SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Blaðsíða 45
27. júní 2010 45 Þrjú orð F iona C. Ross er prófessor við félagsmann- fræðideild háskólans í Cape Town. Hún hefur stundað rannsóknir á daglegu lífi í fátækra- hverfum í útjaðri borgarinnar og skoðað sam- skipti íbúanna frá ólíkum hliðum, til að mynda út frá kyni. Rannsóknir Fionu hafa staðið yfir í ein 20 ár en þær hófust árið 1991 í The Park sem þá var ólögleg byggð í útjaðri Cape Town. Hún hóf rannsóknir á ný ár- ið 1999 þegar flutningar íbúanna yfir í skipulagðari byggð í nýju hverfi stóð fyrir dyrum. Rannsóknirnar hefur Fiona nýtt sér í masters- og doktorsverkefnum sínum og hefur nú dregið afrakstur þeirra saman í ný- útkominni bók, Raw Life, New Hope; Decency, housing and everyday life in a post-apartheid community. Fiona, sem er upprunalega frá Zimbabve, segir að á þeim tíma sem hún hóf rannsóknir hafi lítið sem ekkert verið vitað um daglegt líf í hinum gríðarstóru fátækra- hverfum í útjaðri Cape Town. Aðeins ein rannsókn hafði verið framkvæmd á svæðinu sem hún starfaði á og hún var byggð á könnun sem Fiona segir að gefi litla tilfinn- ingu fyrir því hvað þurfi til að lifa í slíku umhverfi. Fiona segir The Park vera mjög lítið hverfi og afar óvenjulegt að því leyti að á tímum aðskilnaðarstefn- unnar bjuggu þar margir sem kallaðir voru litaðir (aðrir en svartir). Það var óvenjulegt að slíkt fólk byggi í hverfunum en þar er og var einnig sambland ólíkra ætt- flokka svartra. Í gegnum tíðina hefur mikið verið reynt að þurrka fátækrahverfin út eða láta fólk flytja úr kofum í hús. Það hefur ekki gengið sem skyldi og nú er nýtil- komin sú hugmynd að bæta aðstöðu fólksins sem býr í hverfunum með salernis- og þvottaaðstöðu og öðru slíku. Fiona segir hér frá reynslu sinni í þremur orðum. Samfélagið Þetta var mjög athyglisverður tími þar sem ég hafði áð- ur unnið í öðrum fátækrahverfum í Cape Town snemma á níunda áratug síðustu aldar. Þá geisuðu mikil átök á milli keppinauta á smárútumarkaðnum, sem er helsta samgönguleið íbúanna. Fólk var myrt og ástandið slæmt en ég hafði unnið í sambandi við tvo samkeppnisaðila á sitthvorum enda sömu götunnar. Loks varð sá endi sem ég vann á of hættulegur til að vinna við og þá fór ég að líta í kringum mig að nýju rannsóknarefni. Þá má segja að ég hafi rekið tána í þröskuldinn á The Park þar sem ég bað um að fá að tala við leiðtoga hverfisins. Hvert hverfi hefur einhvers konar samfélagsnefnd sem sumar hverjar eru formlegri en aðrar og sumar hverjar tengdar stjórnmálaflokkum en aðrar ekki. Sér- staklega á þessum tíma hefði maður ekki látið sér detta í hug að mæta og hefja störf án þess að fá leyfi frá nefnd- inni sem ræddi málið við íbúana og er ferlið frekar flók- ið. Ég þurfti að útskýra fyrir fólkinu hvað ég ætlaði mér að gera og hvernig það myndi koma því til góðs og þetta hef ég þurft að gera á öllum stöðum sem ég hef unnið á. Fólk er ekki endilega alltaf sammála því sem maður ger- ir en á þennan þátt hefur maður formlegt samþykki. Með þessu sýnir maður líka þá almennu kurteisi að virða menningu fólksins. Mér var vel tekið í hverfinu en það sem var mjög óvenjulegt var að leiðtogi þess var kona en í öllum öðrum hverfum höfðu leiðtogarnir ver- ið mjög íhaldssamir Kosha-menn. Hún sagði mér að þau væru að berjast fyrir því að vera áfram á landsvæðinu og sá að það yrði þeim til framdráttar að hafa mig á svæð- inu að gera rannsókn. Mér var mjög vel tekið og ég flutti inn í hverfið árið 1991 og bjó þar í hjólhýsi. Fólk var afar vinsamlegt og sá til þess að ég hefði það gott. Samskipti Rétt eins og gengur með lítil samfélög var samfélagið mjög náið og fólk veit í raun allt of mikið hvað um ann- að. Það veit þegar fólk elskast, rífst, þegar börnin fara ekki í skólann og allt það sem hægt er að vita um fólk. En á sama tíma skapar þetta líka öryggiskennd þar sem fólk fylgist með og passar upp á hvað annað. Samskiptin verða einna erfiðust þegar meðhöndla þarf erfið mál eins og t.d. í tilfellum um kynferðisofbeldi á börnum eða þegar leiðtogi eða nefndarmeðlimur er talinn vera að misnota sér aðstöðu sína. Þá bresta gjarnan sam- skiptin og verða erfið. Ég held að þarna rétt eins og annars staðar verði staða kvenna ætíð tvíræð. Annars vegar er litið upp til þeirra, sérstaklega þarna í hverfinu þar sem konur voru að meirihluta við völd og nutu þannig virðingar. Hið sama er að segja í borgunum en það á rætur að rekja til þess þegar iðnaður Cape Town byggðist á fataframleiðslu og konur höfðu fasta vinnu heldur en karlarnir. Þá voru konurnar álitnar sterkar og hæfar til að framkvæma hluti. Í sveitunum er hins vegar enn langt í land því að konur á bóndabæjum hafa alltaf verið óæðri. Eiginmaðurinn hafði allan rétt og ef hann missti vinnuna eða dó gat konan ekki verið þar lengur jafnvel þó hún hefði unnið á bænum. Konurnar hér dansa því í raun hárfínan línudans þar sem eitt örlítið feilspor getur haft skelfilegar afleiðingar. Annars vegar eru þær hvattar til að vera sjálfstæðar en hins vegar er afar sterk mynd í samfélaginu af hinni sómakæru, heimavinnandi konu sem sér um börnin, heldur heim- ilinu hreinu og er hjálpsöm við nágranna sína. Konur eru sífellt að færast á milli þessara tveggja mótsagna og verða að gæta sín á því hvernig þær færa sig á milli. Heimilisofbeldi er mjög algengt hér í héraðinu þar sem karlar eru snöggir að bregðast við ef þeim finnst konan hafa gengið of langt. Þá er karlmennsku þeirra líka ógn- að þar sem konurnar hafa frekar fasta vinnu en karl- mennirnir oft tímabundna vinnu við byggingarstörf eða ávaxtatínslu og eru veturnir mjög erfiðir þegar slík ígripastörf hverfa algjörlega. Staða þeirra er svo ótrygg að það eina sem þeir geta í raun haft stjórn á eru kon- urnar og er ofbeldið oft ekki langt undan. Stolt Á þeim tíma sem ég bjó í hverfinu kom stolt fólksins fram á ýmsan hátt. Til að byrja með spratt það aðeins af þeirri staðreynd að fólkið gat haldið áfram að búa á svæðinu þó að yfirvöld reyndu að losna við það. Það þótti mikill sigur og sannaði fyrir því að það væri sam- félag. Það felst líka stolt í því að reyna að lifa sóma- samlegu lífi að hluta, t.d. með því að halda híbýlum sín- um fallega útlítandi. Jafnvel þegar aðskilnaðarstefnan var enn við lýði og fólk átti á hættu að vera rekið úr fá- tæklegu húsnæði sínum á hverri stundu gerði það samt fínt og setti blóm í vasa í gluggann. Stoltið kemur líka til af því að geta einfaldlega lifað og skapað samstöðu í jafn-ómögulegum aðstæðum. Ég man ætíð að fyrst þeg- ar ég kom inn í svona fátækrahverfi gat ég ekki skilið hvernig konurnar gætu verið ánægðar í þessum að- stæðum og spjallað, hlegið og sungið saman. En fólk tekur sig einfaldlega saman og hjálpar hvað öðru. Um daginn var ég t.d. kölluð inn í hverfið þar sem barna- verndaryfirvöld ætluðu að taka lítinn dreng af ömmu sinni. En hann fékk nóg að borða, var vel klæddur og gekk í skóla. Það skipti engu þó maturinn og fötin hefðu komið annars staðar að, því að samfélagið hafði tekið ábyrgð á þessu barni. Þá eigum við öll sameiginlegt stolt í því að ala börnin okkar upp, líta vel út og halda vinnunni okkar. Harður heimur Fyrir marga eru aðstæður í fátækrahverfunum nánast ómögulegar en fólk stendur þó þétt saman. Fátækt í þremur orðum Fiona C. Ross bjó um tíma í hjólhýsi í The Park, fátækra- hverfi í útjaðri Cape Town. Þar rannsakaði hún daglegt líf íbú- anna og kynntist baráttu þeirra fyrir tilverurétti sínum. María Ólafsdóttir maria l.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.