Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is KARLMAÐUR, sem var að leggja í stæði við leikskólann Suðurborg í Breiðholti í fyrradag, beygði sig eftir gleraugunum sínum og steig óvart á bensíngjöfina í stað hemlanna. Hann ók yfir gangbraut, í gegnum grindverk sem sést á myndinni og langleiðina að leiktækjum. Enginn slasaðist, svo vildi til að börnin voru öll inni í drekkutíma en ef börnin hefðu verið úti hefði augljóslega getað orðið stórslys. Elínborg Þorláksdóttir leikskólastjóri segir að fyrir nokkrum árum hafi einnig verið ekið gegn- um grindverkið og inn á lóðina. Segist hún munu kanna hvort hægt sé að verja lóðina betur en bent er á að hægt sé að setja upp öfluga stólpa við lóðina sem stöðvi bíla. Morgunblaðið/Kristinn Bíl ekið langt inn á leikskólalóð Eftir Andra Karl andri@mbl.is FÉLAGAFRELSI er hluti af grundvallarréttindum og mjög mik- ilvægt sem slíkt. Hins vegar þykir ljóst af 74. grein stjórnarskrár Ís- lands að tilætlun stjórnarskrárgjaf- ans hafi ekki verið sú að halda hlífi- skildi yfir félögum sem grundvalla starfsemi sína á tilgangi eða athöfn- um sem eru beinlínis bannaðar og jafnvel refsiverðar. Svo segir í álitsgerð sem unnin var fyrir dómsmálaráðuneytið um beitingu stjórnarskrárákvæðis um að leysa upp félög. Ragna Árnadótt- ir dómsmálaráðherra segir um mik- ilvæga niðurstöðu að ræða enda sé með henni ljóst að ákvæðið feli í sér sjálfstæða heimild til að leysa upp félag. Hluti af aðgerðaráætlun Ragna tekur þó fram að ekki megi líta á niðurstöðuna sem töfra- lausn. Álitsgerðin miði við að slíkt félag sé starfrækt hér. „Ég hef hins vegar sagt að við þurfum að koma í veg fyrir að hingað komi menn til að stofna þennan ólögmæta félagsskap. Markmiðið er að koma í veg fyrir að hér verði stofnuð glæpasamtök. Þess vegna þurfum við breiðari nálgun og hafa aðgerðaráætlun til að stemma stigu við því.“ Unnið sé að samningu að- gerðaráætlunar og álitsgerðin sé hluti þeirrar vinnu. Hér á landi er ekkert félag sem nefnist Vítisenglar, eða Hells Ang- els, en Ragna segir að ef sá dagur kemur upp þá vilji yfirvöld vera bú- in að vinna ákveðna grunnvinnu. Hún vill þó ekki segja afdráttarlaust að ákvæðinu verði beitt gegn ís- lensku félagi ef það verði hluti al- þjóðasamtaka Vítisengla. Ef slíta á félagi á grundvelli ákvæðisins stýrir ákæruvaldið sókn þeirrar kröfu, samkvæmt lögum um meðferð sakamála og að undan- genginni lögreglurannsókn. Önnur niðurstaða í Danmörku Niðurstaðan er ekki síst merkileg fyrir þær sakir að Danir komust að gagnstæðri niðurstöðu í sambæri- legri álitsgerð, að ekki væri hægt að beita sambærilegu ákvæði því gerð- ar væru svo ríkar kröfur um sönn- un. Líklegt er að munurinn liggi í orðanna hljóðan. Í 74. grein segir nefnilega að banna megi starfsemi félags sem er talið hafa ólögmætan tilgang, ekki að það hafi ólögmætan tilgang. Heimilt að banna Vítisenglana  Samkvæmt álitsgerð sem unnin var fyrir dómsmálaráðuneytið þarf ekki lagabreytingar svo hægt sé að beita 74. grein stjórnarskrárinnar til þess að leysa upp félagasamtök sem talin eru hafa ólögmætan tilgang Ragna Árnadóttir PRENTSMIÐJAN Prentmet hefur verið sett í greiðslustöðvun. Guðmundur Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að vanda- mál fyrirtækisins megi rekja til gengishruns- ins árið 2008, en lán þess hafi að miklu leyti verið í japönskum jenum. „Stærstur hluti skulda okkar er hjá Landsbankanum en við höfum unnið mjög náið með bankanum og Lýsingu, sem er annar lánardrottinn okkar. Við hjónin erum eigendur fyrirtækisins og við ætlum okkur að koma með nýtt hlutafé inn í það á næstunni,“ segir Guðmundur. Hann seg- ir að samningaviðræðurnar lúti að þessari hlutafjáraukningu, samhliða afskriftum á skuldum félagsins. Starfsmenn Prentmets eru 95 talsins. Guð- mundur segist ekki sjá fram á að þurfa að fækka þeim, nema síður sé. „Reksturinn árið 2009 gekk mjög vel og árið í ár hefur farið vel af stað,“ segir Guðmundur í samtali við Morg- unblaðið. ivarpall@mbl.is Prentmet í greiðslustöðvun STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir íslenska ráðamenn álíta að þeir hafi full- nægjandi stuðn- ing „áhrifamik- illa aðila“ í Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum við næstu endur- skoðun efnahagsáætlunarinnar. Steingrímur og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, ræddu m.a. við fulltrúa bandaríska fjármálaráðuneytisins í ferð sinni til Washington. „Þetta er ekki þannig að við göngum um með ein- hver loforð upp á vasann,“ sagði Steingrímur. „En við höfum verið að skoða hvernig landið liggur og fórum til Washington til að reyna að afla stuðnings og útskýra okkar mál. Við eru bærilega bjartsýnir á að það séu a.m.k. alger minnihluta- viðhorf ef menn reyna að andæfa því að endurskoðunin fari fram. Það er alltaf reynt að ná algerri samstöðu í stjórn AGS. Það setur auðvitað þrýsting á minnihlutann í stjórninni ef það liggur í loftinu hvert meirihlutaviðhorfið er. Og ef menn eru sáttir við það sem við höf- um gert hafa þeir engar málefna- legar ástæður til að vera á móti.“ kjon@mbl.is „Bærilega bjart- sýnir“ á meiri- hlutastuðning Steingrímur J. Sigfússon Fjallað er um félagafrelsi í 74. grein stjórnarskrárinnar: „Rétt eiga menn á að stofna félög í sérhverjum löglegum til- gangi, þar með talin stjórnmála- félög og stéttarfélög, án þess að sækja um leyfi til þess. Félag má ekki leysa upp með ráð- stöfun stjórnvalds. Banna má þó um sinn starfsemi félags sem er talið hafa ólöglegan til- gang, en höfða verður þá án ástæðulausrar tafar mál gegn því til að fá því slitið með dómi.“ 74. greinin TVEIR meintir gaskútaræn- ingjar voru gómaðir í gær í bíl við eyðibýli við veginn um Þver- árfjall. Lögreglumanni á frívakt þótti mannaferðirnar grunsam- legar og við eftirgrennslan kom hann að mönnunum sofandi í bílnum innan um tíu glænýja 5 kg gaskúta. Kútarnir voru allir tómir en nokkuð er um að slík- um kútum sé stolið því fyrir þá fæst gott skilagjald. Í ljós kom að mennirnir, sem eru um tví- tugt, eru góðkunningjar lög- reglunnar í Reykjavík. Gaskútarnir voru teknir af mönnunum en þeir gátu ekki gert grein fyrir þeim með trú- verðugum hætti. Síðdegis fengu mennirnir að halda ferð sinni áfram. Þeir komu við í bensín- afgreiðslu Olís í Borgarnesi og stálu þar töng áður en þeir héldu för sinni áfram. Loks komu þeir við á Olís-stöðinni á Akranesi og ætluðu þar að skila tönginni og fá hana endur- greidda. Hins vegar var búið að vara við piltunum og voru þeir handteknir. Gómaðir sofandi með tíu tómum gaskútum Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.