Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 10
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Þetta er nú ekkert merkilegtkattasafn. Mér finnst hálfhégómlegt að vera aðsegja frá þessu,“ segir Ör- lygur Karlsson skólastjóri Fjöl- brautaskóla Suðurlands af mikilli hógværð þar sem hann tekur á móti blaðamanni á Bókasafni Selfoss, en þar hefur kisusafnið hans verið gestum til sýnis undanfarið. Örlyg- ur hefur safnað kisum af öllum stærðum og gerðum undanfarin tólf ár. „Kveikjan að þessari söfnun var sú að heimiliskötturinn okkar hún Skotta dó, en hún var búin að vera hjá okkur í rúm sextán ár. Því mið- ur var ég ekki heima þegar hún kvaddi, heldur staddur úti í Frakk- landi á ferðalagi með nemendum fjölbrautaskólans. Samkennari minn í frönsku sem var með í för gaf mér kattarstyttu til að votta mér samúð, lítinn svartan og hvítan kött í körfu,“ segir Örlygur og dregur fram þennan fyrsta kött safnsins. „Í framhaldi af þessu fórum ég og konan mín að safna fleiri katta- styttum. Hún Skotta var eini kött- urinn í lífi okkar og við ákváðum að fá okkur ekki nýjan kött heldur dunda okkur frekar við þessa söfn- un. Það er vissulega ákveðinn kost- ur að ekki þarf að setja þessa ketti í Kettir frá öllum heimshornum Þegar kötturinn Skotta yfirgaf jarðlífið eftir sextán ára farsæla ævi fékk eigandi hennar kisustyttu í samúðargjöf. Nú tólf árum síðar eru kisurnar orðnar um hundrað og þrjátíu. Og enn bætist í safnið. Morgunblaðið/Golli Safnari Örlygur með nammiköttinn framan við glerskápinn á bókasafninu. 10 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 Það eru fáir litir sem gleðja augað jafn mikið og gulur. Enda er gulur lit- ur ljóss og vonar og litur páskanna og vorkomunnar. Gula litnum fylgir já- kvæðni og lífsgleði og það birtir yfir því fólki sem klæðir sig í gult. Sólin er líka gul í okkar augum og sólinni fylgir yfirleitt gleði, a.m.k. fyrir íbúa Íslands. Notið tækifærið yfir páskahátíðina og skreytið heimili ykkar með gulu, það mun bara bæta og kæta. Það er ekki langt síðan páskaskraut fór að vera áberandi í verslunum hér en úr- valið er nægt. Fyrir utan klassísk egg, páskaunga og kanínur er um að gera að kaupa páskaliljur, krókusa, gula túlípana og brumandi greinar því fátt er fallegra en að skreyta með lifandi blómum og gróðri. Það má einnig fá sér gul kerti, páskadúka, servíettur, kertastjaka og óróa. Munið bara að allt er gott í hófi þó gult sé. Flestar verslanir eru uppfullar af gulu núna, aðallega páskaskrauti en einnig má sjá gult í vortískunni sem nú er að koma í hillur fataversl- ananna. Fallegt er að lífga upp á klæðaburðinn með gulum klút um hálsinn, gulu belti eða bindi. Það ger- ir mikið fyrir annars líf- og litlausan fatnað. Endilega... Morgunblaðið/Ómar Gulur Páskaliljur eru fallegt skraut hvort sem er í blómavasa eða blómabeði. ...skreytið með gulu „Það er tvennt sem kemur til greina en út frá þessari sýningu sem ég opna á Kafé Car- ólínu á laugardaginn nefni ég vinnustofuna mína. Eina myndin á sýningunni sem er frá Akureyri er tekin fyrir utan vinnustofuna mína,“ segir Kristján Pétur spurður um uppáhaldsstaðinn sinn. „Vinnustofan er í bakhúsi við heimili mitt. Þar er allt sem ég þarf á að halda til að vinna að því sem mér þykir skemmtilegt. Þetta er hvort tveggja vinnustaður og griðastaður. Þangað koma vinirnir í heimsókn og þar myndast oft góðar samræður. Hitt sem kom til greina var eldhúsborðið mitt, ég er nefnilega mikill matmaður líka.“ Kristján Pétur Sigurðsson, lífslistamaður Uppáhaldsstaður Kristjáns Péturs Sigurðssonar Vinnustofan í uppáhaldi Kristján Pétur Sigurðsson Niðurstöður þjóðfunda í landshlutum Opinn fundur með forsætisráðherra Háskólanum á Akureyri, Sólborg v/Norðurslóð, stofu L201. miðvikudaginn 7. apríl kl. 13.00 - 16.15 Allir velkomnir Fundurinn verður sendur út á netinu á vefslóðinni: mms://media.unak.is/malstofa Sjá dagskrá fundarins á vefslóðinni: http://www.island.is/endurreisn/soknaraaetlun -islands/a-dofinni Ertu að fara í ferðalag með börnin um páskana? Á að kíkja upp á Snæfellsjökul, heimsækja ömmu á Kópaskeri og fá sér pylsu á Hvolsvelli? Páskafríið er reyndar bara fimm dagar en það má reyna. Eitt sem verður að hafa í huga áð- ur en lagt er af stað er að hafa ofan af fyrir börnunum í bílnum allan þennan rúnt. Það sem gott er að hafa við hendina og gerir það að verkum að þú heyrir „stoppa í sjoppu“ og „erum við ekki að vera komin“ sjaldnar er eft- irfarandi:  Til afþreyingar: Bækur, tímarit og myndasögur. Leikir, ferða-borðleikir og/eða tölvuleikir. Teiknibók og litir. Póst- kort sem börnin geta skreytt á leiðinni og sent til ættingja og vina á áfangastað. Pípuhreinsarar og annað föndur sem hægt er að dunda sér með. Ferða-mynddiskaspilari, geisla- spilari og heyrnatól. Hljóðbækur sem allir geta hlustað á.  Til að borða: Hollt snakk sem molnar ekki mikið og skilur ekki eftir sig kámuga putta. Ávexti sem auðvelt er að borða, t.d. epli og ber. Vatn á flösku sem hægt er að fylla á þegar stoppað er.  Annað: Sjúkrakassi sem inniheldur a.m.k. plástur, sólarvörn og höfuðverkjapillur. Ruslapokar. Þurrkur – blautar og þurrar. Passa að hafa föt til skiptanna við hend- ina og bleiur. Teppi sem hægt er að nota til að breiða yfir farþega eða til að sitja á þegar nestið er borðað úti í nátt- úrunni. Sippubönd og boltar svo börnin geti fengið útrás fyrir hreyfiþörfina þegar stoppað er. Ferðalög Reuters Bíltúr Það þarf að hafa ofan af fyrir börnunum svo þau sitji kyrr. Fyrir börnin í bílnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.