SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Qupperneq 25

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Qupperneq 25
27. júní 2010 25 erfitt að fá þjálfara fyrir yngri flokkana. Að þjálfa einn flokk í handbolta þýðir tíu helgar yfir vetur sem haldið er mót. Til að ná árangri þarf að gefa þessu mikinn tíma og sína krökkunum áhuga. Það er ótrúlegt hve margir eru duglegir að sinna þessu,“ segir Gauti. Sjálf er Hildi- gunnur með tuttugu helgar yfir veturinn. Í vetur þjálfaði Gauti alla sunnudagsmorgna. „Ég var eins og prest- arnir!“ segir hann og hlær. Stelpur byggi tengslanet Þau hjónin eru sammála um það að hvetja þurfi stelpur til þess að taka meiri þátt í íþróttum. Að sögn Gauta er það vandamál í öllum íþróttagreinum að fá stelpur til að vera með. „Í íþróttaumhverfi lærirðu að vinna og tapa, það er hluti af því að þroskast, hvernig maður tekst á við meðbyr og mótbyr. Strákar eru meiri hópverur en stelpur, sem eiga kannski frekar eina til tvær bestu vinkonur. Oft er talað um að konur séu verri í tengslamyndun, til dæmis í stjórnmálum. Þess vegna er mikilvægt að stelpur læri ungar að umgangast hóp kynsystra sinna. Ef þú hefur ekki fengið þjálfun í því þá kanntu ekkert að taka tillit til tutt- ugu annarra stelpna. Stelpur sem eru einar öll æskuárin eru ekki til þess fallnar að vera í félagsstörfum síðar meir.“ Hildigunnur bendir á að á æfingum þegar hópar stelpna og stráka séu beðnir um að raða sér upp í röð þá berjist strákarnir um að vera fyrstir í röðinni en stelp- urnar feli sig frekar. Hvetja þurfi þær til að sýna frum- kvæði og íþróttir séu góðar til þess að kveikja keppn- isskapið í þeim. Annað vandamál er brottfall stelpna úr íþróttum. „Við menntaskólaaldur detta fleiri stelpur út en strákar. Fullt af mjög góðum stelpum jafnvel. Oft upplifir maður að ef strákur ætlar að hætta þá fái hann meiri stuðning að heiman, hann fái eiginlega ekki að hætta,“ segir Hildi- gunnur. „Ef stelpa segist hins vegar ætla að hætta að æfa þá segir mamman oft að þetta sé líka komið gott og betra sé að einbeita sér að skólanum,“ bætir Gauti við. Engin spenna út af íþróttum Það er fátt annað en íþróttir sem kemst að hjá fjölskyldu þeirra Gauta og Hildigunnar. Á meðal hjóna skapast gjarnan spenna þegar önnur manneskjan, oftast karlinn, hefur óhóflegan áhuga á íþróttum. Hvaða áhrif hefur allur þessi íþróttaáhugi á hjónaband þeirra? „Það er vonlaust að annar aðilinn sé á kafi í íþróttum en hinn ekki,“ segir Hildigunnur. „Á þessu heimili er þetta mjög auðvelt þar sem allir hafa áhuga á íþróttum. Feðgarnir keppa mikið á golfmótaröðinni svo að sumarið fer mikið í golf. Mér finnst það fínt og fer bara með þeim þegar þeir eru að spila.“ Hún segir þetta ganga í báðar áttir. „Í gamla daga þegar ég var í landsliðinu í körfubolta sást ég ekki um helgar og þá var Gauti einn með börnin. Það voru margir sem gerðu athugasemdir við þetta, hvernig ég gæti leyft mér að gera þetta. Hins vegar finnst öllum það eðlilegt þegar karlinn á í hlut.“ Hildigunnur segist koma úr íþróttafjölskyldu ólíkt Gauta og hún hafi alist upp með íþróttir og æfingar sem daglegt brauð. „Börnin okkar hafa síðan sjálf alist meira eða minna upp í íþróttahúsum. Elsta barnið var mætt í burðarrúmi tveggja vikna gamalt á fyrsta æfingaleikinn sinn.“ Hún segir börn þeirra hjóna hafa æft margar mis- munandi íþróttir, handbolta, fótbolta, frjálsar íþróttir og golf. Mikilvægt sé að foreldrar velji ekki fyrir börnin heldur fái þau að spreyta sig á mörgum íþróttum. „Oft er foreldri mikill fótboltamaður og fer þar af leiðandi bara með barnið á fótboltaæfingar. Ég er oft spurð hvers vegna börnin mín séu ekki í körfuboltanum af því að ég var í honum. Börnin hafa einfaldlega prófað ýmislegt og valið sjálf það sem þeim hentar best.“ Hildigunnur og Gauti í her- klæðum Gróttu. Morgunblaðið/Ernir ’ Hjá Gróttu reynum við að passa að allir fái sömu þjálf- unina óháð getu. Það er til- hneiging að láta þá sem eru góðir í íþróttum gera allt. Mitt mottó er hins vegar að lið sé ekki betra en lélegasti leikmaður þess

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.