Morgunblaðið - 02.02.2010, Side 27

Morgunblaðið - 02.02.2010, Side 27
Menning 27FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010 VINNU við nýja íslenska listasögu miðar vel og stefnt er að útgáfu á verkinu í fimm bindum síðar á árinu, að sögn ritstjóra verksins, Ólafs Kvaran, fyrrverandi forstöðumanns Listasafns Íslands, en hann er pró- fessor í listasögu við mennta- vísindasvið Háskóla Íslands. Forlagið mun gefa verkið út í sam- vinnu við Listasafn Íslands. „Vinna er í fullum gangi. Bæk- urnar eru í hönnunarferli, ljós- myndatökum er að mestu lokið og verið er að undirbúa ýmsa þætti í sambandi við prentferlið,“ segir Ólaf- ur. „Þetta verða fimm bindi og fjallað er um íslenska listasögu síðan á seinni hluta 19. aldar fram til dagsins í dag.“ Hann segir að bækurnar verði í myndarlegu broti, sem hæfir metn- aðarfullri listasögu og muni auk fræðilegrar umfjöllunar verða bornar uppi af fjölbreytilegu myndefni. Fjórtán höfundar rita listasöguna, höfundarnir skrifa aðgreinda kafla og yfirleitt koma þrír að hverju bindi. „Útgáfa listasögunnar er sam- vinnuverkefni Listasafns Íslands og Forlagsins, sem gefur verkið út. Þetta er samvinnuverkefni og ég er fulltrúi listasafnsins,“ segir Ólafur. „Listasafnið ber ábyrgð á höfundum og hinum fræðilega þætti. Þetta er stærsta rannsóknarverkefni sem safnið hefur ráðist í. Starfsmenn safnsins koma að hinum ýmsum þátt- um og eru mikilvægir þátttakendur, ásamt starfsfólki Forlagsins, í að móta þessa vinnu alla.“ „Stefnt er að útgáfu verksins í haust,“ segir Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins, þegar hann er spurður um útgáfuna. efi@mbl.is Íslenska listasagan er væntanleg í haust Verða fimm bindi Ritstjórinn Ólafur Kvaran prófess- or ritstýrir nýju listasögunni. PROCESSIONS, plata með verkum Daníels Bjarna- sonar, kemur út í dag um allan heim á vegum plötufyr- irtækisins Bed- room Community, en á plötunni er meðal annars píanókonsertinn Processions þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson leikur með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands. Fyrsti dómurinn um plötuna hefur þegar birst ytra, en það var í vefritinu The Silent Ballet, thesilentballet.com, sem fjallar helst um framúrstefnu- og tilraunatónlist. Í umsögninni er það rifjað upp að Daníel átti verkið All Sounds to Silence Come á síðustu plötu Ísafoldar, en þó það verk hafi verið framúrskarandi þá slái Process- ions það út. Í dóminum segir gagnrýnandinn, Richard Allen, meðal annars: „Bjarnason, sem er rétt orðinn þrí- tugur, nýtur þess að vera uppi á öld stafrænnar tækni því fyrir vikið er líklegt að hann lifi að sjá það að menn kunni að meta verk hans, ólíkt for- verum hans í klassíkinni. Processions á það skilið að ryðja Daníel braut um heim allan; hún hljómar sem eldur og innsæi, tónlistarleg birtingarmynd skipulagðs bruna.“ Eldur og innsæi Processions lofuð Daníel Bjarnason NÝJASTA sýn- ing breska mynd- listarmannsins Michael Landy hefur vakið mikla athygli. Sýningin nefnist Art Bin og er í South London Gallaríinu í sam- nefndi borg. Eins og felst í heiti sýn- ingarinnar, Ruslatunnan, hefur Landy breytt sýningarrýminu í risa- stóra ruslatunnu og býður fólki að fylla hana af misheppnaði myndlist sem verður grafin í jörð, á ruslahaug- unum, þegar sýningunni lýkur. Það vakti ekki litla athygli þegar fyrstu verkunum var hent í tunnuna, þar sem sum brotnuðu en önnur hlóð- ust upp. Þetta voru verk eftir vini og kollega Landys, það á meðal hin kunnu Damien Hirst, Söru Lucas og Gillian Wearing. Þau hentu verkum sem mörgum sýndust ágæt, úr mynd- röðum sem hafa selst fyrir tugi millj- óna króna. Almenningi er boðið að fleygja misheppnuðum verkum sín- um í tunnuna. Myndlistin í ruslatunnu Michael Landy ÚLFAR Bragason, rannsókn- arprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, flytur í dag, þriðju- dag, erindi í hádegisfyrir- lestraröð Sagnfræðingafélags- ins. Fyrirlestraröðin ber heitið Hver er dómur sögunnar? en erindi Úlfars nefnist „Útlent vald oss yfir dynur – Ísland hefur jarl! – Eftirmæli Giss- urar Þorvaldssonar“. Erindið flytur hann í fyrirlestrasal Þjóðminja- safns Íslands kl. 12.05. Úlfar fjallar um það hvort dómur sögunnar yfir Gissuri Þorvaldssyni hafi breyst í sagnaritun síð- ustu 50 ára. Sagnfræði Eftirmæli Gissurar Þorvaldssonar Úlfar Bragason „HJÁ Händel í Brook stræti“ er yfirskrift tónleika kammer- hópsins Nordic Affect, sem haldnir verða innan Tíbrár- tónleikaraðar Salarins, í kvöld þriðjudag, klukkan 20.00. Á tónleikunum verður gest- um boðið á ímyndaða tónleika á heimili Händels í Brookstræti í London, en tónskáldið bjó þar frá árinu 1723 allt fram til hinsta dags. Tónlistarherbergi hans rúmaði um 30 manns. Flytjendur Nordic Affect eru Halla Steinunn Stefánsdóttir, Hanna Loftsdóttir og Guðrún Ósk- arsdóttir. Sérstakur gestur er Marta Guðrún Halldórsdóttir, sópransöngkona. Tónlist Heilsa upp á Händ- el í Brook stræti Marta Guðrún Halldórsdóttir LJÓSMYNDASÝNINGIN Ís- lendingar verður opnuð í Þjóð- menningarhúsinu á morgun, miðvikudaginn 3. febrúar. Á sýningunni er úrval af myndum úr samnefndri bók eftir þau Unni Jökulsdóttur rithöfund og Sigurgeir Sig- urjónsson ljósmyndara sem kom út árið 2004. Bókin var gefin út á fjórum tungumálum og hefur hlotið fádæma við- tökur, bæði hér á landi sem og erlendis. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Sýningin verður uppi í Þjóðmenningarhúsinu út árið. Hún var áður sýnd á frönsku hátíðinni Les Boréales – Un festival en Nord. Ljósmyndun Íslendingar í Þjóð- menningarhúsinu Sigurgeir við eina ljósmyndina. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Í NÓVEMBER síðastliðnum var verkið Tómið, The Void, flutt á jap- anskri menningarhátíð í París, en verkið sömdu þeir saman Sverrir Guðjónsson og japanski slagverks- leikarinn heimskunni Stomu Yama- sh’ta. Í verkinu steyptu þeir Sverrir og Yamash’ta saman fornum íslensk- um sönglögum og kvæðum, japanskri nútímatónlist, zen-búddistasöng og slagverki, en franska sjónvarpsstöðin Arte gerði heimildarmynd um tilurð verksins og síðan voru tónleikarnir einnig kvikmyndaðir. Sverrir segir að þeir Yamash’ta og hann hafi tekið að ræða hugsanlegt samstarf fyrir þremur árum og fljót- lega hafi komið að verkinu líbansk- franski leikstjórinn Jacques Debs sem hafði áhuga á að fylgja sköpunar- ferlinu frá upphafi til enda. Debs fékk Arte til að styrkja verkefnið og gerði Sverri kleift að fara til Japan fyrir tveimur árum og undirbúa Tómið með Yamash’ta. Togið frá kjarnanum „Það var í þeirri ferð sem við átt- uðum okkur á hvert við vildum stefna og hvernig væri best að fara inn í verkefnið, við ákváðum að byggja það á því að farið væri inn í völundarhús, labyrinth, inn á einhvers konar steinaslóð sem ferðalangur fetar sig eftir og verður táknrænt ferðalag fyr- ir lífið þar sem maður þekkir ekki leiðina en verður að feta sig eftir slóð- inni og nálgast hægt og bítandi ein- hvern kjarna, segul, sem dregur mann áfram – ef maður lærir að hlusta opnast skynfærin til að finna togið frá kjarnanum.“ Sverrir segir að þeir Yamash’ta hafi byggt töluvert á spuna sín á milli, en hann hafi líka unnið mikið í radd- tækni til að komast inn í hljóðheim steinanna sem Yamash’ta leikur á, enda sé svo mikið af yfirtónum í stærri steinunum að það sé ekki leng- ur um tónskala að ræða. „Ég fór því út í þróunarvinnu með röddina og stúderaði yfirtónasöng, raddskúlptúr og jafnvel barkasöng; mig langaði að byggja upp tónforða, finna nýja fleti til viðbótar við kontratenórröddina, að finna hinn endann á regnboganum, fara inn í dýptina, þannig að ég hefði allan skalann.“ Þeir Sverrir og Yamash’ta voru síðan í stöðugu sambandi að móta Tómið og síðastliðið vor dvaldi hann síðan í Japan í mánuð „þar sem við sprengjum okkur afturábak í gegn- um miklahvell og röðum brotunum síðan saman“. Í sumar kom Ya- mash’ta síðan hingað með fylgdarliði og kvikmyndatökumönnum frá Arte. Tómið var svo flutt í París í haust, eins og getið er, 9. nóvember síðast- liðinn, og kvikmyndað í bak og fyrir. Með þeim Sverri og Yamash’ta komu fram ýmsir hljóðfæraleikarar, fjórir kyrjandi zen-meistarar og einnig sýr- lensk söngkona, Noma, sem Sverrir segir að hafi komið inn með sinn ara- bíska heim; „það mættust því nokkrir heimar í einum brennipunkti og þá kom í ljós að þetta er einn og sami heimurinn, við höldum að heimarnir séu margir, en í hnotskurn er heim- urinn einn.“ Heimurinn er einn  Sverrir Guðjónsson vann tónverk með japanska slagverksleikaranum Stomu Yamash’ta  Verkið var frumflutt á japanskri menningarhátíð í París Segull Sverrir Guðjónsson og japanski slagverksleikarinn Stomu Yamash’ta. Stomu Yamash’ta vakti fyrst athygli í heimalandi sínu sem tónlistarmaður um 1970. Hann stofnaði síðan hljóm- sveitina Go 1976 og fékk til liðs við sig þá Steve Winwood, Al Di Meola, Klaus Schulze og Michael Shrieve. Fyrsta plata Go, samnefnd sveitinni, varð mikil metsöluplata 1976 og næsta hljóðversplata, Go Too, seldist líka bráðvel, en í kjöl- far hennar dró Yamash’ta sig útúr tónlistinni að sinni, flutt- ist til heimaborgar sinna, Kyoto, og dvaldi í búdda- klaustri um hríð. Hann hefur síðan samið tónlist fyrir fjölda kvikmynda, leikverka og gefið út sólóskífur. Þess má geta að hann samdi tón- verk með Ragnhildi Gísladótt- ur sem flutt var í Skálholti og á Listahátíð í Reykjavík fyrir fimm árum og síðar gefið út á plötu. Fjarri heimsins glaumi „Stórt er fallegt“ segir hann við vís- indamanninn og skipar honum að senda risastór- an mat af himnum ofan 33 »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.