Morgunblaðið - 02.02.2010, Blaðsíða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010
því sem var að gerast á líðandi
stundu. Má vera að stundum hafi ég
verið nokkuð erfiður tengdasonur.
Einkar minnisstæð er mér ferð þeg-
ar fjölskyldan fór til Ítalíu og við fór-
um tvívegis þvert yfir það mjóa land
ásamt því að dvelja á nokkrum stöð-
um þar. Var þá öllum, eiginkonu,
tveim börnum og tengdamömmu
ásamt hafurtaski troðið inn í Fiat
Uno og keyrt af stað.
Á þessum fjórum vikum upplifðum
við margt afar merkilegt og
skemmtilegt en stundum kom það
fyrir að við Olga vorum ekki alveg
sammála, m.a. um uppeldisaðferðir
og ökuhraða. Hið síðarnefnda leysti
ég með því að aka fyrst fremur hægt
en auka svo við hraðann þannig að
lítið bar á. Þá urðu allir ánægðir.
Þegar við Olga rifjuðum svo upp
þessa ferð síðar mundi hún ekkert
nema hið jákvæða og var þetta með
skemmtilegri ferðum sem hún hafði
upplifað. Þetta tel ég lýsa Olgu vel
því þótt hennar líf hafi ekki alltaf ver-
ið dans á rósum hafði hún ætíð afar
jákvæða afstöðu til lífsins.
Olga var einkar glæsileg kona og
ætíð sérlega vel klædd. Hún hélt
reisn sinni og sjarma til dauðadags
Hún var líka frábær amma og
langamma.. Blessuð sé minning
hennar.
Magnús Skúlason.
Vart er hægt að hugsa sér fallegra
og betra ævikvöld en það sem Olgu
Þorbjörgu Hallgrímsdóttur auðnað-
ist. Allt til æviloka gat hún búið á
sínu eigin heimili þótt á tíræðisaldri
væri, umvafin aðdáun og virðingu en
naut auk þess umhyggju Sylvíu,
dóttur sinnar, í næsta nágrenni. Og
loks að fá að deyja á góðum degi í
faðmi ástvina án þjáningar og
þrauta.
Olga hafði þó ekki farið varhluta af
erfiðleikum og sorg á langri ævi en
bar sig ávallt af reisn og þokka. Hún
var fagurkeri, sem á fyrri hluta lið-
innar aldar mótaðist af siðum og
venjum í hálfdanska bænum Akur-
eyri en ekki síður í Kaupmannahöfn
þar sem hún dvaldi um skeið við nám
og störf. Þar hlaut hún veganesti sem
entist ævina á enda. Olga var alltaf
að búa til eitthvað fallegt og hafa
margir notið listfengis hennar langt
út fyrir fjölskyldu- og vinahópinn.
Olga bjó yfir þeim hæfileika að sjá
atburði og aðstæður frá óvæntu sjón-
arhorni og gat verið afar fundvís á
hið skondna og skemmtilega í mann-
legum samskiptum og athöfnum.
Hún hafði því gjarnan eitthvað til
málanna að leggja – eitthvað sem
þeir tóku eftir sem áttu við hana
orðastað.
Fyrir fáeinum árum dvaldi ég með
Sylvíu nokkra daga í húsinu sem
Olga ólst upp í við Hafnarstræti á
Akureyri og kynntist þá bernsku-
heimi Olgu sem varðveist hefur svo
vel í ljósmyndum Hallgríms föður
hennar og ég skynjaði svo sterkt
þessa daga. Þessi heimanfylgja hefur
án efa verið sterkur og óbrotgjarn
þráður í lífsferli Olgu. Ég þakka nú
af alhug ótal skemmtilegar samveru-
stundir með henni, flestar á Bakk-
astígnum hjá Sylvíu, en líka hér fyrir
vestan og austur á landi sem við
dvöldum eitt sinn og ferðuðumst um
firði og héruð. Vorferðir með Olgu í
gróðurhús eru minnisstæðar og ekki
síður ferðir í „magasín“ þar sem hún
af fagmennsku spáði í vefi og vöru-
gæði. Meðfædd smekkvísi hennar og
öruggt skynbragð á allt er laut að
fatnaði og klæðaburði var einstakt og
hafði mótast í starfi fyrr á árum, m.a.
í tískuversluninni Markaðnum áður
en hún varð bankastarfsmaður.
Mér er afar dýrmæt minningin um
síðustu fundi okkar Olgu. Við tvær
sátum skömmu fyrir síðustu jól á fal-
lega heimilinu hennar á Vesturgöt-
unni og spjölluðum í rólegheitum um
líðandi stund og liðna daga. Lífssýn
Olgu enn sem fyrr dálítið sposk og
spyrjandi en viðmótið ávallt jafn
hlýtt og notalegt. Hinn háa aldur var
ómögulegt að greina hvorki af útliti
né orðfari. Það er mikið lán að hafa
fengið að kynnast fólki eins og henni.
Um leið og ég kveð heiðurskonuna
Olgu Þorbjörgu og þakka langa vin-
áttu votta ég fjölskyldu hennar inni-
lega samúð.
Jóhanna Kristjánsdóttir.
Kveðja frá Klæðskera-
og kjólameistarafélaginu
Láttu guðs hönd þig leiða hér,
lífsreglu halt þá beztu:
blessað hans orð, sem boðast þér,
í brjósti og hjarta festu.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Selma Gísladóttir formaður.
Merkiskona hefur gengið sitt ævi-
skeið. Olga var móðir góðrar vinkonu
minnar en varð einnig vinkona mín.
Hún átti ekki síður vini og vinkonur
af yngri kynslóð og segir það nokkuð
um að hún hafi verið ung í anda í
bestu merkingu þeirra orða, kraft-
mikil kona full af áhuga fyrir tilver-
unni. Olga bjó yfir mikilli yfirsýn og
þroska þess hugar sem leitar sífellt
og spyr og spurningarnar voru
margar. Þjóðfélagsmál voru henni
hugleikin og þar fylgdist hún vel með
til hins síðasta. Skoðanir hennar þar
voru einarðar og byggðust á rótfastri
réttlætistilfinningu og sannfæringu
hennar um að farsælast væri að í
samfélaginu ríkti félagsleg samstaða
og jöfnuður.
Samræður sem undirrituð naut
góðs af við Olgu snerust oft um slík
mál og það sem var að gerast í sam-
félaginu. En einnig snerust þær um
svo margt annað sem gaman var að
ræða við hana, hvort sem var í símtali
eða á Vesturgötunni. Í stofunni
hennar flaug tíminn gjarnan í spjalli
yfir litlu púrtvínsglasi og konfekt-
mola og oft var Olga sjálf komin á
flug í áköfum spurningum sínum og
vangaveltum.
Eftir uppvaxtarárin á Akureyri fór
Olga 17 ára gömul til Kaupmanna-
hafnar að skoða heiminn og læra.
Hún stundaði þar nám hjá kjóla-
meistara en hæfileikar hennar voru
fjölbreyttir, ekki síst í öllu sem laut
að hönnun og handverki. Þar var
framúrskarandi næmt auga fyrir lit-
um og formi sem kom fram í öllu sem
hún bjó til. Enda eru peysurnar ein-
stakar sem hún hannaði af fingrum
fram og einnig ótalmargt annað sem
henni datt í hug að búa til handa vin-
um og kunningjum eða bara fyrir
einhverja aðra.
Vissulega var myndlistin áhuga-
mál Olgu þar sem skoðað var og
spekúlerað af hreinskilni og opnum
hug. Lífsgleði og kjarkur var það
sem hún miðlaði og að kveðja hana er
stund saknaðar en líka þakklætis
fyrir allar góðu samverustundirnar.
Jóhanna Bogadóttir.
Alla daga eins og rós
auðnu hagur blómgist,
gleði fagurt lýsi ljós,
lífs þíns saga fái hrós.
(J.J.)
Kær vinkona mín, Olga Hallgríms-
dóttir, lést 16. janúar sl. Aðeins
tveimur dögum áður hafði ég setið
veislu á heimili hennar á Vesturgöt-
unni í tilefni 93ja ára afmælis hennar
ásamt fjölskyldu og vinum. Þetta var
yndisleg samverustund, allir glaðir
og kátir og afmælisbarnið Olga alltaf
jafn ungleg og glæsileg og engan
hefði grunað að kveðjustundin væri í
nánd. En ævitíminn er óútreiknan-
legur. Lífið kennir okkur að njóta
hvers dags, sem gæti orðið sá síðasti
á hvaða aldri sem fólk er.
Ég var svo lánsöm að kynnast
Olgu, þegar við unnum saman í Út-
vegsbankanum við Lækjartorg á ár-
um áður og eignast vináttu hennar
alla tíð. Olga var einstaklega vel
gerð, mikill vinur vina sinna og hafði
slíka skapgerð og létta lund, sem
hafði svo góð áhrif á alla, sem hún
átti samskipti við.
Ung hafði hún dvalið í Kaup-
mannahöfn um skeið og numið klæð-
skeraiðn af þvílíku listfengi, að allt
sem laut að hannyrðum síðar á æv-
inni varð að listagripum í höndum
hennar. Greiðvikni var henni í blóð
borin og ætíð var hún reiðubúin til
aðstoðar við sauma, ef á þurfti að
halda, enda bar hún höfuð og herðar
yfir samferðafólk sitt hvað smekkvísi
snerti. Henni verður aldrei fullþökk-
uð hennar sérstaka lipurð og trúlega
mæli ég fyrir munn margra sam-
starfsmanna. Þyrfti einhver að senda
gjöf, þá var leitað til Olgu og hún bjó
um gjöfina þannig að pakkinn varð
að listaverki.
Komur mínar voru tíðar, þegar
Olga bjó á Bollagötunni og á ég ljúfar
minningar frá samverustundum á
hlýlegu og vistlegu heimili hennar.
Hún var bókhneigð og fjöldi góðra
bóka prýddi heimilið. Myndlist var
einnig í hávegum höfð að ógleymdri
blómaræktinni. Olga var engum lík
með gjafir til vina sinna. Eitt sinn
færði hún mér handprjónað ullarsjal
hvítt að lit með fallegu mynstri. Það
kemur að góðum notum á vetrar-
kvöldum við sjónvarpið og hlýja þess
yljar mér og minnir á þessa einstöku
norðlensku höfðingskonu og ómælda
gestrisni hennar. Gæfa mín er fólgin
í því að hafa eignast góða vini á lífs-
leiðinni og Olga mín var sannarlega í
þeirra hópi.
Sylvía, Hallgrímur og fjölskyldur.
Ég votta ykkur mína dýpstu samúð
við fráfall ykkar kærleiksríku móður,
sem verður mér ætíð minnisstæð.
Blessuð sé minning Olgu Hallgríms-
dóttur.
Sigurlaug Ásgrímsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
PÉTUR FRIÐRIKSSON,
Sunnubraut 6,
Þorlákshöfn,
andaðist á Heilbrigðisstofnum Suðurlands, Selfossi
laugardaginn 30. janúar.
Guðlaug Guðnadóttir,
Ingveldur Pétursdóttir, Andrés Kristjánsson,
Sesselja Sólveig Pétursdóttir,
Guðni Pétursson, Hrönn Sverrisdóttir,
Friðrik Pétursson, Steinunn Gísladóttir,
Magnús Jón Pétursson, Sigurrós Hulda Svanhólm,
afa- og langafabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
BIRNA BJÖRNSDÓTTIR,
Ægisgötu 15,
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð að morgni sunnudagsins
31. janúar.
Útförin fer fram í Akureyrarkirkju fimmtudaginn
11. febrúar kl. 13.30.
Axel Jóhannesson,
Ásdís Axelsdóttir Colbe, Anker Colbe,
Björn Þröstur Axelsso, Anna Halldóra Karlsdóttir,
Steingerður Axelsdóttir,
Jóhannes Axelsson, Sigrún Arnsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Yndislegur sonur okkar, bróðir, barnabarn og
frændi,
BIRGIR ELÍS BIRGISSON,
Logafold 117,
Reykjavík,
lést föstudaginn 29. janúar.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 5. febrúar kl 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna.
Birgir Guðmundsson, Guðrún Elísdóttir,
Andri Steinn Birgisson,
Birna Kolbrún Birgisdóttir,
Guðmundur Óskarsson, Sjöfn Kjartansdóttir
Birna Júlíusdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ERLA STEFÁNSDÓTTIR,
kennari,
Digranesvegi 52,
Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 28. janúar.
Útförin fer fram frá Garðakirkju fimmtudaginn
11. febrúar kl. 15.00.
Hjartans þakkir sendum við til starfsfólks 11E og líknardeildar fyrir
einstaka umönnun.
Sigríður Huld Konráðsdóttir, Árni Guðmundsson,
Stefán Snær Konráðsson, Valgerður J. Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍN SVAVA SIGURÐARDÓTTIR,
Skaftahlíð 42,
lést sunnudaginn 31. janúar.
Jarðaför auglýst síðar.
Bergsteinn Ragnar Magnússon, Else M. Magnússon.
Ragnhildur Magnúsdóttir, Kristinn Eymundsson,
Sigrún Magnúsdóttir,
Magnús Svavar Magnússon, Hafdís Magnúsdóttir,
Margrét Halla Magnúsdóttir, Hafsteinn Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn , faðir, afi og langafi,
EINAR INGVARSSON,
Mávahrauni 25,
lést að Hrafnistu í Hafnarfirði, sunnudaginn
31.janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sólveig Stígsdóttir Sæland.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma og lang-
amma,
SIGURLAUG KRISTJÁNSDÓTTIR,
Lullý
Eyjavöllum 2,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
miðvikudaginn 27. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn
4. febrúar kl. 13.00.
Svavar Þorsteinsson
Kristján Þór Svavarsson
Stefanía Therese Kristjánsdóttir, Hjalti Pálmason
Svavar James Kristjánsson,
og barnabarnabörn.