Morgunblaðið - 02.02.2010, Page 25

Morgunblaðið - 02.02.2010, Page 25
Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010 Sudoku Frumstig 9 5 7 3 1 1 8 9 4 7 1 5 1 6 8 7 6 4 8 5 8 9 3 3 6 7 9 5 7 4 7 2 1 6 7 9 2 6 1 5 2 6 9 3 9 7 3 5 9 6 1 7 2 6 5 2 4 2 3 8 4 1 3 2 5 7 8 9 4 2 3 3 7 8 5 1 8 1 5 4 5 7 8 1 6 9 2 3 2 6 1 9 3 5 8 7 4 9 3 8 2 4 7 5 6 1 5 9 4 7 2 1 6 3 8 8 2 3 6 5 4 7 1 9 7 1 6 3 8 9 2 4 5 3 7 5 1 6 8 4 9 2 1 8 9 4 7 2 3 5 6 6 4 2 5 9 3 1 8 7 3 9 8 5 2 6 1 7 4 7 4 6 1 8 9 2 3 5 2 1 5 3 7 4 6 8 9 4 5 1 7 6 3 8 9 2 6 7 2 4 9 8 3 5 1 8 3 9 2 1 5 7 4 6 5 6 3 8 4 1 9 2 7 9 8 7 6 5 2 4 1 3 1 2 4 9 3 7 5 6 8 5 8 3 4 1 2 7 6 9 7 4 2 9 6 8 5 1 3 6 9 1 5 7 3 4 2 8 3 6 8 1 5 7 2 9 4 9 1 4 8 2 6 3 5 7 2 7 5 3 9 4 1 8 6 8 3 9 2 4 5 6 7 1 4 5 6 7 8 1 9 3 2 1 2 7 6 3 9 8 4 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 2. febrúar, 33. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: Sá sem vill elska lífið og sjá góða daga, haldi tungu sinni frá vondu og vörum sínum frá að mæla svik. (1Pt. 3, 10.) Manchester United vann verð-skuldaðan sigur á Arsenal í toppslagnum í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi. Um það er engum blöðum að fletta. Þeir Fergusynir léku agaðan varnarleik og beittu banvænum skyndisóknum, með við- undrið Wayne Rooney og Nani sem bestu menn. Knattspyrnan verður ekki skilvirkari. Úrslitin eru Arsenal mikil von- brigði enda gerði ósigurinn vonir liðsins um meistaratitilinn nánast að engu. Lærisveinar Arsènes Wen- gers léku illa í vörn og sókn og með slíkri frammistöðu vinna menn ekki kappleiki, allra síst gegn Manchest- er United. x x x Sá óvani sparkskýrenda að talaum „drengi á móti mönnum“, þegar Arsenal tapar illa, er hins veg- ar orðinn hvimleiður en Hörður Magnússon greip einmitt til þeirrar einföldu skýringar eftir leikinn á Stöð 2 Sport 2. Ef til vill átti þetta við á síðasta tímabili en ekki núna. Meðalaldur byrjunarliðs Arsenal var 25,6 ár en meðalaldur byrjunarliðs Manchester United 27,3 ár. Inni í því eru öldungarnir Edwin van der Sar (39 ára) og Paul Scholes (35 ára). Þetta er óverulegur munur. Nema drengir verði skyndilega að mönn- um við 26 ára aldur! x x x Mögulega eru menn að tala umholdlegt atgervi þegar þeir grípa til þessa frasa. Það átti vissu- lega við um Arsenal á köflum í fyrra en engin dæmi eru um það í vetur að andstæðingarnir hafi gengið yfir lið- ið – í bókstaflegri merkingu. Þannig vann Arsenal tvo góða sigra á Bolton Wanderers á dögunum – liði sem er líkamlega sterkara og leikur mun fastar en Manchester United – og það án síns líkamlega sterkasta manns, Alex Songs. Ósigur Arsenal gegn Manchester United á sunnudaginn hefur hvorki með aldur leikmanna né holdlegt at- gervi þeirra að gera. Arsenal lék ein- faldlega illa í leiknum og gerði af- drifarík taktísk mistök. Þess vegna tapaði liðið. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 Júðana, 8 hlemmarnir, 9 starfið, 10 umfram, 11 forföðurinn, 13 þekkja, 15 hlaup- astörf, 18 gagnslausa, 21 þar til, 22 líffærin, 23 framleiðsluvara, 24 kompásar. Lóðrétt | 2 kveða, 3 kvendýrið, 4 hrekk, 5 ferskan, 6 ljóma, 7 röska, 12 veiðarfæri, 14 bókstafur, 15 bráðum, 16 eftirskrift, 17 áma, 18 reykti, 19 fiskinn, 20 ójafna. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 trega, 4 hrauk, 7 kofan, 8 gunga, 9 set, 11 ráma, 13 orga, 14 fljót, 15 kufl, 17 assa, 20 arg, 22 tóm- an, 23 atóms, 24 móður, 25 aflar. Lóðrétt: 1 tekur, 2 elfum, 3 agns, 4 hægt, 5 annar, 6 krafa, 10 erjur, 12 afl, 13 ota, 15 kætum, 16 fumið, 18 stóll, 19 ansar, 20 anar, 21 gata. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c5 4. cxd5 exd5 5. Rf3 Rc6 6. g3 Rf6 7. Bg5 cxd4 8. Bxf6 Dxf6 9. Rxd5 Dd8 10. Rf4 Bb4+ 11. Rd2 0-0 12. Bg2 He8 13. 0-0 Bd6 14. Rd3 Bg4 15. He1 Hc8 16. a3 h5 17. Rf3 Dd7 18. Da4 a6 19. Hac1 h4 20. Rc5 Bxc5 21. Hxc5 h3 22. Bh1 d3 23. e3 d2 24. Hd1 Staðan kom upp á Kornax-mótinu, Skákþingi Reykjavíkur 2010, sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Lenka Ptácníková (2.315) hafði svart gegn Jóhanni H. Ragnarssyni (2.140). 24. … Re5! í framhaldinu ræður hvítur ekki við að riddari hans sé leppur samhliða máthótunum uppi í borði. 25. Dxd7 Rxd7 26. Hxc8 Hxc8 27. Kf1 Hc1 28. Ke2 Hxd1 29. Kxd1 Re5 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Tvímenningur Bridshátíðar. Norður ♠8 ♥K10854 ♦G8542 ♣Á4 Vestur Austur ♠G10543 ♠D2 ♥G73 ♥D962 ♦KD8 ♦Á63 ♣D10 ♣G985 Suður ♠ÁK976 ♥Á ♦107 ♣K7632 Suður spilar 3♣. Lengst af leit út fyrir íslenskan sigur í tvímenningi Bridshátíðar, því Júlíus Sigurjónsson og Þröstur Ingimarsson tóku snemma góða forystu og virtust ósnertanlegir í fyrsta sætinu. En þeir félagar mættu mótlæti á síðustu metr- unum og upp á tindinn skutust Svíinn Peter Fredin og Gary Gottlieb frá Bandaríkjunum. Svona er lífið við spilaborðið. Áhorfendur á Bridgebase fengu hins vegar gott tækifæri til að fylgjast með Þresti og Júlíusi, sem voru mest allt mótið til sýnis á fyrsta borði. Þröstur spilaði laufbútinn að of- an vel. Vestur tók tígulhjón í byrjun og spilaði þriðja tíglinum. Þröstur tromp- aði, tók ♠Á og stakk spaða. Lagði nið- ur trompás, fór heim á ♥Á, tók svörtu kóngana og sendi svo austur inn á lauf. Í borðinu beið ♥K með frítígul sér við hlið. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Maður er aldrei nógu var um sig þegar sleipir sölumenn eru annars vegar. Gættu þess bara að láta það ekki fara í taugarnar á þér því þá er voðinn vís. (20. apríl - 20. maí)  Naut Fólk sem lítur upp til leitar til þín. Sérhvert markmið er mikilvægt ef því er sinnt af ákafa. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Afþreying hefur verið þér efst í huga á síðustu vikum. Til þess að þú miss- ir ekki móðinn er gott að hafa ánægju af öllu saman. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þér líður eins og þú sért barn í annað sinn og því hentar dagurinn sér- staklega vel til hvers konar sköpunar. Sýndu þolinmæði og sannaðu þitt mál með rökum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú hugsar ekki um annað en við- skipti. Nú gerir þú þér grein fyrir því að þú ert einhvers megnug/ur. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það gengur ekki að fylgja hug- myndum sínum eftir með hundshaus. Nú ertu komin/n í þá aðstöðu að þú getur val- ið þau verkefni sem þú vilt vinna. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér á eftir að ganga vel í dag ef þú skipuleggur þig nógu vel. Lykillinn að hamingju þinni er umburðarlyndi. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þetta er góður dagur til að njóta lífsins og hafa það skemmtilegt. Farðu í bæinn, kíktu á söfn eða sæktu mannfagnaði, þú átt það skilið eftir allt puðið undanfarið. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú þarft að fást við mjög vandasamt og persónulegt verkefni á næstunni. Ættingi veldur uppnámi, þú jafnar þig þó fljótt. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þig langar til að gera heimili þitt vistlegra. Kynntu þér alla málavöxtu áður en þú grípur til aðgerða. Einhver mun ljóstra upp leyndarmáli sem kemur á óvart. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert í rétta gírnum fyrir leið- inleg verkefni sem tengjast skriffinnsku og formsatriðum af einhverju tagi. Eirð- arleysi hrjáir þig, bíttu á jaxlinn, það gengur yfir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú kannt að lenda í útistöðum við samverkamenn þína. Láttu það ekki eyði- leggja fyrir þér daginn þótt einhver ann- ar hafi farið öfugum megin fram úr rúm- inu. Stjörnuspá 2. febrúar 1990 Þjóðarsáttin. Launþegar og atvinnurekendur undirrituðu heildarkjarasamninga sem áttu að ná verðbólgu hratt nið- ur og tryggja atvinnuöryggi. Árið áður hafði vísitala neysluverðs hækkað um 21%. 2. febrúar 1996 Mjög hásjávað var. Sjór flæddi inn í kjallara húsa á Álftanesi og gekk yfir þjóðveginn á Kjalarnesi og í Brynjudal. 2. febrúar 1998 Fréttavefur Morgunblaðsins á Netinu, mbl.is, var opnaður. Fyrsta mánuðinn voru að með- altali um fimm þúsund heim- sóknir á dag en nú eru not- endur um 350 þúsund á viku. 2. febrúar 2002 Tilkynnt var að íslenskir fjár- festar hefðu selt bjórverk- smiðju í Pétursborg í Rúss- landi fyrir rúma fjörutíu milljarða króna. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… mbl.is Inga Þorgeirs- dóttir kennari, Hofteigi 48 í Reykjavík, er ní- ræð í dag. Hún fagnar afmælinu með nánustu fjöl- skyldu og vinum. 90 ára Gísli Vil- hjálmur Jónsson skipstjóri á Páli Jónssyni GK 7 er sextugur í dag, 2. febrúar. Gísli er úti á sjó á af- mælisdaginn. 60 ára „ÉG tek þessu rólega og nýt góða veðursins. Við leikum æfingahringinn á golfvellinum og förum svo út að borða,“ segir Guðmundur Arason, fyrr- verandi skrifstofustjóri í Borgarnesi, sem verður sjötugur í dag. Hann er staddur á Tenerife ásamt eiginkonu sinni, Lilju Ólafsdóttur tækniteiknara. Guðmundur lét af störfum hjá Vegagerðinni í Borgarnesi fyrir hálfu öðru ári, eftir 54 ára starf, þar af tæp fimmtíu ár samfellt. Hann fór ungur til starfa á skrifstofunni eftir að faðir hans, Ari Guð- mundsson vegaverkstjóri, lést af slysförum. Þar starfaði hann allan sinn starfsaldur við bókhald og fjármál. Síðustu árin var hann skrifstofustjóri Norðvestursvæðis. Þá hefur Guðmundur verið ökukennari í rúm fjörutíu ár og er enn að. Guðmundur hefur stundað hestamennsku frá unglingsárum og spil- að brids um árabil. Þá er hann mikill áhugamaður um knattspyrnu og fylgir Manchester United að málum. Hann hefur haft meiri tíma fyrir áhugamálin eftir starfslokin. „Ég hætti á réttum tíma,“ segir Guðmundur. Eitt áhugamál enn hefur bæst við eftir þessi tímamót. Hann hóf að leika golf í fyrrasumar og segir að sér gangi eins vel og byrjanda sæmi. helgi@mbl.is Guðmundur Arason í Borgarnesi sjötugur 54 ár á sama vinnustað Nýirborgarar Reykjavík Hólmfríður Lea fæddist 16. nóvember kl. 1.07. Hún vó 3.550 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Karen Er- lingsdóttir og Elías Ásgeir Baldvinsson. Neskaupstað Ægir Aron fæddist 20. október kl. 5.43. Hann vó 4.440 g og var 56 cm langur. For- eldrar hans eru Margrét Lára Lismonde-Jaune og Ágúst Hilmar Dearborn. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.