SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 50

SunnudagsMogginn - 27.06.2010, Page 50
50 27. júní 2010 G eómetrían innrætti mér formlegt aðhald og vönduð vinnubrögð, að hvoru tveggja hef ég búið síðan. (Eiríkur Smith, 1982) Við upphaf sjötta áratugarins átti geómetr- ísk abstraktsjón eða strangflatarlist talsverðu fylgi að fagna á meðal íslenskra listamanna. Þessi myndgerð hefur raunar líka verið kölluð konkret list því menn vildu forð- ast orðið abstrakt sem vísar til þess að myndin eða formin komi einhverstaðar frá, séu abstraktsjón einhvers. Þeir sem hallir voru undir strangflatarlistina voru hins vegar þeirrar skoðunar að myndflöturinn lúti eigin lögmálum og sæki ekkert útfyrir form og liti. Lögmál forms og litar væru bókstaflegur eða konkret raunveruleiki málverks- ins. Vissulega voru ekki allir sammála þessari skilgrein- ingu, nokkuð birtist af skrifum og talsvert frjóar umræður urðu um eðli og inntak listarinnar, til dæmis í Vaka, tíma- riti um menningarmál, og Birtingi auk þess sem greinar birtust í dagblöðum. Talsverður hópur listamanna á Norðurlöndunum voru dyggir fylgismenn strangflat- arlistarinnar allt frá því um 1910. Stefnan barst þó ekki hingað að ráði fyrr en eftir síðari heimsstyrjöld og þá einkum frá París. Á meðal þeirra listamanna sem komu frá París í upphafi sjötta áratugarins var Eiríkur Smith. Eiríkur er fæddur árið 1925. Hann ólst upp í Hafnarfirði hjá móður sinni og stjúpföður ásamt sex hálfsystkinum. Fyrstu árin bjó fjölskyldan í Straumi en var flutt inn til Hafnarfjarðar þegar Eiríkur hóf skólagöngu. Það duldist fáum að hann var góður teiknari og áhuginn leyndi sér ekki þar sem hann var síteiknandi. Eiríkur talar um að hann hafi notið teikningarinnar þegar hann fór í Barna- skóla Hafnarfjarðar og að þar hafi verið litið á hann sem eins konar undrabarn í teikningu. Áhugi og stuðningur kennara og fjölskyldu voru hvatning til að halda áfram á myndlistarbrautinni þó hugmyndin um myndlistarnám væri fjarlæg í huga alþýðudrengs í Hafnarfirði. Hann fór snemma að vinna og stundaði ýmis verkamannastörf enda fátt annað í boði fyrir fullfrískan ungan mann. Teiknikompan fylgdi honum ætíð og draumurinn um að læra myndlist yfirgaf hann ekki. Með góðra manna hjálp komst hann í kvöldskóla í Reykjavík haustið 1939. Kenn- arar hans þar voru myndlistarmennirnir Finnur Jónsson og Jóhann Briem. Eftir bretavinnu og síldarævintýr var kominn tími til að sækja um Handíða- og myndlistaskólann. Eiríkur hóf Myndlist Ólöf Kristín Sigurðardóttir olof.sig@hafnarfjordur.is Formlegt aðhald – Fyrstu skrefin á langri leið Tíðarandinn leiðir menn oft á óvæntar brautir sem geta orðið að spennitreyju þó þroski og persónuleg gróska fylgi í kjölfar- ið. Árið 1957 kvaddi Eiríkur Smith strangflatarlistina og brenndi stóran hluta mynda sinna í malargryfju í Hafnarfirði. Þau fáu verk sem enn eru til standa þó fyrir sínu og eru orðin hluti af íslenskri listasögu sem vert er að skoða. Í Hafnarborg stendur nú sýning á verkum Eiríks frá þeim tíma. Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.