SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Qupperneq 42
42 27. júní 2010
Þ
eir Robert De Niro, Al Pacino og Dustin Hoff-
man, eru þrír af fáum útvöldum sem náð hafa
því marki að komast í hóp þeirra bestu og vin-
sælustu. Það var ekki fyrir tilviljun heldur
hæfileika og þessa mögnuðu nærveru, útgeislun eða
hvað við viljum kalla það sem skilur kjarnann frá hism-
inu. Hægt en bítandi risu þeir upp vinsældalistann og
nafn þeirra varð gæðastimpill sem almennt var óhætt að
treysta á.
Svo bregðast krosstré sem önnur, nú er svo komið að
mynd með þremenningunum er ekki lengur fyrirfram
örugg afþreying, æ oftar seinni árin reynast þær von-
brigði. Ástæðan fyrst og fremst sú að þeir eru teknir að
reskjast og henta ekki lengur í eftirsóttustu hlutverkin
og ekki síður að þeir hafa meiri áhyggjur af veskinu en
gæðunum. Öfugt við t.d. Sir Michael Caine, hann er 77
ára og hefur sjaldan verið betri og hlutverkin mögnuð og
við hæfi aldurs leikarans.
Dustin Hoffman
Nú tóku við ótrúlegir áratugir frábærra hlutverka og far-
sældar. Förum fljótt yfir sögu og tínum til þekktustu
verkin hans. Midnight Cowboy (́69); Little Big Man (́70);
Straw Dogs (́71), Papillion (́73), og fyrir frammistöðu sína
í Lenny (́74) sem uppistandarinn Lenny Bruce (́74), fékk
hann þriðju Óskarstilnefninguna.
Tveim árum eftir Watergate-hneykslið fóru þeir Hoff-
man og Robert Redford með hlutverk rannsóknarblaða-
mannanna Carls Bernstein og Bobs Woodward í All the
President́s Men (́76), sama ár kom Marathon Man, og
mótleikarinn sjálfur Lord Laurence Olivier.
Hoffman vann fyrstu Óskarsverðlaunin fyrir Kramer
vs Kramer (́79), og áfram héldu stórhlutverkin að
streyma í hendur hans; Tootsie (82), færði honum 5.
Óskarsverðlauna-tilnefninguna, í kjölfarið kom rómuð
Golden Globe- og Emmy-verðlaunaframmistaða sem
Willy Loman í sjónvarpsgerð Sölumaður deyr (́85.)
Ishtar (́87), var fyrsti stórskellurinn, en strax árið eftir
vann hann sinn glæstasta sigur og flest verðlaun kvik-
myndaheimsins fyrir Rain Man, undir stjórn Barrys Le-
vinson. Sá 10. var áratugur Hollywood-stórmynda á
borð við Dick Tracy (́90); Billy Bathgate (́92); Hook (́92);
Outbreak (́95);, og American Buffalo (́96). 7. Óskars-
tilnefningin kom fyrir Wag the Dog (́97), í framhaldinu
fór okkar maður að slaka á klónni: Sphere, Mad City,
Moonlight Mile (́02) og Confidence (́03), allar ómengað
drasl.
Hagur Hoffmans vænkaðist með Runaway Jury (́03);
Finding Neverland (́04) og I Heart Huckabees (́04). Þeir
Robert De Niro léku saman í Meet the Fockers (́05), vin-
sælli en ómerkilegri aðsóknarmynd, síðan tók að halla
undan fæti. Stranger Than Fiction (́06); Perfume:
The Story of a Murderer (06); Mr. Magori-
um’s Wonder Emporium (́07), voru ekki
miðanna virði Væntanlegar myndir virðast
hæpnar, framhald af Meet the Fockers,
gæti haldið fjárhagnum í lagi.
Al Pacino
Ferill leikarans tók
smávægilega dýfu
á þeim 9., þó sló
hann í gegn í Scar-
face (́83), einnig í
Sea of Love (́89.) Sá
10., byrjaði aftur á móti
vel, með The Godfather
III.; Scent of a Woman og
Glengarry Glen Ross (́92)
(Óskarstilnefningar fyrir
báðar og Óskar fyrir þá fyrr-
nefndu.)
Sá 10. reyndist Pacino góður áratugur með hlut-
verkum í toppmyndunum Carlito’s Way, Donnie Brasco,
Heat (með De Niro); The Insider; Looking for Richard og
The Devil’s Advocate.
Nú tók að fækka um fína drætti (undantekning In-
somnia 0́2), ódýrt, vel launað afþreyingarmoð tók við.
Ocean’s 13; 88 Minutes; Righteous Kill (með De Niro);
S1mOne, Gigli, allar langt fyrir neðan virðingu meist-
arans.
Robert De Niro
1976 lék De Niro á móti Gérard Depardieu í 2000, eftir
Bertolucci, en nafn hans komst á hvers manns varir fyrir
The Deer Hunter (́78).
Á 9. áratugnum óttaðist leikarinn að vera orðinn fast-
ur í gangster-hlutverkum og fór að leika í mynd-
um eins og Brazil, Analyze This, Analyze That,
Showtime, Midnight Run, Meet the Parents og
framhaldsmyndinni Meet the Fockers (́02). Flestar
vinsælar en í slakari gæðaflokki en áhorfendur
voru vanir að sjá hinn mikilsvirta De Niro
Á tímabili dró hann sig í hlé en kom fram í
kraftmiklum gestahlutverkum, líkt og í
mynd Alans Parker, Angel Heart; Wag
the Dog, Jackie Brown, ofl.
Síðasta áratuginn hefur harðnað á
dalnum hvað hlutverkaval snertir:
Ronin, Flawless, 15 Minutes, The
Score, City by the Sea, Hide and
Seek, ofl., sem enginn man lengur.
Þær góðu fréttir voru hins vegar að
berast að ákveðið hefur verið að
gera mynd um „The Rat Pack“,
þar sem gömlu risarnir, De Niro
(sem Dean Martin) og Al Pacino
(Frank Sinatra), fá uppreisn æru.
Þrjú
stjörnu-
hröp
Frægðin er hverful, kvikmyndir
ekki undanskildar. Hitt er verra
þegar stórleikarar virðast áfjáðar í
að tortíma sér eins og stjörnurnar
þrjár sem fjallað er um í dag.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Reuters
Leikstjóri: J. Lee Thompson. Aðalleik-
arar: John Mills, Sylvia Sims, Harry And-
rews, Anthony Quayle.
Það er orðið langt um liðið síðan maður
fór með hálfum huga á þessa bresku perlu
í það hálf-gleymda musteri kvik-
myndanna, Tónabíó. Að óséðu virtist Ice
Cold in Alex engan vegin þrungin töfrum
sem löðuðu ungt fólk í kvikmyndahús á
þeim tíma. Bresk – og þar af leiðandi þjáð
af þeim næringarskorti sem stafar af
nærveru stórstjarnanna. Þá var hún
svart/hvít, sem þótti stór mínus þegar
komið var fram á 7. áratuginn og ekkert
hafði spurst út um innihald hennar eða
ágæti. Var sýnd hérlendis nokkurra ára
gömul, án alls lúðrablásturs og söngs.
Samt sem áður varð þessi forkunnarfína,
spennuhlaðna stríðsádeila ein þeirra
mynda sem sitja hvað fastast í minning-
unni þó árin líði. Sjúkraliðar undir stjórn
Johns Mills verða að komast akandi frá
Líbíu til Alexandríu árið 1942, í miðjum
hildarleik síðari heimsstyrjaldarinnar.
Þetta langa ferðalag tekur á taugarnar:
jarðsprengjur, yfirvofandi árásir óvin-
arins, en ferðalangarnir verða að leggja
leið sína lengi vel um yfirráðasvæði þýska
hersins. Ófærur og sandstormar Sahara
og ekki síst grunur um, að njósnari hafi
blandað sér í hópinn, eru nokkur af
vandamálunum sem steðja að þessu litla
samfélagi sem telur m.a. hjúkrunarkon-
urnar Sylviu Sims og Diönu Clare, lið-
þjálfann Harry Andrews og hinn grun-
samlega ferðafélaga sem dúkkar upp úr
sandinum og segist vera Hollendingur
(Anthony Quayle). Afburðatraust per-
sónusköpun þessara gæðaleikara og sí-
kvik leikstjórn gera þessa fáséðu mynd að
einstakri skemmtun. Hér takast á óttinn
við hið óþekkta og mannleg hlýja og
traust á gömul gildi þó umhverfið sé í
bullandi uppnámi. Mills og sérstaklega
gæðaleikarinn Quayle (sem hlaut að
launum BAFTA-verðlaunin) eru framúr-
skarandi og ber myndin frábært vitni um
snilli Thompsons (Byssurnar í Navarone),
ef hann fékk gott efni í hendur. Vand-
fundin, ráðlegast að panta hana á Ama-
zon, af henni verður enginn svikinn.
Nafn myndarinnar er dregið af bjórnum
sem alkann Mills dreymir um að leið-
arlokum í Alexandríu.
saebjorn@heimsnet.is
Kvikmyndaklassík: Ískaldur í Alexandríu (1958) bbbbm
Átakamynd úr Afríkustríðinu
Ice Cold in Alex er einstök skemmtun.
Kvikmyndir
Dustin Hoffman. Al Pacino.
Robert De Niro.