Morgunblaðið - 31.03.2010, Page 33

Morgunblaðið - 31.03.2010, Page 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 Sudoku Frumstig 3 1 4 8 8 5 6 7 2 2 1 7 6 4 5 7 6 3 2 6 8 4 5 3 7 4 9 1 3 3 6 2 1 9 6 2 6 1 5 7 7 5 4 7 2 2 4 1 3 4 7 5 3 1 8 3 9 7 7 4 1 5 1 9 3 4 9 2 8 5 3 1 8 9 6 8 3 5 1 2 7 4 7 4 1 8 2 9 5 6 3 2 5 3 4 6 7 9 1 8 4 3 6 2 7 8 1 5 9 8 7 9 1 4 5 6 3 2 5 1 2 9 3 6 8 4 7 3 9 4 6 1 2 7 8 5 1 8 7 5 9 3 4 2 6 6 2 5 7 8 4 3 9 1 5 7 9 4 8 6 1 2 3 1 8 3 7 2 9 4 5 6 2 4 6 3 5 1 8 7 9 7 3 8 6 4 5 9 1 2 6 1 5 2 9 7 3 8 4 9 2 4 8 1 3 5 6 7 4 6 7 1 3 8 2 9 5 3 5 1 9 6 2 7 4 8 8 9 2 5 7 4 6 3 1 7 2 3 6 5 4 8 1 9 5 9 4 3 8 1 6 2 7 6 1 8 7 2 9 4 5 3 3 8 6 1 4 7 2 9 5 2 4 1 9 6 5 7 3 8 9 7 5 2 3 8 1 6 4 8 6 2 4 9 3 5 7 1 4 3 7 5 1 6 9 8 2 1 5 9 8 7 2 3 4 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 31. mars, 90. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Kostið kapps um að kom- ast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta. (Lk. 13, 24.) Nú líður að páskum og tímipáskaeggjanna rennur upp. Víkverji er orðinn það aldraður að hann er hættur að fá páskaegg, en verður þó að viðurkenna að honum finnst fátt betra en að gæða sér á páskaeggjum og innvolsi þeirra. Málshættirnir eru eina kaloríu- snauða innihaldið í páskaeggjunum, en það dregur ekki úr gildi þeirra. Víkverji hefur hins vegar tekið eftir því á undanförnum árum að máls- hættirnir verða stöðugt tor- kennilegri. Ekki það að þeir séu óskiljanlegir, Víkverji hefur einfald- lega aldrei heyrt flesta þeirra máls- hátta, sem innan úr páskaeggjunum koma. x x x Um helgina var Víkverji í sam-sæti þar sem allir fengu lítið páskaegg eftir matinn. Þegar gest- irnir fóru að bera saman málshætt- ina kom í ljós að enginn þeirra hljómaði kunnuglega, hvorki „ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé kom- ið“ né „oft fylgir böggull skammrifi“. Það var líkt og þarna væru saman komnir aðkomumenn í menningar- samfélagi, sem þeir þekktu ekki, en ekki fólk, sem hefur hrærst í sam- félaginu mestalla sína tíð. Víkverji fékk til dæmis málsháttinn „þol- inmæði hefur maður mesta þörf fyr- ir þegar hún er að verða búin“. Þetta hljómar vissulega skynsamlega, en myndi seint kallast íslenskur máls- háttur. Svipuð hugsun er hins vegar í málshættinum „þolinmæði þrautir vinnur allar“, en hann rataði ekki í páskaeggið að þessu sinni. x x x Ekki er þó þar með sagt að allirmálshættir hljóti að hljóma kunnuglega. Víkverji fletti máls- hættinum sínum upp í Íslenskum málsháttum eftir Bjarna Vilhjálms- son og Óskar Halldórsson og fann ekki, en rakst hins vegar á „sá verð- ur ættarskömm sem illum föður er verri“, „bólan gerir ófagurt enni“ og „þangað fýsir elskhugann, sem unn- ustan er“. Víkverji hefur ekkert á móti því að læra málshætti, en finnst fulllangt gengið að þeir séu tómur tilbúningur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skinnpoka, 4 húsdýra, 7 ekki gáfna- ljós, 8 býsn, 9 liðin tíð, 11 kná, 13 eldstæði, 14 fyr- irgefning, 15 málmur, 17 mæla, 20 regn, 22 gugg- in, 23 kvendýrið, 24 gabba, 25 líkamshlutar. Lóðrétt | 1 beiskur, 2 tauga- áfalls, 3 þolin, 4 rispa, 5 ber, 6 Mundíufjöll, 10 meinsemd- in, 12 frostskemmd, 13 títt, 15 stólarnir, 16 sjófuglar, 18 hagnaður, 19 mannsnafn, 20 þyngdareining, 21 gangflöt- urinn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skapvonda, 8 sópur, 9 notar, 10 tía, 11 rorra, 13 reiða, 15 hæsin, 18 sagga, 21 enn, 22 storm, 23 úlpan, 24 fiðringur. Lóðrétt: 2 kopar, 3 parta, 4 ofnar, 5 dotti, 6 ásar, 7 erta, 12 rói, 14 eta, 15 hosa, 16 svoli, 17 nemur, 18 snúin, 19 göptu, 20 agna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. Rc3 Rf6 3. Bg5 e6 4. e4 dxe4 5. Rxe4 Be7 6. Bxf6 Bxf6 7. Rf3 O-O 8. c3 b6 9. Bd3 Bb7 10. Dc2 Be7 11. O-O-O f5 12. Red2 Bf6 13. Hhe1 He8 14. h4 c5 15. dxc5 Ba6 16. Rc4 Dc7 17. Rd6 He7 Staðan kom upp í seinni hluta Ís- landsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Rimaskóla í Reykjavík. Danski alþjóðlegi meistarinn Thor- bjorn Bromann (2435) hafði hvítt gegn Ólafi Kjartanssyni (2027). 18. Bxf5! exf5 19. Db3+ og svartur gafst upp enda hefði hann orðið mát eftir 19… Kf8 20. Df7+! Hxf7 21. He8# og 19… Kh8 20. Rf7+. Skák- þing Íslands, áskorendaflokkur, hefst í dag í íþróttamiðstöðinni Lágafelli, Mosfellsbæ. Nánari upp- lýsingar um mótið er að finna á www.skak.is. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Skrítinn samningur. Norður ♠972 ♥Á743 ♦ÁKD75 ♣2 Vestur Austur ♠106 ♠G8543 ♥K2 ♥G108 ♦942 ♦G ♣ÁD10764 ♣K853 Suður ♠ÁKD ♥D965 ♦10863 ♣G9 Suður spilar 4G. Skrítinn samningur, fjögur grönd. En allt á sér skýringar. Spilið er frá úrslitaleik Vanderbilt, milli sveita Zim- mermans og Fleishers. Liðsmenn Zimmermans melduðu 4♥ á öðru borð- inu og unnu auðveldlega, en Kamil og Fleisher lentu í vandræðum gegn Zim- merman og Multon. Skal nú frá greint. Austur passaði í upphafi og það gerði Kamil í suður líka, þrátt fyrir 12 punkta. Fyrir vikið gat Multon í vestur beitt skæruhernaði með 9-11 punkta dvergagrandi. Fleisher í norður dobl- aði og Zimmerman í austur flúði í 2♠. Nú vildi Kamil bæta upp fyrri deyfð og stökk í 3G. En Fleisher leist illa á þann áfangastað á móti pössuðum makker og breytti í 4♦. Ekki vitlaust, en Kamil var ekki með á nótunum og sagði 4G. Allir pass, lauf út og þrír nið- ur. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú hefur sterka löngun til að skipuleggja líf þitt betur. Vinir munu skilja þig, svo þér óhætt að láta ástina teyma þig áfram. (20. apríl - 20. maí)  Naut Hljóð vekja tilfinningar og ef þú hlustar opnast hjarta þitt. En þú þarft að vera tilbúin/n til að hlusta. Spurningar um ástarsambnd leita á hugann. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ef þú hlustar vel og tekur á móti visku annarra kemurðu miklu í verk með litlu erfiði. Forðastu að dragast inn í at- burðarás sem kemur þér ekkert við. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er hætt við hörðum deilum um stjórnmál og trúmál í dag. Mundu bara, þegar sigurinn er í höfn, að aðrir lögðust á árarnar með þér. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Fyrir suma snýst jafnvægi í fjár- málum um að vilja minna og afla meiri tekna. Láttu ímyndunaraflið ráða för, þú kemur hvort sem er litlu í verk í dag. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú gætir lent í þrasi í dag vegna þess að einhverjir eru ósammála þér. Vin- ur leitar til þín. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Reyndu að halda ró þinni hvað sem á dynur. Að mörgu er að hyggja varðandi helgina, ekki er ráð nema í tíma sé tekið. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það reynir á stjórnunarhæfi- leika þína og það skiptir miklu að þú bregðist rétt við aðstæðum. Þú hefur fast- mótaðar hugmyndir um veisluhöld. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Gættu þín á tilhneigingunni að vera stutt/ur í spuna við maka, félaga eða smáfólkið í dag. Reyndu frekar að leggja fólki lið en að gagnrýna það. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Farðu varlega í námunda við foreldra þína, kennara og yfirmenn, sem gætu sprungið af bræði af minnsta tilefni. Ræddu fjáröflunarhugmyndir þínar við aðra og kannaðu viðbrögð þeirra. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Forvitni er þér eðlislæg og þú fellur aftur og aftur fyrir hinu eilífa nýja- brumi. Stingdu þér í djúpu laugina! Þá veistu ekki hvað hlutirnir eru erfiðir og munt afreka miklu meira. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Nú er það þolinmæðin sem gildir því það myndi aðeins flækja hlutina að fara að vera með einhvern bægslagang. Samskipti sem þú átt við manneskju í vogarmerkinu gleðja þig. Stjörnuspá 31. mars 1955 Allri áhöfn, 42 mönnum, var bjargað þegar togarinn Jón Baldvinsson strandaði við Reykjanes, skammt frá gamla vitanum. Morgunblaðið sagði að þetta hefði verið mikið björgunarafrek. 31. mars 1967 Við nauðungaruppboð á hús- eign við Njálsgötu í Reykja- vík læsti húseigandi fógeta og fleiri viðstadda inni. Lög- reglan var kvödd á staðinn og sá til þess að embætt- ismennirnir gætu unnið sín störf. 31. mars 2007 Hafnfirðingar höfnuðu til- lögum um stækkun álversins í Straumsvík með 88 atkvæða mun. Andvígir stækkun voru 6.382 en 6.294 hlynntir. Kosn- ingaþátttaka var 77%. „Það er mikil sorg í mönnum og vonbrigði,“ sagði Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi í samtali við Fréttablaðið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Guðni Frið- riksson frá Sveinungsvík í Þistilfirði er ní- ræður í dag 31. mars. Hann er einn af stofn- endum FHUE. Guðni starfaði mestan sinn starfsaldur hjá Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Guðni býr nú á dvalarheimilinu Hlíð á Ak- ureyri. 90 ára Gunnar Pét- ursson frá Grænagerði við Skutulsfjörð er áttræður í dag, 31. mars. Hann eyðir kvöldinu með fjölskyldu sinni á Ísafirði. 80 ára SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR, sauðburður og ferming eru meðal verkefna sem Finnbogi Leifsson, bóndi í Hítardal er að fást við þessa dag- ana, en hann fagnar 55 ára afmæli í dag. Finnbogi hefur setið í sveitarstjórn frá 1984, fyrst í hreppsnefnd Hraunhrepps þar sem hann var oddviti um skeið. Eftir sameiningu sveitarfé- laga í Mýrasýslu hefur Finnbogi setið í bæj- arstjórn Borgarbyggðar fyrir hönd Framsókn- arflokks. Hann verður í 2. sæti á lista flokksins í kosningunum sem fram fara í maí. Finnbogi rekur stórt sauðfjárbú í Hítardal. Hann sagði að vorið yrði annasamt því sauðburður hæfist á fullu í lok apríl, einmitt þegar kosningabaráttan er að ná hámarki. Nokkur lömb eru þegar kominn í heiminn í Hítardal. Síðastliðinn sunnudag var Finnbogi að ferma yngsta barnið, Huldu Rún. Finnbogi er forfallinn fótboltaáhugamaður og sagðist hlakka til sumarsins þegar heimsmeistarakeppnin í S-Afríku hefst. Erfitt getur þó orðið fyrir Finnboga að sitja yfir boltanum alla daga því hann eins og aðrir bændur þarf að sinna heyskap. Finnbogi sagðist hins vegar taka leikina upp og horfa á þá þegar færi gæfist. egol@mbl.is Finnbogi Leifsson bóndi í Hítardal 55 ára Kosningabarátta í sauðburði Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.