Morgunblaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 27
Menning 27FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2010 STJÓRNARKJÖR í Sambandi ís- lenskra myndlistarmanna á laug- ardag var sögulegt. Hrafnhildur Sigurðardóttir textíllistakona var þá kjörin formaður eftir að hlut- kesti var varpað til að úrskurða hvort hún eða sitjandi formaður, Hlynur Hallsson, hreppti embættið. Telja þurfti fjórum sinnum til að fá rétta niðurstöðu í atkvæða- greiðslunni. Úrslit voru því ekki ljós þegar málþing á vegum SÍM um myndlist og fjölmiðla hófst strax á eftir aðalfundinum, þannig að í hléi á málþingi var aðalfundi haldið áfram. Fundarstjóri, myndlist- arkonan Rúrí, greindi þá frá því að gild atkvæði hefðu fallið jöfn, 134 gegn 134. Eftir að hafa ráðfært sig við lögfræðing um framkvæmd mála, las Rúrí upp lagagreinina, sem kveður á um að hlutkesti skuli varpa falli atkvæði jöfn. Skjaldarmerkið kom upp Hrafnhildur valdi skjald- armerkið á krónupeningi en Hlyn- ur þorskinn. Skjaldarmerkið kom upp og var mótframbjóðandinn þá úrskurðaður nýr formaður. Ásta Ólafsdóttir og Hildigunnur Birgisdóttir koma nýjar inn í stjórn SÍM og Björg Guðnadóttir sem varamaður. Á málþinginu um myndlist í fjöl- miðlum var Ríkissjónvarpið einkum gagnrýnt fyrir að sinna myndlist- inni ekki betur en gert hefði verið. efi@mbl.is Hrafnhildur felldi Hlyn Var kjörin formaður SÍM með hlutkesti Morgunblaðið/ÞÖK Hafði betur Hrafnhildur Sigurðar- dóttir mun stýra SÍM. KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir myndina Ský á reki eða Kauas pilvet karkaavat eftir finnska kvikmyndaleikstjórann Aki Kaurismäki, sem hann gerði undir lok kreppunnar miklu þar í landi á tíunda ára- tugnum. Myndin verður sýnd tvívegis í Bæjarbíói, Strand- götu 6, Hafnarfirði, fyrst í dag kl. 20:00 og síðan næstkomandi laugardag. Myndin segir frá hjónunum Lauri og Ilona sem búa í Helsinki og hafa komið sér nokkuð vel fyrir þegar tilveru þeirra er skyndilega ógnað með atvinnuleysi, en þau eru of stolt til að fara á atvinnuleysisbætur. Kvikmyndir Finnsk ský á reki í Hafnarfirði Kynningarspjald Skýja á reki. MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir barnaleikritið Langafa prakk- ara í menningarmiðstöðinni Gerðubergi næstkomandi laug- ardag kl. 14:00. Langafa og Önnu leika þau Pétur Eggerz og Aino Freyju Järvelä, Pétur Eggerz leikstýrir verkinu, búninga gerir Katrín Þorvalds- dóttir, leikmynd er eftir leik- hópinn og tónlist gerði Vil- hjálmur Guðjónsson. Leikgerðin styðst við bækurnar Langafi drullu- mallar og Langafi prakkari eftir Sigrúnu Eldjárn, en leikritið var fyrst sýnt árið 1999. Aðeins verður þessi eina sýning. Leiklist Langafi prakkari í Gerðubergi Pétur Eggerz BORGARBÓKASAFN Reykjavíkur og Myndlistar- skólinn í Reykjavík standa fyr- ir myndasögusamkeppni og -sýningu fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára. Í tilefni af því að liðin eru sextíu ár síðan myndasaga Charlie Schulz „Smáfólk“ (Peanuts) birtist fyrst er þema keppninnar til- einkað dagblaðamyndasögum undir yfirskriftinni „Skrípó: lít- il saga í fáeinum römmum“. Sérstök dómnefnd mun síðan fara yfir innsendar myndasögur, en af- raksturinn verður til sýnis á sýningu sem opnuð verður í Grófarhúsi sumardaginn fyrsta, 22. apríl. Myndasögur Skrípó: Lítil saga í fáeinum römmum Charlie Brown er sextugur Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ALÞÝÐU- og heimstónlistarhátíðin Reykjavík Folk Festival verður haldin í Kaffi Rósenberg frá mið- vikudegi til laugardags, en þá munu fjórtán hljómsveitir koma fram. Hljómsveitirnar sem fram koma eru Rósin okkar, Fedorov, þjóðlagadeild Sniglabandsins, Gísli Helgason & fé- lagar, Gæðablóð, Hrafnar, South Ri- ver Band, Varsjárbandalagið, Nar- odna Musika, Ljótu hálfvitarnir, Guitar Islancio, Nesi Sjana og hinar kerlingarnar og Spaðar, en einnig spilar Kristján „KK“ Kristjánsson. Ólafur Þórðarson, einn félaganna í Suðurársveitinni, South River Band, segir að hugmyndin hafi kviknað í tilefni af tíu ára afmæli South River Band. „Okkur langaði að halda upp á afmælið með því að safna saman fólki á hliðarlínunni og halda hátíð það sem þessi tegund tónlistar fengi að hljóma,“ segir hann. 25 hljómsveitir vildu vera með „Það vildu 25 hljómsveitir vera með og erfitt að velja úr þeim hópi, en við reyndum að velja hljómsveitir og listamenn sem legðu áherslu á hljóðfæratónlist, á handspiluð hljóð- færi, en þetta verður örlítill djass og blús og kántrí, fer út í allar þessar stefnur,“ segir hann og hlær við „Við vildum fá inn þær hljómsveitir sem hafa verið að fást við þessa músík og eru með spilagleðina í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri í aðal- hlutverki, en annars er erfitt að setja einhvern merkimiða, við vorum bara að leita að ákveðinni stemmn- ingu.“ South River Band stendur að há- tíðinni í samvinnu við Þórð Pálma- son veitingamann á Kaffi Rósen- berg, en Ólafur segir að allar sveitinar sem fram komi fái borgað fyrir spilamennskuna, „prinsipp- greiðslu, það fá allir eitthvað hvern- ig sem fer og við borgum þetta sjálf- ir, stöndum fyrir öllu draslinu,“ segir hann ákveðinn. Þess má geta að Ríkisútvarpið hyggst taka alla tónleikana upp og svo mun Ólafur smíða úr þeim upp- tökum fjórtán þætti sem fluttir verða í sumar. Alþýðu- og heimstónlistarhátíðin Reykjavík Folk Festival haldin í Kaffi Rósenberg Hátíð fyrir hand- spilaða tónlist Spilagleði Drengirnir frá Suðurá, South River Band, standa að alþýðu- og heimstónlistarhátíðinni Reykjavík Folk Festival í Kaffi Rósenberg. Í HNOTSKURN » Tónlistarhátíðin ReykjavíkFolk Festival hefst á mið- vikudag í Kaffi Rosenberg. » Hátíðin stendur fram álaugardag, fjögur kvöld alls. » Fram koma þrettán hljóm-sveitir og einn stakur tón- listarmaður; þrjár á miðviku- degi, þrjár á fimmtudegi, fjórar á föstudegi og fjórar á laugar- degi. NÆSTKOMANDI miðvikudag frumflytur Áskell Másson eigið verk, Vindbjöllur tímans, ásamt Duo Harpwerk, sem skipað er þeim Frank Aarnink slagverksleikara og Katie Elizabeth Buckley hörpuleik- ara. Tónleikarnir eru í röð Háskóla- tónleika, haldnir í Norræna húsinu og hefjast kl. 12.30. Vindbjöllur tímans var sér- staklega samið fyrir þessa tónleika og flutningur þess því heims- frumflutningur. Áskell lýsir verkinu svo að það sé hugleiðingar um tím- ann og tímaleysi. „Á stundum er eins og dvalið sé „á bak við tímann“, en þegar skyggnst er út blasir við hæg- ferðugt ferli og ógnarhraði í senn. Líkt og þegar hlustað er á grasið vaxa er „hratt“ og „hægt“ aðeins undir þeim samnefnara komið sem miðað er við.“ Háskólatónleikar í Norræna húsinu Nýtt verk eftir Áskel Másson Morgunblaðið/Eggert Slagverk Áskell Másson tekur þátt í frumflutningi á eigin verki. FJÖLÞJÓÐASVEITIN Narodna Muzika tekur þátt í þjóðlagahátíð- inni Reykjavik Folk Festival, eins og getið er um hér til hliðar, en til upphitunar hyggst hljómsveitin leika í Deiglunni á Akureyri á fimmtudagskvöld. Haukur Gröndal saxófón- og klarínettuleikari fer fyrir Narodna Muzika en honum til fulltingis er meðal annars búlgarski harm- óníkuleikarinn Borislav Zgurvoski sem hefur leikið með öllum helstu þjóðlagamúsíköntum í Búlgaríu og einnig starfað sem upptökumaður og útsetjari, en þetta er í fjórða sinn sem Borislav sækir Ísland heim. Með Hauki og Borislav koma fram Ásgeir Ásgeirsson á tam- boura, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Erik Qvick á slag- verk. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30. Búlgörsk-íslensk þjóðlagasveifla  Narodna Muzika heldur tónleika í Deiglunni á fimmtudagskvöld Þjóðlagastuð Haukur Gröndal leiðir Narodna Muzika. Svo er líka gaman að setjast upp í bíl og keyra út á land með strákunum 28 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.