SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Side 37

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Side 37
27. júní 2010 37 Lífsstíll S he seems to be doing a thorough job heyri ég að eldri maðurinn fyrir aftan mig segir með nokkrum áhyggjutón við eiginkonu sína og virðist ekki lítast á aðfarirnar. Það er kannski ekki skrýtið, hugsa ég, þar sem ég ligg á baðfötunum einum fata og hristist til og frá þegar kona helmingi minni og léttari en ég hamast hvað hún getur á hverj- um einasta vöðva líkamans og hristir mig og fettir og brettir fram og til baka. Nudd er mitt dekur og hald- reipi í æðibunugangi hversdagsins þar sem axlirnar eru reglulega komnar upp að eyrum og banka upp á með félaga sínum höfuðverk. Nudd á strönd er þó nokkuð öðruvísi upplifun en að láta nudda sig í hálfrökkvuðu herbergi með slökunartónlist í eyrunum og teppi yfir sér. Á ströndinni er enginn friður fyrir malandi sól- araðdáendum, æstum unglingum og farandsölumönn- um. Hér er heldur sannarlega ekki rétti staðurinn til að vera spéhræddur og síst af öllu rétti tíminn til að hugsa um ræktarferðir sem ekki urðu nógu margar eða allt grænmetið sem ég hefði átt að borða í staðinn fyrir smá nammi og stöku ís. Nei, nú hristist allt sem getur hrist og ég læt mig það engu skipta (vona þó að flestir séu búnir með hádegismatinn) heldur ligg hálfmeðvitund- arlaus í heitri sólinni og hlýði hverri einustu bendingu nuddarans. Já, hún er helmingi minni en ég en líka örugglega helmingi sterkari og því er bara best að halda sig á baðmottunni sem ég ligg ofan á og gera eins og fyrir mann er lagt. Þessi kona kann vel til verka og ætl- ar að gera hvað hún getur til að reka vöðvabólguna vondu á dyr. Hver einasta taug og vöðvi í fótum tekur viðbragð þegar hún byrjar að hamast á kroppnum enda hafa þeir gegnt mikilvægu hlutverki síðastliðnar tvær vikur við að koma mér á milli staða og aldrei gefist upp þó eigandanum væri skapi næst að láta bera sig heim eða keyra í hjólbörum. Þeirra tími er nú kominn og ég borga með glöðu geði 30 evrur fyrir að láta krjúpa á mér og nudda bakið með hnjánum, teygja hendur mín- ar og fætur þannig að ég held þau séu að slitna af og nudda þannig á mér höfuðið að hárið á mér verður flókið það sem eftir lifir helgarinnar. Hálfvönkuð eftir aðfarirnar og heita sólina stend ég upp og brosi uppörvandi til mannsins til að sannfæra hann um að ég sé heil á húfi. Nuddið var vissulega nokkuð ákveðið inn á milli en þó ekki jafn slæmt og það leit út fyrir. Ég kinka líka kolli til kvennanna við hliðina á mér sem gera hlé á sögu sinni um lækn- isheimsókn og týndan hanska í ruslinu til að kinka kolli á móti. Síðan liðast ég afslöppuð í skrokknum og glans- andi af nuddolíu eins og kvikmyndastjarna (eigin ímyndun) eftir ströndinni og aftur á bekkinn minn þar sem ég leggst eins og skata og held áfram að grilla mig í franskri sólinni. Nú gildir afslöppunin ein en á morgun verða endurnærðir fæturnir notaðir aftur af kappi á heitu malbikinu. Nudd og dekurlíf Fátt er betra en að dekra dálítið við sig öðru hvoru og gleyma hversdeginum um stund. Dek- urstund má eiga bæði heima eða að heiman, allt eftir efni og aðstæðum hverju sinni. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Mörgum finnst ljúft að fara í andlitsbað sem er bæði slakandi og hreinsandi fyrir húðina auk þess að mýkja hana. Á snyrtistofunni Umo America í stjörnuborginni Beverly Hills er hægt að fara í alvöru lúxus-andlitsbað þar sem andlitið er húðað með 24 karata gullblöndu. Að nota gull til fegrunaraðgerða er ekkert nýtt, það hef- ur verið notað meðal þjóða í margar aldir. Þó er ekki auðvelt að nota gullið því það þarf að leysa upp fyrst til að auðveldara sé til að bera það á húðina. Til að gera þetta notast sérfræðingar Umo America við japanskt náttúruefni sem upprunið er úr soyabaun. Það þykir meira nærandi en önnur efni sem notuð hafa verið saman við gullið hingað til. Fyrst er úði úr efninu borinn tvisvar sinnum á andlitið og því næst er gullinu nuddað inn í húðina þar til það hefur horfið algjörlega og andlit- ið fengið á sig gullinn bjarma. Gyllt andlitsbað Getty Images Súkkulaðinudd ætti að hljóma vel í eyrum þeirra sem finnst súkkulaði gott og gætu hugs- að sér að velta sér upp úr því, svo og að borða af því ógrynni. Ekki er þó víst að sniðugt sé að sleikja út um þar sem súkkulaðinu eða kakómass- anum er yfirleitt blandað sam- an við olíu til að auðveldara sé að dreifa úr því og nudda inn í húðina. Andoxunarefnin úr súkkulaðinu eru nærandi fyrir húðina og olían hjálpar til við að mýkja hana enn meira. Eftir nuddið er því húð- in mjúk og þú ilmar eins og konfektmoli! Súkku- laðinudd er vinsælt úti í hinum stóra heimi en er einnig í boði á snyrtistofum hérlendis. Líkaminn ilmar eins og konfektmoli Mætti bjóða þér glas af víni eða kannski heilt bað af víni? Slíkt er minnsta málið hjá hinni glæsilegu heilsulind Kenwood Inn & Spa í Kali- forníu sem er fyrsta heilsulindin vestra til að bjóða ýmis konar fegr- unarmeðferðir með víni. Svokallaða vínþerapíu eins og Frakkarnir vilja kalla það. Vínber eru full af andox- unarefnum sem eiga að koma í veg fyrir öldrun húðarinnar og er vínberja- þykkni notað í bland við ýmis konar ilmolíur. Blöndunni er síðan hellt út í notalega freyðandi heitan pott þar sem gestir sitja og hafa útsýni yfir vínekrurnar. Það er líka hægt að taka vínáhugann alla leið og láta bera á sig alls konar olíur og vín- berjaþykkni áður en manni er pakk- að inn og efnin látin afeitra líkam- ann og koma blóðrásinni af stað. Varla er annað hægt að segja en skál fyrir því! Skál í botn í baði af víni

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.