SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 28
28 27. júní 2010
Þ
að var angist í augum móðurinnar sem hallaði sér á vélarhlíf bílsins þó
ungu drengirnir væru áhyggjulausir að því er virtist. Þeir höfðu ekkert til
að leika sér með nema bíldekk sem þeir veltu á undan sér og skemmtu sér
konunglega – gleði og sakleysi skein úr augum þeirra. Skammt frá voru
aðeins eldri drengir í fótbolta. Kannski eru þeir að spila með landsliði Suður-Afríku
í heimsmeistarakeppninni núna, hver veit?
Móðir drengjanna var áhyggjufull, hún var nýlega búin að missa manninn sinn úr
alnæmi og lífsbaráttan í fátækrahverfinu í Khayelitzha í Suður-Afríku getur verið
erfið. Í næsta húsi lá maður rúmfastur, hann var með alnæmi og átti skammt eftir
ólifað. Í Mósambík var ung kona með sama sjúkdóm. Hún hafði miklar áhyggjur af
því hvað yrði um börnin hennar. Ég fékk leyfi hjá þeim báðum til að taka myndir af
þeim, ég fann hvað þeim leið illa, áhyggjurnar voru að sliga þau. Nokkrum dögum
seinna voru þau bæði dáin og börnin munaðarlaus. Síðan eru liðin sjö ár.
Húsin þeirra voru úr bárujárni, hálfgerðir kofar, klæddir að innan með dag-
blöðum. Við vorum þarna á vegum Rauða krossins að mynda alnæmi í Afríku en
hluti íbúa Afríku er með sjúkdóminn. Sumir æðstu embættismenn og ráðamenn í
Suður-Afríku viðurkenndu ekki á þessum tíma að þetta væri vandamál. Sögðu
þvert á móti að fólkið væri að deyja af allt öðrum orsökum, þar af leiðandi þyrfti
engin lyf.
Afneitun á staðreyndum var alger, eins og svo oft í pólitík, það verður að snúa
öllu sem augljóst er á hvolf – það er svo gáfulegt – og á meðan hrynur heilt sam-
félag. Það dóu mun fleiri en þurftu. Kannski verður einhvern tíma fundið upp lyf
við heimsku en það yrði örugglega verðlagt svo hátt að enginn getur tekið það inn.
Við höktum bara áfram í sama farinu.
Það getur verið svolítið erfitt að mynda veikt fólk, sérstaklega fólk sem á enga
von um bata eins og í þessum tilfellum. En stundum þarf að sýna vonda hluti á
myndum til að hreyfa við fólki. Verið var að safna peningum fyrir lyfjum og það
Þar sem
veruleikinn
bítur
Alnæmi er óvíða meira vandamál en í
þeirri einstöku álfu Afríku. Það getur verið
svolítið erfitt að mynda veikt fólk, sér-
staklega fólk sem á enga von um bata.
Sagan bak
við myndina
Ragnar Axelsson
rax@mbl.is