SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 27
Ó
ttarr Ólafur Proppé fæddist 1968, sonur þeirra Ólafs Proppé og Pétrúnar Péturs-
dóttur. Óttarr ólst upp á borgaralegu menningarheimili sem flakkaði milli Hafn-
arfjarðar og Bandaríkjanna til skiptis. Reyndist drengur þetta líka ánægður með báða
staði. Afar hans kenndu honum að sýna umhverfinu áhuga og vöruðu hann við því að
láta plata sig út í pólitík.
Ungur að aldri varð Óttarr elskur að bókum, kvikmyndum, tónlist og Abba. Þessi ást hefur
ágerst með árunum. Þegar leið hans lá í Flensborgarskóla í Hafnarfirði gerði hann vanmáttuga til-
raun til þess að gerast félagsmálatröll. Stráksi afrekaði það helst að vera kjörinn íþróttamaður
ársins í skólanum fyrir það afrek að eiga asnalegasta útspark í sögu fótboltans.
Í lok menntaskólaáranna kynntist Óttarr villingum og Abbaáhugamönnum úr Kópa-
vogi, Hallormsstaðarskógi og enn öðrum bæjarfélögum. Á sama tíma réð hann sig í sum-
arstarf í Bókabúð Sigfúsar Eymundsson. Þetta átti eftir að verða Óttari afdrifaríkt. Sum-
arstarfið í bókabúðinni teygði úr sér og bókabransinn hefur verið hans
atvinnuvettvangur allt upp frá því. Samstarfið við villta utanbæjarmenn hefur sömuleiðis
aldeilis dregið dilk á eftir sér.
Í samstarfi við Sigurjón Kjartansson, villing frá Ísafirði, gerði Óttar fyrstu atrennu að
kvikmyndabransanum. Þeir félagar hófu tökur á sígaunahryllingsmyndinni „Álvers-
menguðu djöflarnir“ í skugga álversins í Straumsvík. Tökur á kvikmynd reyndust erfiðari
en svo að myndin yrði nokkurn tíma kláruð en upp úr þessu samstarfi varð til hljómsveitin
HAM. Hljómsveitin hefur starfað með hléum æ síðan og vakti eitt sinn athygli með nýstár-
legri útgáfu af Abba laginu „Voulez-Vous“.
Óttarr hefur einnig starfað með hljómsveitum á borð við Funkstrasse, Rass og Dr. Spock en
sveitin síðastnefnda náði því afreki að lenda í þriðja sæti í undankeppni Evróvisjón hér heima.
Var það eins nálægt samneyti við Abba og drengurinn gat nokkru sinni látið sig dreyma um.
Óttarr tók sæti á lista Besta flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar og var kjörinn
borgarfulltrúi á dögunum. Óttarr unir sér hvergi betur en á sjó með bók í hönd og gutl í eyr-
um. Óttarr lét plata sig út í pólitík en áhugi hans á umhverfinu færist samt í aukana með
hverjum deginum.
Tíu ára meðal hillbilla í Ameríku. „Áttundi áratugurinn er
stærri en aðrir áratugir í mínu hjarta. Það var allt í svo flott-
um litum og hljómaði betur.“
Tveggja ára við skírn systur sinnar Huldu. Tekin nokkrum ár-
um áður en litur var tekinn upp á Íslandi.
Með vininum og samstarfsmanninum Þorgeiri Guðmunds-
syni kvikmyndagerðarmanni í París. „Við erum í vinnunni við
tökur þó það líti ekki út fyrir það.“
„Ferðalög, skilti og skrýtin orð eru mínar ær og kýr. Útrýming-
arskap er eitthvað það ömurlegasta orð sem ég hef dottið um
á ferðum mínum.“
Mynd tekin fyrir viku bókarinnar. „Í miðri töku kom ræst-
ingamaður af erlendu bergi brotinn sem skildi ekkert hvað
var á seyði. Hann tók mér alltaf með vara eftir það.“
Morgunblaðið/Golli Í góðu stuði með hinni goðsagnarkenndu sveit HAM á tón-
listarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði. „Ég er sér-
staklega hrifinn af Vestfjörðum og fæ alltaf þrefalda orku
um leið og ég lendi á Ísafirði.“
Misheppnað
félagsmálatröll
Myndaalbúmið
Óttarr Proppé var ungur varaður við að láta plata sig út í
pólitík en í dag er hann orðinn borgarfulltrúi Reykvíkinga.
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is
„Sjórinn er uppspretta alls góðs. Á sjó líður mér
betur en annars staðar. Þar kemst þetta land-
krabbarugl ekkert að til að trufla.“
Lentur í klóm pólitík-
urinnar. Kominn í fram-
boð fyrir Besta flokk-
inn í Reykjavík.
Popparinn kemur
sér í gírinn. Tekinn
baksviðs á ein-
hverri búllunni fyrir
tónleika hljóm-
sveitarinnar Dr.
Spock.
27. júní 2010 27