Morgunblaðið - 31.03.2010, Síða 18

Morgunblaðið - 31.03.2010, Síða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 BASKAR klæða sig í búninga fyrir skrúðgöngu í Bilbao, helstu borg Baskahéraðanna á Spáni. Farið er í hundruð skrúðgangna í dymbilvikunni á Spáni og þús- undir manna taka þátt í sumum þeirra. Reuters DYMBILVIKUGANGA Á SPÁNI NÝR kafli í tilraunum eðlisfræðinga til að afhjúpa leyndardóma alheims- ins hófst í gær þegar öreindahraðall CERN-stofnunarinnar í Sviss setti nýtt met með því að þeyta saman róteindageislum með 3,5 sinnum meira afli en áður hafði mælst. Þessi áfangi er upphafið að millj- örðum slíkra róteindaárekstra sem fyrirhugaðir eru í öreindahraðlinum á næstu 18-24 mánuðum. Nálgast ljóshraða Hraðallinn er í 27 kílómetra löngum göngum um 100 metra neðanjarðar við landamæri Sviss að Frakklandi. Hann er í raun sam- stæða margra hraðla sem þeyta öreindum í afar sterku segulsviði í göngunum þar til þær nálgast ljós- hraða, hinn endanlega hraða efnis- heimsins, sem mælist rétt tæplega 300.000 kílómetrar á sekúndu. Hitinn við árekstur róteindanna er gríðarlegur og skilyrðin lík því sem þau eru talin hafa verið við Miklahvell fyrir 13,7 milljörðum ára. Með tilrauninni vonast því vís- indamennirnir til þess að öðlast dýpri skilning á myndun alheimsins, með gleggri sýn á innsta eðli efnis- heimsins. Ennfremur vonast vísindamenn- irnir til þess að geta sannreynt kenningu breska eðlisfræðingsins Peter Higgs um tilvist svonefndrar Higgs-bóseindar, sem gefi öreind- unum massa. Vísindamenn CERN, Evrópsku rannsóknamiðstöðvarinnar í öreindafræði í Genf, fögnuðu ákaft þegar fyrsti áfanginn náðist í gær. Margir þeirra lýstu áfanganum sem upphafi að „nýju tímabili í vís- indum“. Vísindamennirnir bættu þó við að það myndi taka marga mánuði og jafnvel mörg ár að vinna úr upplýs- ingunum um árekstrana og meta þær. Upphaf að „nýju vísindatímabili“  Árekstur með metafli í öreindahraðli Mikill hvellur Vísindamaður fylgist með fyrsta róteindaárekstrinum. FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is MANNRÉTTINDASAMTÖKIN Amnesty International skoruðu í gær á ráðamenn í Kína að veita upp- lýsingar um hversu margir fangar eru teknir af lífi á ári hverju og sögðu að aftökurnar í Kína væru fleiri en í öllum öðrum löndum heims samanlagt. Stjórnvöld í Kína líta á upplýs- ingar um fjölda aftakna sem ríkis- leyndarmál en Amnesty telur líklegt að á ári hverju séu þúsundir fanga teknar af lífi í landinu. Mannréttindareglur brotnar „Kínverskir ráðamenn halda því fram að aftökunum hafi fækkað. Hvers vegna segja þeir ekki frá því hversu marga ríkið tekur af lífi, ef þetta er rétt?“ spurði Claudio Cor- done, starfandi framkvæmdastjóri Amnesty International. „Enginn þeirra, sem eru dæmdir til dauða í Kína, fær sanngjörn réttarhöld í samræmi við alþjóðlegar mannrétt- indareglur.“ Samkvæmt kínverskum lögum geta 68 lögbrot varðað dauðarefs- ingu, meðal annars efnahagsbrot á borð við mútuþægni og fjárdrátt. Dauðadæmdu fangarnir fá banvæna sprautu eða eru leiddir fyrir aftöku- sveit. Margir dauðadómanna byggjast á játningum sem knúnar eru fram með pyntingum og sakborningarnir hafa takmarkaðan aðgang að lög- fræðingum, að því er fram kemur í skýrslu Amnesty. Samtökin hafa m.a. áhyggjur af málum þeirra sem voru teknir af lífi eftir pólitískt um- rót í Tíbet og Xinjiang, aftökum fólks sem sakað var um fjársvik og máli Breta sem var tekinn af lífi þótt lögfræðingur hans teldi hann ósak- hæfan vegna geðsjúkdóms. Samtökin gagnrýndu einnig pukr- ið í tengslum við dauðarefsingar í öðrum löndum. „Leynd hvílir yfir því hvernig dauðarefsingum er beitt í löndum á borð við Kína, Hvíta- Rússland, Íran, Mongólíu, Norður- Kóreu og Víetnam. Slík leynd er óverjandi,“ segir í skýrslunni. „Ef dauðarefsingar eru réttmætur þátt- ur í stjórn ríkis eins og ráðamenn landanna staðhæfa þá er engin ástæða til að leyna beitingu þeirra fyrir almenningi og alþjóðlegum eftirlitsstofnunum.“ Meira en tveir þriðju landa heims hafa afnumið dauðarefsingar eða hafa ekki tekið neinn fanga af lífi síð- ustu tíu árin. Flestar aftökurnar fóru fram í Asíu, Mið-Austurlöndum og Bandaríkjunum. Um áramótin síðustu höfðu a.m.k. 17.118 manns verið dæmdir til dauða en ekki teknir af lífi. Segir pukrið óverjandi  Amnesty gagnrýnir leynd sem hvílir yfir aftökum í Kína og fleiri löndum Reuters Á móti dauðadómum Aftöku mót- mælt í Wisconsin í Bandaríkjunum. Talið er að á ári hverju séu þús- undir fanga teknar af lífi í Kína og fleiri en í öllum öðrum löndum samanlagt. Margir dauðadóm- anna byggjast á játningum sem knúnar eru fram með pyntingum. Að minnsta kosti 714 manns voru teknir af lífi í átján löndum á síðasta ári og minnst 2.000 voru dæmdir til dauða í 56 löndum, samkvæmt skýrslu sem mannréttindasamtökin Amnesty International birtu í gær. Í þessum tölum eru þó ekki taldar með þúsundir fanga sem talið er að hafi verið teknir af lífi í Kína. Þar eru ekki veittar upplýsingar um fjölda aftakna. AFTÖKUR Í HEIMINUM Á SÍÐASTA ÁRI Heimild: Amnesty International 1981 3.278 1986 743 1996 4.272 2004 3.797 2009 714 2008 2.390 Skv. opinberum upplýsingum Aftökur í heiminum Skv. opinberum upplýsingum, 2009 LÖND ÞAR SEM AFTÖKURNAR ERU FLESTAR Kína* *Áætlað. Í Kína eru fleiri teknir af lífi en í öllum öðrum löndum heimsins samanlagt Íran Írak S-Arabía Bandaríkin Jemen Súdan Víetnam Sýrland Japan 388+ 120+ 69+ 52 30+ 9+ 9+ 8+ 7 1,000+ DAUÐAREFSINGAR Í HEIMINUM Afnumdar algerlega (95) Beitt í fáum undan- tekningartilvikum (9) Enn í gildi en ekki framkvæmdar (35) Dauðarefsingum enn beitt (58) Búrúndí Afnumdar 2009 Tógó Afnumdar 2009 Argentína Afnumdar 2008 Úsbekistan Afnumdar 2008 BANDALAG Silvios Berlus- conis, forsætis- ráðherra Ítalíu, styrkti stöðu sína í héraðskosn- ingum sem fram fóru í landinu á sunnudag og mánudag. Banda- lagið sigraði í sex af þrettán héruðum í stað tveggja í síðustu kosningum. Sigurinn kann þó að koma Berlus- coni í vanda síðar því Umberto Bossi er álitinn helsti sigurvegari kosning- anna. Norðursambandið tvöfaldaði fylgi sitt og komst til valda í Veneto og Piedmond. Líklegt þykir að sigurinn verði til þess að Bossi setji ríkisstjórn Ber- lusconis skilyrði og krefjist þess að völd auðugu héraðanna á Norður- Ítalíu verði aukin. Bossi helsti sigurvegari kosninganna Umberto Bossi ÞJÓFAGENGI hefur grafið sér leið inn í fjárhirslur banka í París og hreinsað út úr tæplega 200 banka- hólfum í einkaeigu, að sögn frönsku lögreglunnar. Þjófarnir brutust inn í útibú bankans Credit Lyonnais nálægt óperuhúsinu í París aðfaranótt sunnudags með því að nota verk- færi til að brenna göt og brjóta nið- ur veggi frá húsinu við hliðina. Þeir bundu öryggisvörð og dunduðu sér svo við það í heilar níu klukku- stundir að tæma bankann og kveikja loks í honum áður en þeir fóru af vettvangi. Vörðurinn slapp ómeiddur. Enn er verið að meta verðmæti þýfisins og að sögn lögreglu gæti það verið erfitt þar sem um einka- hirslur var að ræða. Rannsókn- arlögreglumaður lýsti ráninu þann- ig að þjófarnir hefðu augljóslega verið fagmenn. Þjófar grófu sig inn í banka í París Enginn fangi var tekinn af lífi í Evr- ópu á síðasta ári og er þetta fyrsta aftökulausa árið í álfunni frá því að Amnesty byrjaði að birta árleg- ar skýrslur um aftökur í heiminum. Hvíta-Rússland er eina Evrópu- landið sem hefur ekki enn afnumið dauðarefsingar og engin aftaka fór fram þar á síðasta ári. Tveir fangar hafa þó verið teknir af lífi í Hvíta-Rússlandi í ár. Fyrsta aftökulausa árið í Evrópu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.