Morgunblaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2010 SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM „Myndin er fallega tekin og óaðfinnanlega leikin af stjörnuleik- urunum - mynd sem veitir manni töluvert tilfinningalegt högg” - Todd Brown, twitchfilm.net (eftir Toronto kvikmynda- hátíðina) HHHH „Á heildina litið er þetta afskaplega vel heppunð kvikmynd og manneskjuleg. Stjarna Cox stelur senunni, hokinn af reynslu” -H.S.S., MBL Baráttan um mannkynið hefst þegar síðasti engillinn fellur. MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! HHH -Dr. Gunni, FBL Sími 462 3500 Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum From Paris With Love kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára Legion kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Percy Jackson / The Lightning Thief kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 10 ára Nikulás litli kl. 6 LEYFÐ Edge of Darkness kl. 10:30 B.i. 16 ára It‘s Complicated kl. 8 B.i. 12 ára The Good Heart kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.10 ára Precious kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára Leap Year kl. 8 - 10:15 LEYFÐ Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i.14 ára Mamma Gógó kl. 6 LEYFÐ From Paris With Love kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Shutter Island kl. 9 B.i. 16 ára Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 B.i. 14 ára Artúr 2 kl. 6 LEYFÐ SÝND SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í HÁSKÓLABÍOI BRÁÐSKEMMTILEG RÓMANTÍSK GAMAN- MYND MEÐ AMY ADAMS ÚR „ENCHANTED“ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI 600 kr. 600 kr. 600 kr. 600 kr. 600 kr. 600 kr. Besta leikkona í aukahlutverki Besta handrit HÖRKU SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA TAKEN HHH “(From Paris with Love) er afþreying- armynd í orðsins fyllstu merkingu, og ábyggilega skemmtilegasta myndin í bíó þessa dagana. Hún fer strax af stað á fyrstu mínútu og ætlar aldrei að hægja á sér!” T.V. - Kvikmyndir.is 2 ÓSKARSVERÐLAUN Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR Kathryn Bigelow komst ísögubækurnar þegar húnfékk fyrst kvenna ósk- arsverðlaun fyrir bestu leikstjórn fyrir myndina The Hurt Locker, sem fjallar um sprengjusérfræð- inga í Írak. The Hurt Locker var einnig valin besta myndin og fékk verðlaun fyrir besta handritið. Sigur Bigelow undirstrikar það ójafnvægi, sem verið hefur milli kynjanna í kvikmyndagerð. Á þeim 82 árum, sem liðin eru frá því byrj- að var að veita óskarsverðlaunin, hafa aðeins fjórar konur verið til- nefndar fyrir bestu leikstjórn. Hin- ar eru Lina Wertmüller fyrir Pas- qualino Settebelleze (Pasqualino: fegurðardísirnar sjö) árið 1975, Jane Campion fyrir The Piano árið 1993 og Sofia Coppola fyrir Lost in Translation árið 2003. Nú hefur Bigelow brotið glerþakið, en munu fleiri konur fylgja á eftir?    Martha Lauzen stýrir rann-sóknum á hlut kvenna í sjón- varpi og kvikmyndum við ríkishá- skólann í San Diego í Kaliforníu. Í árlegri skýrslu hennar um efnið kemur fram að konur leikstýrðu sjö prósentum þeirra 250 mynda, sem fengu mestar tekjur árið 2009 og var það tveimur prósentustig- um minna en árið áður. Hlutfallið var það sama þegar kom að hand- ritshöfundum, þar var hlutur kvenna í handritum 250 tekju- hæstu myndanna í fyrra átta pró- sent. Lauzen sagði í viðtali við frétta- stofuna AFP að flestir í Hollywood væru í afneitun þegar kæmi að hlut kvenna í kvikmyndum. „Ein af ástæðunum er að menn horfast ekki í augu við núverandi hlut kvenna í kvikmyndagerðinni,“ seg- ir hún. „Ég hef heyrt ritstjóra helstu fagtímaritanna og yfirmenn kvikmyndaveranna segja einfald- lega að það sé ekkert vandamál. Þeir segja að það sé ekkert gler- þak eða romsa upp úr sér fjórum eða fimm nöfnum áberandi leik- stjóra sem vill svo til að eru konur, yppta öxlum og segja: „Sjáið, það er ekkert vandamál.“ En það er mjög villandi. Þó að hægt sé að nefna fjóra, fimm kvenleikstjóra þýðir það ekki að vandamálið sé ekki til. Ef afstaðan er sú að það sé ekkert vandamál verður ekki leit- að að lausnum. Og það viðheldur ríkjandi ástandi.“ Mynd Bigelow kostaði aðeins brot af því, sem fór í að framleiða helsta keppinaut hennar um ósk- arinn, myndina Avatar, sem kost- aði hálfan milljarð dollara og hef- ur rakað inn 2,5 milljörðum dollara, meira en nokkur önnur kvikmynd. Avatar, sem James Cameron, fyrrverandi eiginmaður Bigelow, leikstýrði, fékk þó þrenn óskarsverðlaun, fyrir listræna stjórnun, kvikmyndatöku og tækni- brellur.    Það lá í loftinu nokkru fyrir ósk-arsafhendinguna að slagurinn myndi standa á milli hjónanna fyrrverandi. Cameron hafði vel- gengni Avatar með sér, en Bige- low, sem hefur gert sjö myndir, en stóru kvikmyndaverin hafa aldrei tekið upp á arma sína þótt þau hafi dreift myndum hennar, hafði með- byr á listræna sviðinu. Hún fékk æðstu viðurkenningu samtaka bandarískra leikstjóra fyrir The Hurt Locker og í febrúar voru henni afhent BAFTA-verðlaunin í London fyrir leikstjórn – fyrstri kvenna. Þar sagði hún að það væri „stöðug barátta“ að vera kona í leikstjórastétt, kona sem nú hefur fengið óskarsverðlaun fyrir að leikstýra mynd um karla og stríð: hrylling stríðs og ánetjandi áhrif þess. Bigelow brýtur glerþakið AF LISTUM Karl Blöndal » Þó að hægt sé aðnefna fjóra, fimm kvenleikstjóra þýðir það ekki að vandamálið sé ekki til. Reuters Bigelow Sigur hennar undirstrikar það ójafnvægi, sem verið hefur milli kynjanna í kvikmyndagerð. Hlaut einnig Bafta fyrir leikstjórn fyrst kvenna. ÞAÐ kemur eflaust einhverjum á óvart að leikarinn góðkunni Sir Christopher Lee er mikill metal aðdáandi og það sem meira er; eftir rúma viku kemur út heavy metal plata með kappanum. Platan er samin af Marco Sabiu, sem hef- ur unnið með jafn ólíkum tónlist- armönnum eins og Luciano Pav- arotti og Take That, en á henni koma fram hundrað manna sinfón- íuhljómsveit, kór og tvö metal bönd, ásamt fleiri söngvurum. Sjálfur mun Lee syngja og lesa inn á plötuna en hann ku hafa mjög flotta barrítón söngrödd. Hann segist sennilega hafa verið metal aðdáandi í fleiri ár en hann gerir sér grein fyrir en platan Charlemagne: By the Sword and the Cross kemur eins og fyrr seg- ir út eftir um það bil vikutíma og geta áhugasamir þá hlustað á Lee kyrja við metalhljóma. Sarúman Lee þekkja eflaust flestir sem galdramanninn Sarúman úr LOTR þríleiknum víðfræga. Syngur og les inn á metal plötu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.