Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 Innrammað í vor Ríkisfjármálahóparnir ætla að skila af sér tillögum fyrir apríllok og þá eiga útgjaldarammar ráðuneyta að vera tilbúnir. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is SUMAR af þeim tillögum um sameiningu rík- isstofnana sem liggja fyrir ganga þvert á ráðu- neytin og byggjast á þeirri forsendu að ráðuneyti verði sameinuð og þeim fækkað úr tólf í níu. Margar tillögurnar hafa verið mjög vel und- irbúnar að sögn Ragnhildar Arnljótsdóttur, ráðu- neytisstjóra í forsætisráðuneytinu, m.a. með skoðanakönnunum meðal starfsmanna. Þær sýna að meirihluti starfsmanna sér fyrir sér möguleika á sameiningum og samlegð milli stofnana. Ríkisstofnanir eru um 200 talsins og sagði for- sætisráðherra um helgina raunsætt markmið að fækka stofnunum um 30-40% á næstu 2 til 3 ár- um. Vinnan er þó mjög mislangt á veg komin en fjölmargar róttækar hugmyndir eru skoðaðar af fullri alvöru skv. upplýsingum innan stjórnar- flokkanna. Ríkisfjármálahópar úr báðum stjórn- arflokkunum funda reglulega og ætla að vera til- búnir með ramma yfir aðgerðir í síðari hluta apríl. Vinna við endurskipulagningu samgöngustofn- ana á vegum samgönguráðuneytisins er á loka- sprettinum. Formleg sameining Keflavíkurflug- vallar ofh. og Flugstoða ohf. er svo gott sem frágengin. Þá hefur staðið yfir undirbúningur frá sl. hausti, sem miðar að því að leggja niður Flug- málastjórn, Vegagerðina, Umferðarstofu og Sigl- ingastofnun í núverandi mynd og búa til tvær stofnanir úr þessum fjórum. Öll stjórnsýslu- og eftirlitsverkefni munu þá heyra undir sérstaka stjórnsýslustofnun og framkvæmda- og þjónustu- verkefnin verða færð undir nýja framkvæmda- stofnun. Er þessi vinna sögð ganga hratt og vel. Ekki er gert ráð fyrir uppsögnum starfsfólks. Einnig stendur til að sameina flugslysa-, sjó- slysa- og umferðarslysanefnd í eina nefnd og í skoðun er sameining Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar svo dæmi séu nefnd. Af öðrum fyrirhuguðum breytingum má nefna áform um fækkun og stækkun sýslumannsum- dæma, og aðskilnað þeirra frá löggæslu, stækkun löggæsluumdæma, sameiningar héraðsdómstóla og niðurlagningu Varnarmálastofnunar, sem samþykkt var í gær. Dómsmála- og mannrétt- indaráðuneytið er með áform um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár sem fyrsta skrefið í stofnun skráar- og upplýsingatæknistofnunar. Komast hjá beinum uppsögnum Stjórnarþingmaður sem vel þekkir til þessarar vinnu segir margt undir, m.a. séu nefndar hug- myndir um sameiningu háskóla og framhalds- skólar séu heldur ekki undanskildir. „Við höfum sett okkur skýr markmið um að það þurfi alltaf að sýna fram á samlegðaráhrif og hag- ræðingarmöguleika fyrirfram. Það verður ekki sameinað bara til að sameina heldur til að ná fram markmiðum um að gera þjónustuna skilvirkari og að hægt sé að veita hana með minni tilkostnaði,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. „Í þeim sameiningum sem framundan eru verður byggt á þeirri meginstefnu að skipulag verði skil- virkara og ferlar endurskoðaðir en reynt að kom- ast hjá beinum uppsögnum. Fækkunin verður því einkum með þeim hætti að ekki verði ráðið í þau störf sem losna,“ segir Ragnhildur. Stofnanir týna tölunni  Vegagerð, Flugmálastjórn, Umferðarstofa og Siglingastofnun í tvær stofnanir  Hugmyndir um sameiningu háskóla og framhaldsskólar ekki undanskildir Í HNOTSKURN »Umfang aðhaldsaðgerða í ríkisfjármál-unum sem grípa þarf til á næsta ári verður um 50 milljarðar kr. »Að óbreyttu þarf að bæta afkomu rík-issjóðs um 30 milljarða á árinu 2012 og 20 milljarða 2013. Morgunblaðið/RAX VANGAVELTUR um breytingar á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar eru lífseigar og alls kyns útfærslur hafa heyrst á undanförnum vikum. Stein- grímur J. Sigfússon, fjármálaráð- herra og formaður Vinstri grænna, sagði í upphafi vikunnar að búast mætti við breytingum á einhverjum stigum, í áföngum eða stærri skref- um, á kjörtímabilinu og gaf vísbend- ingar um í hvað stefndi. Í kjölfar þingflokksfundar Vinstri grænna á mánudag ræddi Stein- grímur við fjölmiðla. Hann var spurð- ur út í hugsanlegar breytingar og hafði þetta m.a. að segja: „Fagráð- herrar eru í ríkisstjórn sem ákveðið var að biðja um að vera áfram þegar hún var endurnýjuð í maí á síðasta ári, en það var heldur ekki tímasett hversu lengi sú tilhögun yrði við lýði. Það má því búast við breytingum á einhverjum stigum.“ Fagráðherrarnir sem um ræðir eru Ragna Árnadóttir dóms- málaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra Í samtali við Morgunblaðið sagðist Ragna ekkert vilja tjá sig efnislega um ummæli Steingríms, hún gegndi sinni stöðu þar til annað kæmi í ljós. „Ég var kölluð til og þegar ég verð beðin um að víkja, þá bara vík ég. Það er bara svoleiðis,“ segir Ragna. „Ég veit í sjálfu sér ekki um neina fyrirhugaða breytingu á þessu en ég er ekki æviráðinn frekar en aðrir. Ég bara anda með nefinu og sé hvernig spilast úr þessu,“ segir Gylfi Magn- ússon, sem segist taka þessu með ró og gegna ráðherrastarfinu þar til annað verður ákveðið. „Það hefur ekkert verið rætt við mig um að ég fari að hætta. Ég bara bíð eftir því að það gerist og þegar þar að kemur sný ég aftur til minna fyrri starfa. Það hefur alltaf legið fyr- ir,“ segir hann. Ekkert verið rætt um að víkja úr ráðherrastólum Ragna Árnadóttir Gylfi Magnússon RÍKISSTJÓRNIN hyggst leggja fram frumvarp að breytingum á varnarmálalögum þar sem Varnar- málastofnun verður formlega lögð niður 1. jan- úar 2011. Starfshópur fimm ráðuneyta sem skipaður var í desember að tillögu utanríkis- ráðherra hefur skilað frá sér skýrslu þar sem bent er á leiðir til að núverandi starfsþættir Varnarmálastofnunar verði hluti af nýrri borgaralegri stofnun, sem „sæi um öryggis- og varnarmál á grundvelli borg- aralegra gilda innan áformaðs inn- anríkisráðuneytis“, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu. Setur hópurinn jafnframt fram tillögur um hvernig umræddir starfshættir rúmast innan skyldra stofnana þangað til nýtt ráðuneyti lítur dagsins ljós, þegar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið ann- ars vegar og dómsmála- og mann- réttindaráðuneytið hins vegar verða sameinuð í eitt ráðuneyti. Varnarmálastofnun tók til starfa 1. júní 2008 og hefur rekstur ís- lenska loftvarnakerfisins, sem svo er nefnt, verið efst á blaði yfir helstu verkefni þess. Fastráðnir starfsmenn hafa verið um 54. Vill lesa skýrsluna fyrst Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, kvaðst ekki vilja tjá sig um efni skýrslunnar fyrr en hún hefði lesið hana, en hún hafði ekki tök á því í gær. Svanborg Sigmarsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Varnarmálastofnunar, gaf hins vegar kost á samtali en hún sagði aðspurð að verkefnin færist frá stofnuninni þegar áður- nefnt frumvarp verður að lögum. Reiknað sé með að flest verk- efnin færist tímabundið til utanrík- isráðuneytisins og að verulegur hluti starfsmanna stofnunarinnar muni því áfram vinna saman að verkefnunum sem þangað færist. Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að í frum- varpinu sé ákvæði sem tryggi að starfsfólkinu verði boðið starf hjá þeim ríkisstofnunum sem taka við verkefnum Varnarmálastofnunar. Svanborg kveðst vonast til að þetta verði efnt. baldura@mbl.is Varnar- málastofnun lögð niður Stofnunin sá um loftvarnakerfið. Önnur ráðuneyti taka yfir verkefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.