Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 AKSTUR vagna Strætó bs. um páskahátíðina verður sem hér segir: Á skír- dag, fimmtu- daginn 1. apríl, verður ekið samkvæmt sunnudags- áætlun. Á föstudaginn langa, 2. apríl, verður enginn akstur. Laug- ardaginn 3. apríl verður ekið sam- kvæmt hefðbundinni laugar- dagsáætlun. Á páskadag, sunnudaginn 4. apríl, verður eng- inn akstur. Annan í páskum, mánu- daginn 5. apríl, verður ekið sam- kvæmt sunnudagsáætlun. Allar nánari upplýsingar má finna á www. straeto.is og í þjónustusíma Strætó bs., 540 2700. Akstur strætis- vagna um páskana AFLÉTT var í gær lokun sem verið hefur á umferð inn í Þórs- mörk vegna eldsumbrotanna á Fimmvörðuhálsi. Vegagerðin lag- færði veginn um helgina en hann er engu að síður aðeins fær breyttum jeppum og öflugum rút- um. Öll umferð fólks um Hrunagil og Hvannárgil er bönnuð vegna hættu á eitruðu gasi sem þar kann að safnast fyrir og vegna hættu á gufusprengingum. Vís- indastofnanir hafa bannað sínu fólki að fara inn í gilin vegna þessarar hættu. Ástand göngu- leiða í Þórsmörk er breytilegt og eru þeir sem hyggja á göngu það- an hvattir til að setja sig í sam- band við staðarhaldara í skálum sem þar eru áður en lagt er af stað. Lögregla og björg- unarsveitir verða með eftirlit og gæslu í Þórsmörk og við eldstöð- ina. Boðið verður upp á dags- ferðir í Þórsmörk um páskana til að gefa fólki kost á að skoða gos- stöðvarnar úr nálægð. Má fara í Þórsmörk Glóð Matreiðslumeistarar á Hótel Holti elduðu í gær við ylinn frá nýja hrauninu á Fimmvörðuhálsi. Í matinn var m.a. humarsúpa og skötuselur.  Vegurinn aðeins fær öflugum bílum og rútum  Lögreglan áfram með gæslu Ljósmynd/Kristján Logason HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að Catalina Mikue Ncogo sæti áfram gæsluvarðhaldi til 23. apríl en hún áfrýjaði dómi héraðsdóms frá 1. desember sl. þar sem hún var dæmd í 2½ árs fangelsi fyrir innflutning fíkniefna og hagnýtingu vændis. Tveimur dögum síðar var Ncogo, betur þekkt sem Catalina, handtekin vegna gruns um mansal og hagnýt- ingu vændis en lögreglan taldi sig hafa rökstuddan grun um að hún flytti stúlkur til landsins, gerði þær út til vændis og tæki að minnsta kosti helming hagnaðarins af þeim. Catalina hefur nú verið ákærð fyr- ir vændisstarfsemi og mansal en samfangi hennar hefur nú staðfest að hún hafi í janúar síðastliðnum reynt að fá sig til að starfa sem vændiskona fyrir 500.000 krónur á mánuði, þegar hún væri laus úr fangelsi. Vændið helsta tekjulindin Fram kemur í úrskurði héraðs- dóms, sem Hæstiréttur staðfesti, að við rannsókn málsins hafi konur bor- ið um að hafa stundað vændi hér á landi á vegum Catalinu og að þær hafi komið til landsins í því skyni að starfa við vændi á vegum hennar. Konunum beri saman um að Ca- talina hafi haft umráð yfir húsnæð- inu sem þær dvöldu í og vændið var stundað í. Þá bendi vitnisburðir til þess að Catalina hafi gerst sek um mansal gagnvart sumum kvennanna sem um ræði með því að beita hótunum um ofbeldi og frelsissviptingu. Bauð samfanga að starfa við vændi gegn greiðslu  Catalina Ncogo áfram í gæsluvarðhaldi Stórfréttir í tölvupósti Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Gallaskokkar, gallajakkar, gallapils og gallabuxur STANGAVEIÐI Stangaveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. apríl Veiðileyfi eru seld á Kríunesi og Elliðavatni Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfs- björg, unglingar (innan 16 ára aldurs) og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi fengið afhent veiði- leyfi án greiðslu. Eddufelli 2, sími 557 1730 Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Kjólar og skokkar Kjóll kr. 6.900 fleiri litir Fjölbreytt úrval A Ð A L F U N D U R C C P h f . Aðalfundur CCP hf., kt. 450697-3469, verður haldinn 14. apríl 2010 á skrifstofu félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 12.30. D A G S K R Á : Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.07 samþykkta félagsins. Undir dagskrárliðnum “breytingar á samþykktum” verða teknar fyrir eftirfarandi tillögur: I. Tillaga stjórnar félagsins um að veita henni heimild í samþykktum til að hækka hlutafé félagsins um allt að 500.000 hluti að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Heimildin gildi í 4 ár og má einungis nota í tengslum við efndir kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins. Hluthafar skulu ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. II. Tillaga stjórnar félagsins um að framlengja heimild stjórnar skv. samþykktum til að hækka hlutafé þess um 391.820 hluti að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta til að efna kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins, um 3 ár eða til 7. september 2011. Hluthafar hafa ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn CCP hf. skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en 5 sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, sbr. 63. gr. (a) hlutafélagalaga nr. 2/1995. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfundinn. Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku. Stjórn CCP hf. Í DAG er síðasti dagur til að dreifa frumvörpum á yf- irstandandi vor- þingi. Engin mál eru á dagskrá, heldur verður dagurinn lagður í útbýtingu frum- varpa. Ekki veitir af, enda verður að sögn Björgvins G. Sigurðssonar, þingflokksformanns Samfylkingar, reynt að dreifa öllum þeim frumvörpum sem þingflokkar stjórnarflokkanna og ríkisstjórnin hafa samþykkt. Þau hlaupa á tugum og má sem dæmi nefna frumvarp um greiðsluaðlögun og annað um lög- bindingu greiðslna í starfsendurhæf- ingarsjóð en ASÍ hefur gengið hart eftir hinu síðarnefnda. Eftir páskafrí hefst þinghald 12. apríl en þá verður lögð fram skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis. Að sögn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta þingsins, hefur ekki verið tek- inn frá ákveðinn fjöldi daga til að fjalla um skýrsluna. „Gert er ráð fyrir að skýrslan verði rædd en það er erf- itt að gera nákvæma dagskrá því við vitum ekki hvað er í henni.“ Viku hlé verður gert á störfum þingsins vegna sveitarstjórnarkosn- inga sem fara fram hinn 29. maí. Þing kemur aftur saman 31. maí en sam- kvæmt starfsáætlun lýkur störfum þingsins 4. júní. Að sögn Ástu Ragn- heiðar er þó mögulegt að dagskráin lengist um örfáa daga. Von á tug- um frum- varpa í dag Þing kemur aftur saman hinn 12. apríl Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.