Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 Minning þín mun alltaf lifa í hjarta mínu. Þitt barnabarn, Fjóla Anna Jónsdóttir. Elsku amma. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Minning þín lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Saknaðarkveðjur, Stefán Örn og Helga Björg. Svarið er einfalt, amma er best. Ég hef verið svo heppin að eiga ömmur. Tvær bestu sem sögur fara af, en nú hefur sá dagur runnið upp sem ég hef alltaf óttast en það er kveðjustundin. Fjóla amma hefur nú kvatt mig eftir að hafa passað mig í tæp 32 ár og eru minningar mínar frá þessum árum efni í margar bæk- ur. Amma á Skeiðó fékk mig í fangið 2 vikna gamla þegar móðir mín byrj- aði í námi. Foreldrar mínir voru svo heppnir að búa í kjallaranum hjá ömmu og afa og þar sem þau voru bæði í krefjandi námi má eiginlega segja að amma og afi hafi gengið mér í foreldrastað. Þó ég flytti upp í Breiðholt var ég í leikskóla rétt hjá ömmu og afa, þannig að auðvelt var fyrir þau að sækja mig ef þörf var á. Skólagangan hófst og ég var keyrð til ömmu og afa þar sem ég gekk í skóla við hliðina á heimili þeirra. Amma var heimavinnandi hús- móðir og stóð svo sannarlega undir þeim titli, ég minnist þess aldrei að hafa séð ryk, óreiðu eða óumbúið rúm hjá henni. Óstraujað þekktist ekki í hennar orðaforða og maður skyldi ekki voga sér að fikta í hjóna- rúminu þegar búið var að búa um. Við barnabörnin stríddum henni stundum á því að fikta svolítið í því og skildum aldrei hvernig hún færi að því að hafa rúmteppið svona slétt, það var engu líkara en það væri alltaf von á kóngafólki í heimsókn, svo glæsilegt var hjónarúmið. Á okkar tímum á fólk það til að segja um þær mæður sem ákveða að vera heima með börnum sínum, hún er „bara“ heimavinnandi en ég get ekki séð að amma mín hafi „bara“ verið heimavinnandi, ég hef aldrei heyrt hana kvart. Hún vann dag og nótt ef þess þurfti og hafði alltaf tíma fyrir okkur fjölskylduna, hún var alltaf til staðar og hlustaði á mann stafa sig í gegnum bókina, gaf manni kræsingar úr eldhúsinu og leyfði manni meira að segja að stunda til- raunastafsemi þar og þegar maður gisti breiddi hún yfir mann silki- mjúkri sænginni og smellti kossi á kinn. „Passaðu þig á bílunum“ eða „ertu svona illa klædd og svona ber í háls- inn“ eru setningar sem maður heyrði iðulega, og fannst stundum kannski of oft sagðar, en maður á sko eftir að sakna þess, sakna ömmu sem pass- aði mann fram á síðustu stundu. Fyrirmynd mín í heimilis- og hann- yrðastörfum og bjargvættur blóma minna. Lífið verður svo sannarlega tómlegt án þín, amma mín, enda svo sannarlega erfitt að finna svona góða konu eins og þig. Ég bið góðan Guð að styrkja okk- ur öll og vernda á þessum erfiða tíma. Og ég veit að þú ert að passa upp á afa eins og við öll. Þegar minn tími kemur þá veit ég að þú bíður eft- ir mér með silkimjúkt og uppábúið rúmið og tilbúin að smella kossi á kinn. Friður sé með þér. Þín Hrafnhildur Telma. Allar mínar helstu minningar frá barnæsku tengjast ömmu og afa og heimili þeirra að Norðurbraut 17 í Hafnarfirði. Í huga mínum var húsið þeirra risastór ævintýrahöll þar sem stórfjölskyldan hittist við hin ýmsu tækifæri. Garðurinn bjó líka yfir miklum gersemum eins og hæsna- kofa og klettum þar sem við frænd- systkinin gátum leikið okkur. Fjóla frænka átti stóran þátt í að skapa það yndislega andrúmsloft sem þarna ríkti. Hún var einstaklega blíð og hlý kona og framkoma hennar við okkur börnin bar vott um þá virð- ingu sem hún sýndi öllum með sinni fallegu framkomu. Það er ekki ofsög- um sagt að hún Fjóla var sérstaklega góðhjörtuð og nærvera hennar slík að maður sóttist eftir að vera nálægt henni. Þegar hún gekk inn í herbergi var eins og allt lýsti upp því ásamt því að vera með eindæmum hlý og blíð, var hún svo falleg að af bar. Ung að árum hitti hún eiginmann sinn, Gunnlaug Lárusson, og þóttu þau einstaklega glæsilegt par, en í manni sínum hafði Fjóla fundið þá eiginleika sem helst prýddu hana sjálfa, hlýju og umhyggju gagnvart samferðamönnum sínum og frænd- garði. Undanfarin ár höfum við afkom- endur Stefaníu ömmu og Karls afa á Norðurbrautinni hist árlega á Hellu. Þar höfum við eytt saman helgi og notið þess að treysta böndin sem sterk voru ofin á æskuárum okkar. Þessar samverustundir eru okkur öllum mjög mikilvægar og hafa svo sannarlega fært okkur ættingjana hvert nær öðru. Fjóla var dugleg að koma á Hellu þrátt fyrir að hafa oft verið lasin og var það okkur hinum mikil gleði að hitta hana. Hápunktur helgarinnar er svo þegar Muggur frændi hringir til Bandaríkjanna og systkinin Fjóla og pabbi tala við El- ínu systur sína sem þar býr. Næsta sumar verður skarð fyrir skildi, engin Fjóla, þá vantar mikið, svo mikið að enginn getur fyllt það skarð. En svona gengur þetta víst fyrir sig, fólkið sem skóp heim bernskunnar kveður og skilur eftir sig óafmáanleg spor í lífi okkar og persónuleika, kannski svo miklu meira en þau höfðu sjálf hugmynd um. Ég get ekki kvatt hana Fjólu föð- ursystur mína, sem mér þótti svo óendanlega vænt um, án þess að þakka henni góðmennskuna, hlý- leikann og blíðuna sem hún umvafði okkur öll alla tíð. Þannig var hún Fjóla og víst er að Gunnlaugur, börnin og fjölskyldur þeirra hafa misst mikið og hugur minn er hjá þeim á þessari stundu. Ég bið Guð að gefa þeim styrk og leiða þau í gegnum sorgina og miss- inn. Vertu sæl kæra frænka og gangi þér vel á nýjum slóðum. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Samúðarkveðjur eru frá Magga bróður og Bíbí og einnig Katrínu dóttur minni sem er erlendis. Guðný Þórunn Magnúsdóttir. Fjóla hefur fengið hvíldina. Þetta sagði mamma þegar hún tilkynnti mér andlát Fjólu. Ég bjóst við þess- um fréttum þá og þegar, því Fjóla hafði barist við erfiðan sjúkdóm lengi og hrakað undanfarið. En þeg- ar að kveðjustund kom var svo und- arlegt og tómlegt að Fjóla væri far- in. Gunnlaugur móðurbróðir og Fjóla hafa verið stór hluti af lífi mínu. Það var mikill samgangur milli heimilanna í æsku minni og mamma og Gunnlaugur hafa verið náin og kærleiksrík systkini alla tíð. Fjóla og mamma urðu strax nánar vinkonur og mamma segir aldrei hafa borið skugga á þann vinskap. Missir mömmu er því mikill. Skeið- arvogur 11 var mitt annað heimili og við Jónína frænka vorum miklar vin- konur. Þegar pabbi dó fyrir 45 árum má segja að Gunnlaugur og Fjóla hafi tekið okkur að sér, svo vel reyndust þau okkur. Fjóla var ein- staklega ljúf og prúð í allri um- gengni. Aldrei heyrði ég hana hækka róminn þó oft hafi verið mik- ill galsi í öllum börnunum. Það kom ekki annað til greina en að Gunn- laugur og Fjóla yrðu guðforeldrar eldri dóttur minnar. Fjóla bar alltaf hag annarra fyrir brjósti, tók mót- læti af æðruleysi og hún stóð sig eins og sönn hetja í veikindunum. „Ég skil þetta ekki með hana Fjólu, hún kvartar aldrei, sama hvernig henni líður. Hún er alveg einstök hún Fjóla.“ Þetta hefur verið viðkvæðið hjá mömmu þegar ég hef spurt um líðan Fjólu. Fjóla var mikil húsmóðir og hannyrðakona og eftir hana liggja mörg handverkin. Við fjöl- skylda mín vottum Gunnlaugi og allri fjölskyldunni innilega samúð. Björt minning um Fjólu lifir í hjörtum okkar. Björg Cortes. Það fylgir því þessi skrýtna til- finning þakklætis og tómleika þegar ég nú kveð Fjólu sem ég fékk að kalla tengdamóður mína í 13 ár með- an ég bjó með Jónínu, næstyngsta barni Fjólu og Gunnlaugs. Í huga mér eru þau Fjóla og Gunnlaugur sem eitt og því hlýtur missir Gunnlaugs að vera mikill nú þegar Fjóla hefur kvatt þennan heim. Við huggum okkur við það að nú er Fjóla komin á æðri stað þar sem kvalir og pína þessa heims veik- inda eru skildar eftir og friður og blessun ríkja að eilífu. Fjóla mín, þó svo að ég hafi ekki verið hluti af fjölskyldu þinni síðustu 10 ár þá fylgdumst við hvort með öðru þessi ár og ávallt þegar við hitt- umst fann ég elsku þína. Fyrir það og allar góðu minningarnar sem ég ber að eilífu í brjósti mér þakka ég þér. Fjóla, þú ert í minningu minni í senn þessi fíngerða fallega kona og um leið sterk og ábyrgðarfull ætt- móðir. Þú helgaðir allt þitt líf því að þjóna þinni fjölskyldu og leitun var að jafn glæsilegu og smekklegu heimili og því sem þú bjóst fjölskyldunni í Skeiðarvogi. Það var alveg sama hve- nær maður kom í heimsókn; það var allt „spik og span“ og ætíð átti nú að koma einhverju ofan í gesti, kaffi og með því. Mér verður minnisstætt þegar við Jónína vorum að flytja í Dalsbyggð- ina að þá var eldavél þar sem hafði ekki fengið þá umgengni sem hún átti skilið og tókst þú að þér að koma henni í form. Því kemur þetta mér í hug að það tók þig bróðurpartinn úr tveimur dögum að koma þessari elda- vél í horf sem þú gast hugsað þér að láta nafn þitt við að hafa þrifið, ég dreg þetta fram því að í þessu felst hin endalausa þolinmæði og vand- virkni sem ég minnist sem eðliseig- inleika þinna sem ég hef oft öfundað þig af. Minningarnar eru ótal margar og allar á eina leið um hægláta glæsilega konu sem vildi hverjum manni vel og átti fullt af gleði til að miðla til með- ferðarfólks síns. Sérstaklega minnist ég allra gamlárskvölda okkar saman þar sem þú yngdist um áratugi í góð- um hópi fjölskyldunnar okkar. Það er svo að eftir langa ævi, sem hin síðustu ár var ansi oft markeruð af veikindum þínum, þá má þakka fyrir það að Guð almáttugur gefur okkur öllum að lokum hvíld og þá hvíld trúi ég að þú hafir verið fegin að fá að lokum. Ég færi Gunnlaugi og öllum börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum þínum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Tryggvi Magnússon. Í dag kveðjum við Fjólu Gísladótt- ur vinkonu okkar. Þessi duglega og hljóðláta kona var okkur mjög kær. Við vorum tíu sem fórum að hittast með handavinnu fyrir 60 árum síðan. Nú erum við búnar að sjá á eftir fjór- um yfir móðuna miklu. Við sem eftir erum reynum að hittast öðru hvoru, áður vorum við heima hver hjá ann- arri, en nú hittumst við á kaffihúsi og rifjum upp gömlu góðu dagana. Nú er Fjóla búin að kveðja eftir langvar- andi veikindi, hún var svo sannarlega dugleg og gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Við biðjum elskuðum eiginmanni, börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum guðs blessun- ar og vonum að Fjólu líði vel núna. Bestu kveðjur, fyrir hönd sauma- klúbbsins, Björg Randversdóttir. ✝ Unnur RagnaArngrímsdóttir Baar fæddist í Reykjavík hinn 31. mars 1953. Hún lést í heimaborg sinni, London, Ontario, Kanada, hinn 10. febrúar sl. Hún var dóttir hjónanna Arn- gríms Ragnars Guð- jónssonar, d. 1990, og Unnar Ólafar Þórðardóttur. Systk- ini Rögnu eru Guð- ríður Ása Matthías- dóttir, látin, Guðjón Emil Arngrímsson, Regína G. Arn- grímsdóttir, Ragnheiður Kristín Arngrímsdóttir, Arngrímur Arn- grímsson og Kolbeinn Arn- grímsson. Ragna giftist eftirlifandi eig- inmanni sínum Frans Baar í Kan- ada 1970. Synir þeirra eru Cliff Baar, eiginkona Jennefer Baar, dóttir þeirra er Nad- ine. Bryan Baar, eig- inkona Ladelle Baar, dætur þeirra Sidney Baar og Kasy Anne. Dóttir Rögnu Unnur Arna Sigurðardóttir, eiginmaður Karl Vík- ingur Stefánsson, börn þeirra Kristín Isabella, Charl Mika- el, Katrín Daniela og Sigrún Emelia. Ragna bjó í Lond- on, Ontario, Kanada frá árinu 1970 til dauðadags. Starfaði þar við ýmis störf en lengst af sem bílstjóri skólabíla og síðustu árin við akst- ur skólabíls fyrir fötluð börn. Ragna hefði orðið 57 ára í dag hefði hún lifað. Útför Rögnu hefur farið fram í Kanada. Minningarathöfn um Rögnu fór fram í Hafnarfirði 18. febrúar 2010. Unnur Ragna Arngrímsdóttir og ég undirritaður, Franz Baar, hitt- umst fyrst stuttlega á hinum sögu- fræga skemmtistað Glaumbæ í des- ember 1968. Ég var á leið til Norður-Afríku með Loftleiðum frá Kanada með stuttri viðdvöl á Ís- landi. Síðan í apríl 1969 á leið minni til baka var aftur höfð stutt viðdvöl í Reykjavík og heilsaði ég þá upp á Rögnu en hún vildi láta kalla sig Rögnu. Í nóvember 1969 heimsótti ég Rögnu og stórfjölskyldu hennar. Þá féllu hugir okkar saman og við urðum ástfangin um ókomna tíð. Við giftum okkur í ágúst 1970 í London, Ontario, Kanada. Síðan þá höfum við oft heimsótt Ísland og nutum ætíð hinnar rómuðu íslensku gest- risni. Ein heimsókn okkar er mér sérstaklega minnisstæð, en það var þegar við ferðuðumst norður í land yfir Kjöl. Staðir eins og Gullfoss, Hveravellir, Akureyri, Hjalteyri, en þar gistum við, Dettifoss og Mývatn eru stórkostlegir og ógleymanlegir. Faðir Rögnu var Arngrímur Ragnar Guðjónsson, skipstjóri hjá Eimskipafélagi Íslands. Hann lést 1990. Móðir Rögnu, Ólöf Unnur Þórðardóttir, dvelur nú á Sólvangi í Hafnarfirði. Dóttir Rögnu, Unnur Arna Sigurðardóttir, býr með fjöl- skyldu sinni í Hafnarfirði og rekur þar veitingastaðinn Gamla Vínhúsið A. Hansen. Mér til mikils harms lést Ragna hinn 10. febrúar sl. eftir stutta, erf- iða og hetjulega baráttu við krabba- mein. Rögnu er sárt saknað af öllum þeim er þekktu hana. Ég sakna hlát- urs hennar þegar hún talaði við systur sínar í síma frá Íslandi. Ragna var frábær og elskuleg eig- inkona, móðir, amma og systir. Hún talaði íslensku, ensku og þýsku óað- finnanlega. Góður kokkur og ein- stakur vinur. Ég elska þig Ragna. Í dag hefðum við fagnað 57 ára af- mælinu þínu en þess í stað get ég einungis fellt tár. Franz Baar, Kanada. Elsku Ragna mín, mig langar að minnast þín með fáum orðum. Það er sárara en tárum taki að þú skulir vera búin að yfirgefa okkur langt um aldur fram. Mér var þó nokkuð ljóst að staðan var ekki góð í maí í fyrra þegar ég heimsótti þig og dvaldi hjá þér í þrjár vikur. Þá varst þú nýkomin úr afar erfiðri aðgerð vegna sjúkdóms þíns og þrátt fyrir einstakan baráttuvilja þinn í erfið- um veikindum þá gat brugðið til beggja vona. Það var yndislegt að fá að vera með þér þessa daga og við gátum skemmt okkur við óborgan- legar upprifjanir frá fyrri árum. Húmor þinn og góða skapið var eins og ætíð áður. Við rifjuðum upp ógleymanlega heimsókn þína til Ís- lands árið sem þú varst fimmtug. Þá ferðuðumst við yfir Kjöl norður í land og dvöldum á Hjalteyri þar sem við áttum dýrðlega daga. Þar réð gleðin ríkjum hjá okkur systr- unum því Gurrý systir okkar var þar líka. En skjótt skipast veður í lofti því þremur mánuðum síðar var hún horfin okkur eftir stutt en erfið veikindi. Nú hafið þið báðar eldri systur mínar yfirgefið okkur, báðar 56 ára að aldri. Ég verð ævarandi þakklát fyrir að hafa fengið að vera með þér þennan tíma í Kanada í fyrra. Það sem er mér efst í huga eftir þessa döpru reynslu er þó minningin um ykkur báðar, ætíð eit- ilhressar og hláturmildar í meira lagi, og þá minningu getur enginn frá mér tekið. Það má víst sann- arlega segja að eftir hlátur komi grátur. Til hamingju með daginn í dag elsku systir. Ég sendi Frans Baar og fjöl- skyldu í Kanada og Unni Örnu og fjölskyldu í Hafnarfirði mínar dýpstu samúðarkveðjur, guð veri með ykkur í sorg ykkar. Regína G. Arngrímsdóttir. Ragna Arngríms- dóttir Baar ✝ Hjartkær bróðir okkar og mágur, ARNGRÍMUR INDRIÐI ERLENDSSON, Klettahrauni 17, Hafnarfirði, lést á heimili sínu sunnudaginn 28. mars. Útförin verður auglýst síðar. Sigurfljóð Erlendsdóttir, Anna G. Erlendsdóttir, Kristján J. Ásgeirsson, Davíð V. Erlendsson, Vignir Erlendsson, Inga A. Guðjónsdóttir, Steinar R. Erlendsson, Dagrún E. Ólafsdóttir, Erla M. Erlendsdóttir, Ólafur Ö. Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.