SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 21

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 21
27. júní 2010 21 É g vil taka það fram að ég er afskaplega hliðhollur konum. Mér finnst konur bara yfir höfuð alveg frábærar. Ég gæti alls ekki lifað án kvenna. Kon- ur eru allt öðruvísi en karlar. Kannski er það ástæðan fyrir því að mörgum karlmönnum finnst svo gott að vera í návist kvenna. Þær eru bara svo góðar og skemmtilegar. Og öðruvísi. Það eru auðvitað til konur sem eru ekkert skemmtilegar, en ég held að þær séu ekki margar. Eitt eiga þó karlar og konur sameiginlegt, þeim finnst gaman að fara í bíó. Bæði saman og í sitthvoru lagi. Ef karlar og konur fara saman í bíó verður helst að velja mynd sem höfðar til beggja. Sakamálamyndir höfða oft til beggja. Karlar eru hins vegar oft meira fyrir hasarmyndir og oft höfða myndir sem fjalla um erfið veikindi, mátun kjóla eða brúðkaup meira til kvenna. Þannig er þetta bara. Ég komst hinsvegar að því fyrir stuttu að konur haga sér mjög svipað í bíó og karlmenn. Ég varð nefnilega þess heiðurs aðnjótandi að vera boðið í bíó um dag- inn. Kvikmyndin sem mér var boðið á heitir Sex and the City. Og númer tvö takk fyrir. Og það voru margar konur í bíó. Ég held reyndar að ég hafi aldrei ver- ið staddur á nokkrum stað áður með eins mörgum kon- um. Kynjahlutföllin voru 2 á móti 100, konum í vil. Sal- urinn á þessu miðvikudagskvöldi í Sambíóunum var gersamlega pakkaður af kvenfólki. Og við örfáu karl- mennirnir sem vorum með í för vorum allir með sama svipinn í framan, sem úr mátti lesa alls sex orð: Hvað er ég að gera hér? Andrúmsloftið áður en myndin hófst var magnþrungið. Það var flautað. Það var klappað. Eftirvæntingin var greinilega gríðarleg. Við erum að tala um mjög mikið af konum sem greinilega höfðu beðið eftir þessari mynd mjög, mjög lengi. Sennilega bara alveg síðan Sex and the City 1. Kannski bara nokkur ár. Hvað veit ég. Í huganum fór ég aftur nokkur ár, því þetta minnti mig á þegar að við félagarnir fórum á Rambó 2 hér um árið. Þá var salurinn líka pakkaður. Aðeins minni ilmvatnslykt en á Sex and the City og sennilega skítugri neglur svona heilt yfir í salnum, en mjög svipuð stemning. Gríðarleg eftirvænting. Ég meina við vorum náttúrulega búnir að bíða eftir Rambó 2 alveg síðan Rambó 1. En af hverju fór ég á Sex and the City númer tvö? Svar- ið við því ég mjög einfalt. Það er nauðsynlegt að heim- sækja heim konunnar þó svo að maður þurfi að sitja með 500 skrækjandi konum í 140 mínútur. Já, ég sagði 140 mínútur! Reyndar með akstri og undirbúningi erum við að tala um bíóferð uppá svona 180 mínútur. Og þar sem konur eru líka svo frábærar og skemmtilegar þá var þessi bíóferð bara ekkert mál. Ég man reyndar ekkert mjög mikið úr myndinni. Jú, það var brúðkaup í henni og eitt til tvö kjólaatriði. Og mikið af nærmyndum af skóm. Ég held að ég hafi aldrei verið á kvikmynd þar sem var jafnmikið af nærmyndum af skóm. Ef nærmyndirnar af skónum hefðu verið klippt- ar út hefði myndin verið um það bil 40 mínútum styttri. En sem sagt 180 mínútur að heimsækja heim kvenna er bara ekkert mál. Og þarft. Enda eru 180 mínútur ekki nema tveir fótboltaleikir. Ekki að það sé aðalmálið. Þó svo að það sé Heimsmeistarakeppni í fótbolta í gangi akk- úrat núna. Lykillinn að þessu öllu saman er auðvitað bara sá að gera sér grein fyrir að maður verður að leggja inn það sem maður ætlar sér að taka út. Þetta snýst bara um að vinna heimavinnuna sína! Vandamálið er bara að það er alltof langt í Sex and the City 3. Konur og kvikmyndir ’ Það er nauð- synlegt að heimsækja heim konunnar þó svo að maður þurfi að sitja með 500 skrækjandi konum í 140 mínútur. Pistill Bjarni Haukur Þórsson en við sömdum texta og melódíu saman. Lagið var samt ekki gefið út fyrr en þremur eða fjórum árum seinna.“ Má líta á „Beautiful“ sem vatnaskil á þínum ferli, vakti það mikla athygli á þér? „Ég er mjög ánægður með lagið og að það skyldi ná fyrsta sæti á Billboard-danslistanum í Banda- ríkjunum. Það hafði samt lítil eða engin áhrif á minn feril.“ Hvernig kom samstarf ykkar Kim Ofstad til undir merkjum ELEMENT og hvernig er því hátt- að? „Við vorum báðir með samning við Murlyn Songs AB og unnum í sama stúdíó-komplexinu. Kim Ofstad er einn af bestu trommurum Noregs og var vel þekktur hér sem meðlimur í hljómsveitinni D’sound. Hann og D’sound-bassaleikarinn Jonny Sjo töluðu mikið um að við ættum að prófa að vinna saman að einhverju verkefni. Ég fékk þá hugmynd 2004 að gera plötu með söngvaranum Sofian Benzaim, og að það gæti passað vel að gera það með Kim og Jonny. Það varð fyrsta verkefnið sem við unnum að og útkoman varð ein af mínum uppáhaldsplötum, „This is Sofian“. Sofian var til- nefndur til tveggja norskra Grammy-verðlauna og vann Alarm-verðlaunin. Þetta varð til þess að ég, Kim og Jonny byrjuðum að vinna mikið saman, fyrst undir nafninu 3Ele- mentz. Þegar frá leið fórum við Kim að vinna meira tveir saman, meðan Jonny sneri sér að bassaleik fyrir aðra. Í byrjun árs 2009 dró hann sig síðan út úr 3Elementz, og við Kim breyttum nafninu í ELE- MENT. Við gerðum síðan samning við umboðs- menn okkar í Bandaríkjunum, Stargate/Black- smith/Delirious, og útgáfusamning við 45th & 3rd og Sony Atv vestra. Kim er nú hættur í D’sound til að einbeita sér að samvinnu okkar i ELEMENT.“ Endurgerðu Jackson Segðu mér frá öðrum verkefnum, svo sem sam- starfinu við X Factor-stjörnuna Alexöndru Burke og endurgerðinni af tveimur Michael Jackson- lögum sem þið hafið gert? „Veturinn 2007-2008 sló lagið „Beggin“ sem við sömdum fyrir Madcon í gegn, náði fyrsta sæti í mörgum Evrópulöndum, og seldist í meira en einni og hálfri milljón eintaka. Eftir það fengum við mikla athygli frá stóru plötufyrirtækjunum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Það hefur líka mikið að segja að við höfum frábæra umboðsmenn, sem hafa verið á bak við marga stóra smelli í bæði Bandaríkjunum og Bretlandi í gegnum Stargate, má þar nefna listamenn eins og Rihanna, Ne-Yo, Beyoncé og fleiri. Það hefur opnað margar dyr. Alexandra Burke kom til Noregs til að vinna með okkur, eftir að plötufyrirtækið hennar hafði sam- band við okkur. Universal Motown í Bandaríkjunum höfðu heyrt eitthvað af tónlistinni okkar með Madcon, og höfðu þess vegna samband við umboðsmenn okk- ar. Þannig fengum við það verkefni að endurgera tvö lög með Michael Jackson. Við fengum gömlu multi-track-upptökurnar af þessum lögum, not- uðum sönginn en spiluðum allt upp á nýtt.“ Hafið þið unnið mikið með Madcon og hversu vinsæll er dúettinn í Noregi og Evrópu? „Ég var búinn að þekkja Madcon-strákana í næstum tíu ár áður en við byrjuðum að vinna sam- an. Þeir höfðu gefið út töluvert af tónlist og notið virðingar hjá öðrum í bransanum fyrir sína hæfi- leika, unnu til dæmis norsku Grammy-verðlaunin, en höfðu ekki selt margar plötur á þessum tíu ár- um. Þegar við byrjuðum að vinna saman 2007, voru þeir ekki einu sinni með plötusamning. Eitt af því fyrsta sem við unnum að var lagið „Beggin“, sem varð gífurlega vinsælt í Noregi, náði áttfaldri plat- ínusölu, áður en það var gefið út um alla Evrópu og í Bandaríkjunum. Lagið náði fyrsta sæti í mörgum löndum, og seldist í yfir einni og hálfri milljón ein- taka. Nú hafa þeir aftur slegið í gegn með „Glow“.“ Hvaða verkefni eru framundan hjá þér núna? Ertu á leið til Bandaríkjanna? „Við Kim erum að vinna að mörgum spennandi verkefnum Höfum til dæmis nýlega tekið upp þrjú lög með einum besta neo-soul-söngvara Banda- ríkjana, Musiq Soulchild, og að sjálfsögðu höfum við gert fleiri lög með Madcon. Við höfum verið mikið í Bandaríkjunum síðasta árið og erum nú að bíða eftir að fá atvinnuleyfi, svo við getum farið að vinna þar, í staðinn fyrir að söngvararnir þurfi að koma til Noregs.“ Hefurðu samið eða pródúserað fyrir einhverja íslenska tónlistarmenn eða stendur það til? „Nei.“ Annt um velferð allra Hvers vegna tókstu þér nafnið Hitesh Ceon og hvað merkir það? „Hitesh er nafn sem indverskur munkur í jóga- samtökunum sem ég var í gaf mér þegar ég var lík- lega átján ára. Nafnið merkir „sá sem er annt um velferð allra lifandi vera“. Nafnið minnir mig á eig- inleika í mínu fari sem mér þykir vænt um og þess vegna held ég því enda þótt ég sé löngu hættur í þessum jóga-samtökum. Nafnið Ceon fékk ég frá vini mínum sem er spænskur „gangster-rappari“ en ekki munkur. Það er indíánanafn og merkir „frjáls andi“.“ Hvernig myndirðu skilgreina þig sem tónlist- armann? „Ég sé sjálfan mig sem tónskáld, pródúser – ís- lenska orðið upptökustjóri er allt of takmarkað – og útsetjara. Mitt hljóðfæri er tónlistin sjálf. Ég notast núorðið mest við hljómborð og tölvu til að framkalla hana en hef einnig notað aðra hljóðfæra- leikara, strengjasveit, kór, eða hvað sem til þarf. Ég hef engin takmörk í minni tónlist, og get unnið með alla stíla. En það er líka mikilvægt fyrir mig að reyna að semja tónlist sem selst.“ Reuters Bandaríska poppsöngkonan Taylor Dayne. Reuters Konungur poppsins, Michael Jackson.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.