Morgunblaðið - 31.03.2010, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
LÍKT og fyrri ár verður fjöldi fólks á
faraldsfæti um páskana innanlands.
Að sögn Árna Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Flugfélags Íslands,
munu um 5-6 þúsund manns ferðast
með flugi innanlands páskadagana,
þar af fara a.m.k. 1.700 manns til Ak-
ureyrar á næstu þremur dögum, 700
til Ísafjarðar og 900 til Egilsstaða.
Þá eru ótaldir allir þeir sem leggja
land undir fót á fjölskyldubílnum.
Hjá Heimi Hanssyni, forstöðu-
manni Upplýsingamiðstöðvar ferða-
mála á Ísafirði, fengust þær upplýs-
ingar að nær allt gistirými í bænum
væri þegar bókað en hins vegar væri
enn laust gistipláss á Suðureyri, á
Núpi í Dýrafirði og á Þingeyri.
Bendir hann á að árum saman hafi
skíðavikan á Ísafirði dregið brott-
flutta Vestfirðinga vestur sem hafi
þá oftast gist í heimahúsi hjá ætt-
ingjum og vinum, en síðan tónlist-
arhátíðin Aldrei fór ég suður hóf
göngu sína fyrir sjö árum hafi orðið
sprenging í eftirspurn eftir gistingu.
Segist hann búast við því að íbúa-
fjöldinn í Ísafirði muni tvö- til þre-
faldast um páskana. Fjölbreytt
menningardagskrá væri í boði fyrir
vestan, m.a. leikhúsuppfærsla og
klassískir tónleikar.
Hjá Huldu Sif Hermannsdóttur,
verkefnisstjóra viðburða- og menn-
ingarmála Akureyrarstofu, var
sömu sögu að segja. Þar er fjölbreytt
afþreying í boði fyrir utan skíðaiðk-
un í Hlíðarfjalli. Á vefnum www.visi-
takureyri.is má finna upplýsingar
um þau söfn sem opin eru alla páska-
dagana, leiksýningar á vegum Leik-
félags Akureyrar og Freyvangsleik-
hússins sem og tónlistaruppákomur
svo fátt eitt sé nefnt.
Mikill snjór í Oddsskarði
Að sögn Ástu Þorleifsdóttur,
framkvæmdastjóra Markaðsstofu
Austurlands, er vinsælt að gista í
sumarhúsum fyrir austan. Segir hún
að skíðafærið sé afbragðsgott um
þessar mundir og mikill snjór bæði í
Oddsskarði og Stafdal. Að hennar
sögn er tilvalið að skella sér á snjó-
sleða eða í jeppaferð upp að íshellum
á svæðinu og baða sig í Laug-
arvalladal. Nánari upplýsingar um
hvað er í boði fyrir austan eru á
www.east.is.
Reikna má með að margir nýti
páskana til þess að leggja leið sína að
gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi.
Að sögn Skúla H. Skúlasonar, fram-
kvæmdastjóra ferðafélagsins Úti-
vistar, stendur félagið fyrir fjölda
gönguferða upp að gosstöðvunum.
Annars vegar úr Básum þaðan sem
farnar verða tvær ferðir á dag alla
páskadagana, en Kynnisferðir verða
með áætlunarferðir í Bása en aðeins
er fært jeppum þangað, auk þess
sem boðið verður upp á tvær lengri
gönguferðir frá Skógum þar sem
gist er eina nótt í Fimmvörðuskála.
Opið inn í Þórsmörk
Vegurinn inn í Þórsmörk var opn-
aður fyrir umferð í gær. Ferðafélag
Íslands er með skálaverði og leið-
sögumenn í Langadal og þar geta
ferðamenn fengið leiðsögn og ráð-
gjöf og leitað gistingar. Boðið verður
upp á gönguferðir upp á Valahnúk
sem er afbragðsgóður útsýnisstaður
til eldstöðvanna en einnig verður
hægt að fá leiðsögn upp á Morins-
heiði og Bröttufönn og standa þar í
návígi við eldgos og hraunfossa.
Á ferð um páska
Þúsundir Íslendinga verða á faraldsfæti um páskana
Skíðasvæðin heilla sem og menningarlífið og gosstöðvar
LESTUR Passíusálmanna á föstudeginum langa er í huga margra órjúf-
anlegur hluti af páskunum. Að þessu sinni verða þeir lesnir m.a. í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd, í Hallgrímskirkju, Djúpavogskirkju, Grafarvogskirkju,
Þingvallakirkju, Hofskirkju á Vopnafirði, Möðruvallakirkju, Hvamms-
tangakirkju, Kálfatjarnarkirkju, Hjarðarholtskirkju, Ytri-Njarðvík-
urkirkju, Garpsdalskirkju og í hátíðarsal Dvalar- og hjúkrunarheimilisins
Grundar við Hringbraut. Einnig verða þeir lesnir í Skútustaðakirkju í Mý-
vatnssveit samtímis því sem gengin er Píslargangan kringum vatnið.
Passíusálmar lesnir víða um land
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á skíðum Mikill snjór er nú í Hlíðarfjalli við Akureyri og má búast við að margir nýti gott færi þar um páskana.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÉG hyggst leggja fram frumvarp
sem gengur út á að Alþingi ákveði að
fara skuli í virkjanaframkvæmdir í
neðrihluta Þjórsár og halda þannig
áfram með verkefnið. Það gerum við í
ljósi þess að það eru engar hindranir
til staðar fyrir verkefninu í raun og
veru. Málið er búið að fara í umhverf-
ismat en þær fengu fína einkunn þar,
allar þessar þrjár virkjanir,“ segir
Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, um frumvarp sem hún
leggur fram á þingi í dag.
„Þetta fór í gegnum rammaáætlun
fyrst og þetta er einn af þeim kostum
sem menn eru sammála um að séu
mjög hagkvæmir. Þjórsá er á sem er
mikið virkjuð og það er eðlilegt að
menn fari fyrst í þá virkjanakosti
frekar en á ótroðin svæði.
Þannig að það eru öll rök fyrir því
að neðrihluti Þjórsár sé virkjaður.
Framkvæmdin fór í ákveðið uppnám
við úrskurð umhverfisráðherrans en
það er ekki hægt að gleyma því að Al-
þingi hefur lagasetningarvald á þessu
landi og ef Alþingi vill getur það
ákveðið, að setja lög um það að fara í
þessar virkjanir.“
Viðbrögð við synjuninni
Ólöf vísar þar með til þeirrar
ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur
umhverfisráðherra að synja skipu-
lagsbreytingum, sem snúa að virkj-
unum í neðrihluta Þjórsár, staðfest-
ingar, sökum þess að þátttaka
Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfé-
laga við skipulagsvinnu hefði brotið í
bága við skipulags- og byggingarlög.
Yrðu samtals 270 MW
Virkjanirnar þrjár, Holtavirkjun,
Hvammsvirkjun og Urriðafoss-
virkjun myndu skila samtals 270 MW
og yrði virkjun við Urriðafoss stærst,
eða 130 MW, en til samanburðar er
Kárahnjúkavirkjun 690 MW.
Aðspurð í hvað orkan yrði notuð
segir Ólöf Landsvirkjun hafa tekið
ákvörðun um að orkan færi til ann-
arra verkefna en álbræðslna, svo sem
til gagnavera og annarra óhefðbund-
inna kaupenda orku. Hún telur
„breiðan stuðning fyrir virkunum í
neðrihluta Þjórsár“ á þingi.
Alþingi greiði
fyrir virkjun
neðri Þjórsár
Ólöf Nordal telur samstöðu um málið
Í HNOTSKURN
»Ólöf segir áhugasama fjár-festa hafa knúið dyra hjá
stjórnvöldum en að þá skorti
vissu fyrir því að hægt sé að
afhenda orkuna.
»Hún telur tímabært aðbreikka kaupendahópinn.
Morgunblaðið/RAX
Elfur Virkjanirnar þrjár myndu skila samtals 270 MW.
STJÓRNENDUR Hjallastefnunnar eiga í viðræðum við
bæjaryfirvöld í Garðabæ um að stækka Barnaskóla
Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Í dag geta nemendur
sótt skólann upp í fjórða bekk, en hugmyndir eru um að
bæta við miðstigi, þ.e. fimmta til sjöunda bekk.
Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjalla-
stefnunnar, segir óskir hafa komið frá foreldrum um að
bæta við áðurnefndum bekkjum. Hún segist vongóð um
að frá og með næsta hausti verði hægt að bjóða upp á
kennslu á miðstigi við skólann. Verði stækkunin sam-
þykkt af bæjarfélaginu muni skólinn bæta við einni fær-
anlegri kennsluálmu.
Í nýlegri skýrslu Námsmatsstofnunar kom fram að
nemendur Grunnskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ voru
hæstir í stærðfræði á síðustu samræmdu prófum fyrir
fjórða bekk. Í íslensku var skólinn í fimmta sæti á lands-
vísu. Aðspurð hverju hún þakkar þennan árangur, segir
Margrét Pála það hafa sýnt sig að kynjaskipt skólastarf
auki námsárangur. Þá hafi einnig sitt að segja að nem-
endur byrji fimm ára í skólanum. „Svo trúi ég á óhefð-
bundnar kennsluaðferðir okkar, þar sem við leggjum
áherslu á sköpun og einstaklingsmiðað nám,“ segir hún.
Páll Hilmarsson, formaður skólanefndar grunnskóla
Garðabæjar, segir bæjaryfirvöld vera opin fyrir hug-
myndum um stækkun skólans. Stækkunin myndi þó hafa
nokkurn kostnað í för með sér fyrir bæjarfélagið, en eftir
sé að ræða við stjórnendur Hjallastefnunnar um mögu-
legar útfærslur. Hann gerir ráð fyrir að endanleg
ákvörðun bæjarins liggi fyrir í vor. hlynurorri@mbl.is
Hjallastefnan vill fleiri
bekki í Garðabæ
Morgunblaðið/Ásdís
Kynjaskipt Aðferðir skólans eru óhefðbundnar.
Vonast til að geta boðið
upp á miðstig í haust
DETTUR ÞÚ
Í LUKKUPOTTINN
Útivistarleikur
Homeblest & Maryland
Ef þú kaupir Homeblest eða
Maryland kexpakka gætir þú unnið
glæsilegan vinning.
3 x 50.000 kr. úttektir
48 x 15.000 kr. úttektir
frá Útilífi, Intersport eða Markinu.
Leynist vinningur í
pakkanum þínum!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
40
48
1