SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 20

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 20
„Öll tónlist sem hefur sterk áhrif á mig veitir mér innblástur,“ seg- ir Hitesh Ceon og tilgreinir lista- menn af ýmsu tagi: Stevie Wonder, Ray Charles, Musiq Soulchild, Michael Jackson, Jackson 5, Quincy Jones, Lauryn Hill, Frank Sinatra, ColdPlay, Stargate, David Foster, Sarah Vaughn, Ka- nye West, Jimi Hendrix, Duran Duran, Bilal, Jay-Z, Led Zeppelin, Jodeci, Death, Timbaland, Deadmou5, Busta Rhy- mes, Future Sound of London/Stakker Hum- anoid, Floetry, The- Dream, Dire Straits, Me- tallica, Sigur Rós, Jónsa – „nýja platan er frá- bær“ – Depeche Mode, Rufus Wainwright, Mar- vin Gaye … „Ég er líka mjög undir áhrifum frá kvikmynda- tónlist og klassískri tónlist, elska stór verk með sinfóníu og kór eins og til dæmis Re- quiem-messu Moz- arts nr. 19 í D moll. Ég hef líka mikið dá- læti á spænskri gít- artónlist en faðir minn hefur spilað hana síðan ég var barn. Frændi minn, gítarsnill- ingurinn Tryggvi Hüb- ner, hefur líka haft mikil áhrif á mig.“ Hin sterku áhrif 20 27. júní 2010 „Þegar ég var sextán ára fékk ég mikinn áhuga á sálfræði, sem síðan varð til þess að ég byrjaði að stúdera jóga-hugleiðslu og heim- speki, og varð meðlimur í jóga-samtökum. Þegar ég var orðinn tvítugur, 1994, flutti ég utan til að einbeita mér að mínum andlegu rannsóknum, og vann þá með þessum jóga- samtökunum. Ég var fyrst í Danmörku, en ferðaðist mikið og var í Svíþjóð, Noregi, Þýskalandi, Indlandi og Singapore meðal ann- ars. Í Danmörku hitti ég söngvara árið 1996 sem líka var meðlimur í þessum samtökum. Eftir að hafa heyrt sýnishorn af tónlistinni minni bað hann mig að koma til Noregs og gera plötu með sér. Ég tók því tilboði og ákvað að verja þremur mánuðum í það verkefni. Þegar sá tími var liðinn og platan tilbúin, ákvað ég að setjast að í Noregi. 1997 varð ég hluti af hip-hop-grúppu sem hét SD-Crew og við gáfum út smáskífu í gegnum Mega Records sem hét „I Wanna Do My Own Thang“ og héldum marga tónleika. Sama ár pródúseraði ég tvær rokkplötur, með hljómsveitunum Explicit Lyrics og Pod.“ Hvernig kom það til að þú samdir lag fyrir bandarísku söngkonuna Taylor Dayne sem sló í gegn árið 2008? „Ég skrifaði undir útgáfusamning við Murlyn Songs AB í Svíþjóð árið 2000 og þeir komu tónlistinni minni á framfæri við Taylor Dayne og fleiri erlenda söngv- ara. Hún heyrði tónlistina mína í kringum 2003 og kom í kjölfarið til Svíþjóðar til að vinna með mér. Þá sömdum við lagið „Beautiful“. Instrumental-tónlistin var klár áður en hún kom Þ etta hefur mikla þýðingu fyrir okkur. Fyrst og fremst er það bara gífurlegur innblástur að sjá allt þetta fólk dansa við tónlistina okkar,“ segir Helgi Már Hübn- er, ellegar Hitesh Ceon, en lag þeirra Norðmanns- ins Kims Ofstads, „Glow“ í flutningi norska dú- ettsins Madcon, vakti mikla athygli meðan álfan beið með öndina í hálsinum eftir úrslitum Evr- óvisjónkeppninnar fyrir skemmstu. Áætlað er að 130 milljónir manna hafi horft á flutninginn. „Að sjá „Glow“ verða svo vinsælt er líka mikil hvatning,“ heldur Hitesh áfram. „Lagið hefur bara verið gefið út á iTunes ennþá, en er samt búið að vera efst á iTunes-listanum í meira en viku í Þýskalandi og Noregi, náði öðru sæti á Spáni og hefur verið á topp tíu á iTunes-listanum í tíu lönd- um. Það gefur okkur nýja orku og eykur einbeit- ingu að sjá tónlistina ná þessum árangri. Þetta er það sem við stefnum að á hverjum degi og að sjálf- sögðu hefur þetta mikið að segja fyrir okkur í við- skiptum við plötufyrirtækin.“ Hitesh er 36 ára, fæddur í Reykjavík en alinn upp á Hellu, í Reykjavík og Mosfellsbæ. Foreldrar hans eru Gunnar Hübner og Erna Elíasdóttir. „Ég byrjaði að semja eigin tónlist þegar ég var sex ára, var farinn að prógramma tölvutónlist þeg- ar ég var níu eða tíu ára. Notaðist fyrst við Spect- ravideo SV-328 en gerði síðar alls kyns tónlistar- tilraunir með mörgum öðrum tölvutegundum. Þegar ég var um það bil fimmtán ára byrjaði ég að vinna með vini mínum, Lýði Þrastarsyni, sem var snillingur með mikla sköpunargáfu, ímyndunarafl og hæfileika til að sjá fyrir sér nýja tónlist og ný tónlistarform. Hann og okkar samstarf hefur haft sterk áhrif á mig sem tónlistarmann og persónu. Við gerðum hundruð laga saman í öllum mögu- legum stílum í heimastúdíói okkar, sem byggðist upp smám saman, með allskonar græjum. Eitthvað af því var spilað í útvarpi, en bara eitt lag gefið út á geisladiski, „I c God“, 1993. Þá kölluðum við okkur Inner Core. 1994 gerði ég tvö lög með textahöfundinum Kristiani Guttesen, þau voru sungin af Önnu Björk Ólafsdóttur og Kristiani og gefin út undir nafninu „Vitrun“. Hvorki „I c God“ né „Vitrun“ hafði neitt með trúarbrögð að gera. Lögin sem Vitrun gaf út heita „Child“ og „Disappearing (Into the void of the unknown)“.“ Jónsi kom í heimsókn Kynntistu Sigur Rósar-mönnum eitthvað í Mos- fellsbænum? „Ég hef ekki unnið með Sigur Rós. Jónsi kom samt nokkrum sinnum í heimsókn í heimastúdíóið okkar Lýðs, en þá hafði ég ekki hugmynd um að hann hefði hæfileika á sviði tónlistar, eða að hann væri að semja tónlist sjálfur. En mér finnst tónlistin sem Sigur Rós og Jónsi hafa gert alveg frábær.“ Hvað varð til þess að þú ákvaðst að reyna fyrir þér í Noregi og hvernig gekk að koma sér á fram- færi þar? Tshawe Baqwa og Yosef Wolde- Mariam mynda norska dúettinn Madcon. Reuters Hitesh Ceon eða Helgi Már Hübner hefur um árabil verið búsettur í Noregi. Frjáls í anda Lagið Glow með Madcon fer nú eins og eldur í sinu um Evrópu eftir að það var leikið með- an á atkvæðagreiðslu stóð í Evróvisjón. Annar höfunda lagsins er Íslendingurinn Helgi Már Hübner, sem kallar sig Hitesh Ceon, en hann hefur jafnframt samið lög fyr- ir Taylor Dayne og Alexöndru Burke. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Breska X Factor-stjarnan Alexandra Burke.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.