Morgunblaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 9. M A R S 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 56. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «CHILEHAMFARIR HRIKALEGT AÐ VAKNA VIÐ JARÐSKJÁLFTANN «MENNINGFÓLK Tvíburabræður með öngulinn í rassinum 6  Miðstjórn Samiðnar samþykkti í gær harðorða ályktun um stöðu efnahagsmála. Í henni er lýst yfir miklum vonbrigðum með aðgerð- arleysi stjórnvalda og þá stöðnun sem við blasir í samfélaginu. Meðal annars er í ályktuninni lýst vantrausti á þá þingmenn sem „spila á efnahagserfiðleika þjóð- arinnar sér til framdráttar“. Þá segir að ef engin raunhæf úrræði komi fram á næstu vikum stefni í næsta hrun. »2 Miðstjórn Samiðnar varar við öðru efnahagshruni  Skuldir og skuldbindingar Hafn- arfjarðar og Borgarbyggðar eru of háar. Þetta er mat eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, sem fer fram á reikningsskil á þriggja mánaða fresti. Nefndin tekur sérstaklega fram að leiguskuldbindingar Borgar- byggðar vegna menntaskólans séu óviðunandi. »9 Hafnarfjörður og Borg- arbyggð skulda um of  Stúlkur eru óæskilegar víða í Austur-Asíu og er vandinn mestur á Indlandi og í Kína. Í skýrslu, sem þróunarstofnun SÞ kynnti á alþjóð- legum degi kvenna í gær segir að 96 milljónir kvenna hafi „horfið“ því að foreldrar þeirra hafi frekar viljað eignast drengi. Orsakirnar eru margs konar. Stúlkubörn eru myrt, kvenkyns fóstrum eytt og stúlkur fá lélegri heilbrigðisþjón- ustu og verri mat en drengir. Hátt hlutfall karla er því í reiðileysi og stofnar aldrei fjölskyldu. »16 Í Austur-Asíu komast mun færri konur en karlar á legg „ÞESSI verðmunur er með því mesta sem við höfum séð,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðeig- enda (FÍB), um þann mun á elds- neytisverði sem er hjá olíu- félögunum í dag. Ef tekið er eitt lægsta verð á bens- íni, rúmar 190 krónur með vildar- kjörum eins og bensínlykli eða -korti, og hæsta verð í sjálfsaf- greiðslu, um 204 krónur, er verð- munurinn um 7%. Sé miðað við allra hæsta verð, þ.e. algengt þjónustu- verð á bensínstöðvum stóru olíufé- laganna þriggja, þá er verðmunurinn allt að 9%. Lægsta bensínverð á öllu landinu er á Vestfjörðum, 192,50 kr. í sjálfsafgreiðslu, án afsláttar, en lægsta verð á höfuðborgarsvæðinu er rúmar 195 krónur. Runólfur bendir t.d. á að hjá N1 á Ísafirði sé sama verð og hjá Orkunni þar í bæ. Algengt verð hjá N1 um landið er hins vegar 204,20 kr., eða nærri 12 krónum hærra en á Ísafirði. „Flutn- ingskostnaður vinnur ekki með verð- inu á þessum landshluta sem gerir þessa verðlagningu merkilegri,“ seg- ir Runólfur. | 7 Allt að 9% munur á lægsta og hæsta bensínverðinu Verðmunur sjaldan meiri Hæsta og lægsta bensínverð *Sjálfsafgreiðsluverð m. Orkulykli á Vestfjörðum **Þjónustuverð hjá stóru félögunum Lægst* 190,5 kr Hæst** 209,2 kr. Eftir Helga Bjarnason og Agnesi Bragadóttur ÞINGMENN VG sem verið hafa mótfallnir Icesave-samningunum eða haft efasemdir um þá vilja halda viðræðum áfram með það að mark- miði að ná sem bestri niðurstöðu. Fyrirfram vilja þeir þó ekki heita skilyrðislausum stuðningi við niður- stöðuna heldur segja að þingmenn og þingflokkar verði að meta hana þegar hún liggur fyrir. Forystumenn ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðuflokkanna og fulltrúar úr Icesave-samninganefnd- inni koma saman til fundar í dag. Markmiðið er að reyna að samræma afstöðuna fyrir næstu skref í viðræð- unum við Breta og Hollendinga. Viðræðufundir höfðu ekki verið ákveðnir í gær en Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ræddi við Lee Buchheit, formann íslensku samninganefndarinnar, og hollenska fjármálaráðherrann. Hann sagði ljóst að vilji væri hjá viðsemjendum Íslendinga til að halda viðræðum áfram á allra næstu dögum. Ekki liggur fyrir hvort ákveðið verði að semja nýtt samningsumboð fyrir íslensku samninganefndina. Viðmælendur blaðsins töldu meiri líkur en minni á því að stjórn og stjórnarandstaða myndu áfram reyna í sameiningu að leiða Icesave- málið til lykta. Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir, formaður þingflokks VG, telur mikilvægt að þverpólitísk sam- staða haldist um samningana. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar telja að ýmislegt þurfi að skýra frek- ar, áður en viðræðunum verður hald- ið áfram. Þeir segja að enn hafi ekk- ert komið fram um það hvort Bretar og Hollendingar séu tilbúnir að koma til móts við Íslendinga og deila ábyrgð á eftirstöðvum lánsins sem kunna að verða eftir árið 2016. Heita ekki stuðningi  Þingmenn úr VG vilja halda áfram viðræðum og fá betri niðurstöðu » Hóparnir bera sam- an bækur sínar í dag » Óljóst með afstöðu Breta og Hollendinga  Þarf betri samninga | 4 FIMM Litháar voru í gær dæmdir í fimm ára fangelsi fyrir að flytja hingað til lands með blekkingum 19 ára stúlku í þeim tilgangi að hagnýta sér hana kynferðislega. Íslendingur sem var einnig ákærður var hins vegar sýknaður af öllum kröfum. Lögmaður eins Litháans sagðist eftir dómskvaðningu telja dóminn mjög þungan, sérstaklega ef litið er til dómafordæma. Allir sakfelldir munu áfrýja dómnum. | 2 LITHÁARNIR FIMM MUNU ÁFRÝJA DÓMI Í MANSALSMÁLI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.