Morgunblaðið - 31.03.2010, Side 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010
✝ Ríkharður varfæddur í
Reykjavík hinn 8.
júlí 1980. Hann lést
á heimili sínu í
Gautaborg 19. febr-
úar 2010.
Foreldrar hans
eru dr. Vigdís
Hansdóttir, yf-
irlæknir í Svíþjóð,
fædd í Eyjum í Kjós
hinn 3. janúar 1952
og Róbert Árni
Hreiðarsson Dow-
ney, lögfæðingur,
fæddur í Reykjavík hinn 16. maí
1946.
Vigdís er yngst 9 systkina,
barna Hans Guðnasonar bónda á
Hjalla í Kjós og Unnar Her-
mannsdóttur, kennara. Foreldrar
Hans voru Guðni Guðnason, bóndi
í Eyjum í Kjós, og Guðrún Hans-
dóttir Stephensen. Foreldrar
Unnar voru Hermann Þórðarson,
kennari, frá Glitstöðum í Norður-
árdal og Ragnheiður Gísladóttir,
Einarssonar prófasts í Stafholti.
Róbert, faðir Ríkharðs, er elstur 7
systkina. Kynforeldrar hans voru
William Gerald Downey Jr.,
hæstaréttarlögmaður, bankamað-
ur og höfðuðsmaður í land-
gönguliði Bandaríkjahers, fædd-
ur í New York, og Laufey
Árnadóttir Downey, húsfreyja,
Eldri sonur Vigdísar og Ró-
berts er Tómas Kristófer, f. 4. júlí
1977 (London School of Econo-
mics ’01, Post-Graduate Diploma,
Finance and Economics. Univers-
ity: University of Portland ’00, BA
Political science). Tómas er bú-
settur í London og vinnur hjá
Delta Tre Media í London. Hann
er kvæntur Nickila Charles Ro-
bertsson, kennara, frá Bandaríkj-
unum. Synir þeirra eru Kristján,
fæddur í september 2008 og Lúk-
as, fæddur í desember 2009. Hálf-
bræður Rikka eru: Árni Hreiðar
Róbertsson, kaupmaður í Reykja-
vík, f. 3. mars 1965, kona hans er
Sigríður Hermannsdóttir, kaup-
maður í Reykjavík. Hann á 5 fóst-
ursyni. Róbert Árni Róbertsson,
byggingafræðingur, f. 8. apríl
1969, búsettur í Hafnarfirði,
starfandi hjá Flugstoðum hf.,
kona hans er Ingigerður Jón-
asdóttir. Þau eiga einn son, Vig-
fús, 6 ára. Yngstur er Vilhjálmur
Róbertsson, nemi, f. 13. sept-
ember 1996.
Ríkharður fluttist til Gauta-
borgar í Svíþjóð 1983, þar sem
hann var að mestu búsettur auk
Íslands og Bandaríkjanna. Hann
tók sér millinafnið Liam. Nám
hans fór fram í Svíþjóð og Banda-
ríkjunum, en hann sérhæfði sig í
tölvufræðum. Ríkharður var allt-
af kallaður Rikki á Íslandi og af
fjölskyldum sínum í Svíþjóð og
Bandaríkjunum.
Útför Ríkharðs fór fram í
Gautaborg, en minningarathöfn
fer fram frá Áskirkju í dag, 31.
mars 2010, og hefst athöfnin kl.
12.
fædd í Reykjavík.
Foreldrar Williams
Geralds Downeys
Jr. voru: William
Gerald Downey,
lögfræðingur og
Mary Ryder Dow-
ney, húsfreyja,
bæði frá New York,
foreldrar Laufeyjar
Árnadóttur Dow-
ney voru: Árni
Kristjánsson, vél-
stjóri, og Laufey
Árnadóttir, hús-
freyja. Róbert var
ættleiddur 10 ára gamall af móð-
ursystur sinni, Láru Guðmunds-
dóttur, Jónssonar, stofnanda
Byggingavöruverslunarinnar
Brynju í Reykjavík og eiginmanni
hennar, Valdimari Hreiðari Guð-
jónssyni, Jónssonar, stofnanda
byggingaverslunarinnar Málmur
í Hafnarfirði. Þær Lára og Lauf-
ey voru hálfsystur, sammæðra.
Meðan faðir Róberts gegndi her-
þjónustu eftir seinni heimsstyrj-
öldina bjó fjölskyldan m.a. á Ís-
landi og í Austurlöndum fjær,
síðan á Washington DC-svæðinu í
Bandaríkjunum, en Róbert varð
eftir á Íslandi hjá þeim, Láru og
Hreiðari, þegar komið var að
skólagöngu og vildi hann ekki frá
hverfa. Lára og Hreiðar voru
barnlaus.
Kveðja föður til sonar
Hlýtt og þétt faðmlag. Kveðjukoss
á kinn. Þannig kvöddumst við feðgar í
nóvembermánuði síðastliðnum. Hann
sagði: „Ég elska þig pabbi minn.“ Ég
svaraði: „Ég elska þig Rikki minn.“
Ég fullur vonar um skjóta endur-
fundi, sem við höfðum rætt um.
Hvað hann hugsaði þessa kveðju-
stund veit ég ei. Vil nú vita. Fæ ekki
að vita. Harmþrungið símtal hinn 19.
febrúar frá ástríkri móður hans:
„Rikki er dáinn.“
Mjög er um tregt
tungu að hræra
eða loftvægi
ljóðpundara.
Veit ég það sjálfur,
að í syni mínum
var ekki ills þegns
efni vaxið,
ef sá randviður
röskvast næði,
uns Hergauts,
hendur of tæki.
(Brot úr Sonatorreki í Egils sögu)
Ég kveð með þungum trega minn
elskaða son. Brostnar vonir, brostið
hjarta. Nú ertu kominn heim á feðr-
anna vit. Hvíl í friði elsku sonur.
Pabbi.
Hann Rikki okkar er dáinn. Til-
kynningin um andlát hans var rot-
högg á okkur fjölskyldu hans og vini.
Og erfitt er og verður að sætta sig við
slíkt.
Hann var einstaklega vandaður
ungur maður, hefði orðið þrítugur í
sumar. Átti lífið framundan, en það
hafði því miður verið honum erfitt
um langa hríð. Og við vitum að hann
barðist á móti erfiðum straumum,
eins og hann best gat.
Hann var einstaklega vel gefinn,
sterkgreindur og með eindæmum
handlaginn. Fallegur, ljúfur og góð-
ur félagi. Frábær maraþonhlaupari
og það var einstaklega gaman að
vera viðstödd Parísarmaraþonið í
apríl 2008, þar sem við fjölskyldan
mættum til að fylgjast með hlaupi
þeirra bræðra, Tomma og Rikka.
Ég á ótal margar og góðar minn-
ingar um Rikka, sem áfram munu
lifa í hjarta mínu. Hann var hér hjá
okkur á Íslandi nánast um hver ein-
ustu jól og áramót í áraraðir. Einnig
um sumur, en þá vann hann m.a. í
unglingavinnunni og hjá Vatnsveit-
unni, stóð sig vel og var hvers manns
hugljúfi. Þá minnist ég hinna mörgu
eftirminnilegu tjaldútilega, sem við
fórum í með Rikka og Tomma og síð-
an Villa eftir að hann fæddist. En
Rikki elskaði litla bróður sinn og vildi
alltaf allt fyrir hann gera. Ég minnist
einnig heimsókna til hans í Svíþjóð
og þegar hann var hjá okkur á Spáni.
Það var yndislegur tími með yndis-
legum dreng.
Megir þú hvíla í friði, elsku Rikki,
og við munum aldrei gleyma þér.
Þín
Ingigerður.
Ríkarður Liam Róbertsson var
bróðir minn.
Hann var svo oft hjá okkur og oft
kom hann um jólin. Þá fórum við vin-
ir mínir og hann í snjóstríð og bjugg-
um til snjóhús. Það þótti okkur
skemmtilegt. Hann fékk mig til að
fara að læra á píanó og það varð til
þess, að fleiri vinir mínir fóru líka að
læra á píanó. Hann samdi sjálfur lög á
píanóið í kjallaranum hjá okkur og
okkur strákunum fannst hann vera
mjög klár. Þegar hann hljóp maraþon
í París og ég, mamma og pabbi vorum
þar að fylgjast með, gaf hann mér me-
dalíuna sína. Hann var alltaf að hugsa
um mig, litla bróður sinn.
Ég varð mjög sorgmæddur þegar
hann dó og sakna hans mikið. Hann
var ekki bara bróðir minn heldur líka
einn besti vinur minn.
Þinn bróðir,
Vilhjálmur.
Það er með söknuði sem ég í dag
kveð Rikka, elskulegan frænda minn
og vin. Þó Rikki hafi verið búsettur í
Svíþjóð frá barnsaldri var ávallt gott
samband milli okkar sem og frænd-
systkina hans allra hér á landi. Það
var alltaf tilhlökkunarefni þegar hans
var von og því var ekkert öðruvísi far-
ið í nóvember sl. þegar hann hringdi
og boðaði komu sína.
Strax var lagt á ráðin um frænd-
systkinahitting hér heima hjá mér á
Seilugrandanum og þangað mætti
Rikki glaður og kátur. Margt var
spjallað og mikið hlegið og Rikki
sagði okkur frá framtíðaráformum
sínum með blik í auga, t.d. frá litla
tölvufyrirtækinu sínu sem hann hafði
mikil áform um að stækka og betr-
umbæta. Ný Íslandsheimsókn var
ráðgerð í sumar og endurfundir og
ferðalög voru skipulögð. Af því verð-
ur ekki því Rikki hefur nú lagt upp í
aðra og lengri ferð. Megi upphiminn
opna faðm sinn og taka vel á móti góð-
um dreng sem sárt er saknað.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson.)
Ragnheiður Ásta.
Í haust kom Rikki frændi minn í
heimsókn til Íslands. Það mjög gam-
an að hitta hann glaðan og ánægðan
og sjá fallega brosið hans sem náði
alltaf líka til augnanna. Hann kom
heim til mín og við rifjuðum upp
margt frá því að hann var lítill dreng-
ur og var stundum í pössun hér hjá
mér. Hann var hjá mér um páskana
þegar hann var á öðru ári. Þá fóru for-
eldrar hans og Tómas bróðir á skíði til
Akureyrar. Það var mjög ánægjuleg-
ur tími. Við fórum líka í Kjósina. Þar
komum við í sumarbústaðinn minn og
aðeins í gamla fjósið og hlöðuna á
Hjalla. Þar sem húsráðendur voru
ekki heima fórum við ekki í íbúðar-
húsið. Við skoðuðum allar þær breyt-
ingar sem búið er að gera þar og
fannst þær mjög skemmtilegar. Á
leiðinni í Kjósina komum við til Þing-
valla. Rikka fannst mjög gaman að
koma þangað vegna þess að hann
hafði aldrei komið þangað að vetri til.
Hann var með myndavél og tók
margar myndir á Þingvöllum og líka í
Kjósinni.
Rikki hafði mikinn áhuga á lang-
hlaupi og tók þátt í maraþonhlaupum
ásamt Tómasi bróður sínum. Hann
langaði til að hlaupa á milli Reykja-
víkur og Hjalla og fékk hjá mér kort
svo að hann gæti áttað sig á leiðinni.
Þegar Rikki var þriggja ára flutti
hann til Svíþjóðar ásamt mömmu
sinni og bróður. Þau komu til Íslands
á sumrin til að byrja með en svo komu
þeir bræður og voru þá hjá pabba sín-
um. Þeir eru báðir fæddir í júlí og eru
afmælisveislur sem við komum í hjá
pabba þeirra ógleymanlegar. Seinni
árin komu þeir um áramót eða jól og
var alltaf jafn gaman að hitta þá. Ég
þakka fyrir allar þær stundir sem ég
fékk að vera með Rikka en þær voru
allt of fáar á seinni árum.
Ég sendi Dísu, Lars Peter, Tómasi,
Nicki, Róbert, Hreiðari, Róbert yngri
og Vilhjálmi mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur og bið Guð að vera með
þeim.
Helga Hansdóttir.
Rikki náði taki á hjarta mínu barn-
ungur að árum. Við bundumst kær-
leiksböndum sem slitnuðu ekki. Hann
var glaðvært barn og undi sér við
endalausa ævintýrheima. Hann var
ljúfur og ómótstæðilegur þegar hann
brosti en þá færðist yfir andlit hans
svo mikil gleði að það var ekki hægt
annað en smitast af henni.
Það var alltaf stutt í prakkarann í
Rikka og það kætti hann að heyra
sögurnar um prakkaramúsina. Hann
átti auðvelt með að lifa sig inn í at-
burðarásina í sögunum og bað stöð-
ugt um nýjar.
Það var auðvelt að láta sér þykja
vænt um Rikka og bræður hans alla.
Hvert minningarbrotið af öðru kem-
ur upp í hugann. Gleðigjafinn og
grallarspóinn Rikki fann alltaf upp á
einhverju skemmtilegu og færðist í
aukana ef maður var til í slaginn. Þá
kom brosið hans fallega sem varð til
þess að það var haldið áfram með
endalaus prakkarastrik.
Hann hafði fallega sál og vildi öll-
um vel. Einu sinni kom hann með sól-
skin í bakpokanum heim til Íslands,
bara til að gleðja okkur því það hafði
rignt svo mikið.
Hratt flýgur stund. Rikki minn allt
í einu orðinn fullorðinn. Færri sam-
verustundir, en alltaf jafn hlýtt á milli
þegar tækifæri gafst til að hittast. Ég
var bæði stolt og snortin þegar hann
bað mig um að fá að dvelja hjá okkur
Björgu dóttur minni, á ferð sinni á
heimaslóðirnar í vetur. Hann kom
með gleðina sína, vinaþelið og sterka
nærveruna inn á heimilið. Svo falleg-
ur og þakklátur fyrir hvert viðvik.
Rikki var mjög hlýr og einlægur. Allt
var eins og í gamla daga. Það var eins
og hann hefði alltaf verið á staðnum.
Við áttum góðar stundir hér þrjú í
kotinu. Yljuðum okkur við gamlar
minningar og bjuggum til nýjar. Þeg-
ar kom að kveðjustund kom gamla
tómleikatilfinningin frá því á árum
áður.
Nú er komið að hinstu kveðju-
stund. Sorgin og söknuðurinn nístir
og næðir um hug og hjarta. Um leið
og ég kveð hjartfólginn vin, vil ég
þakka honum fyrir samfylgdina, kær-
leikann og gleðistundirnar sem hann
gaf mér. Ég bið góðan Guð að helga
söknuð og trega ástvina hans allra.
Blessað sé nafn hans og minning.
Far þú í friði, friður Guðs þér fylgi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Með hlýhug,
Áslaug.
Ríkharður Liam
Róbertsson
HINSTA KVEÐJA
Hann heilsaði á flugvellinum
með þéttu faðmlagi. Hann kom
frá Gautaborg til Akureyrar.
Var tvo daga. Við skoðuðum
bæinn. Hann myndaði. Eyja-
fjörðinn, Kaldbak, Akureyri,
Hlíðarfjall, Súlur. Ætlaði að
koma aftur. Helst í sumar.
Kynnast föðurlandinu. Við ætl-
uðum að Mývatni, líka í Herðu-
breiðarlindir. Hann kvaddi á
flugvellinum með þéttu faðm-
lagi. Nú er hann farinn. Við för-
um hvergi. Aldrei.
Bernharð Haraldsson.
Fleiri minningargreinar um Rík-
harð Liam Róbertsson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
JÓHANNA BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Mánagötu 5,
Keflavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 18. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á SOS-barnaþorpin.
John Þór Toffolo,
Danival Toffolo,
Sólveig Toffolo, Luca Marchioni,
Líf Marchioni,
Emma Marchioni.
✝
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HERBERT DALMANN KRISTJÁNSSON,
Hörgatúni 19,
Garðabæ,
andaðist á heimili sínu mánudaginn 29. mars.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ
föstudaginn 9. apríl kl. 13.00.
Dagný Austan Vernharðsdóttir,
Kolbrún Herbertsdóttir, Brynjar Þ. Emilsson,
Sveinn Haukur Herbertsson, Anna María De Jesus,
Egill Grétar Björnsson, Chairat Chaiyo,
Karen Tara Steinþórsdóttir,
Hinrik Sveinsson,
Ívan Herbert Sveinsson
og Kolbrún Camell Brekmann.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
bróðir og mágur,
JÓHANN EYÞÓRSSON,
Lækjarbergi 4,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 8. apríl kl. 15.00.
Valdís Þorkelsdóttir,
Anna Jóhannsdóttir, Jón Örn Brynjarsson,
Eyþór Kristinn Jóhannsson,
Kristín Þórey Eyþórsdóttir, Gísli Þorláksson,
barnabörn og frændsystkini.