eftir næstu
tískusýningu.
Sýningargestir fylgdust með af kostgæfni, enda ekki annað hægt þar sem afrakstur ungu hönnuðanna var glæsilegur.
Design Volcano/Katla Hreiðarsdóttir.
Begga Design/
Berglind Árna-
dóttir.
Pardus/Ása Ninna
Pétursdóttir.
Bak við tjöldin
Poppuð
tískusýning
Skipuleggj-
endurnir Þórey
Björk og Elva
Dögg.
16 27. júní 2010