Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 31.03.2010, Qupperneq 34
34 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HMM HVERNIG ÞÆTTI ÞÉR EF ÉG GERÐI ÞETTA VIÐ ÞIG? HVAÐ KEMUR ÞAÐ MÁLINU VIÐ? VARSTU ÞYRSTUR? HRÓLFUR! HERTOGINN AF EDGEMONT ER KOMINN TIL AÐ SKORA ÞIG Á HÓLM... EF ÞÚ ERT EKKI OF UPPTEKINN! SEGÐU HONUM AÐ ÉG KOMI RÉTT STRAX! SEGÐU HONUM LÍKA AÐ ÉG FARI Í BAÐ EINU SINNI Á ÁRI... HVORT SEM ÉG ÞARF Á ÞVÍ AÐ HALDA EÐA EKKI! BADA BING, HVERNIG VAR EIGINLEGA Í HUNDABYRGINU? ERFITT ÞEGAR MAÐUR HELDUR AÐ MAÐUR SÉ SLOPPINN... ÞÁ DRAGA ÞEIR MANN AFTUR INN ÞESSI BÓK SEM ÉG NÁÐI Í Á NETINU UM HVERNIG HÆGT ER AÐ LOSNA UNDAN HRAÐASEKTUM ER ANSI GÓÐ. ÉG HELD ÉG SÉ TILBÚIN AÐ MÆTA FYRIR RÉTT PRÓFAÐU BARA AÐ SPYRJA MIG AÐ EINHVERJU OK... GERÐIR ÞÚ ÞÉR GREIN FYRIR ÞVÍ AÐ ÞÚ KEYRÐIR YFIR HRAÐA- TAKMÖRKUM? LEYFÐU MÉR AÐEINS AÐ FLETTA ÞESSU UPP ÉG ER EKKI VISS UM AÐ ÞÚ SÉRT ALVEG TILBÚIN ELSKAN, ERTU BÚIN AÐ FRÉTTA HVAÐ GERÐIST? JÁ! NÚNA HALDA ALLIR AÐ ÞESSI GLÆPAMAÐUR SÉ ÞÚ! OG ÞÚ GETUR EKKI GERT NEITT TIL AÐ SANNA HIÐ GAGNSTÆÐA Ráð fyrir Jóhönnu og fleiri RÁÐLEGGING til Jóhönnu forsætisráð- herra, kettir eru sólgnir í mýs og þá þarf hún ekki að smala enda ekki beint hlaupaleg. Ráð til frumkvöðla, fram- leiðið kattasand það þarf mikið af honum í Stjórnarráðið. Ráð til almennings, ef Vinstri grænir sjást á flæk- ingi þá farið með þá í Kattholt, Jóhanna kallar þá ketti og Vinstri grænir samþykktu það á þingflokksfundi. Þvílík ríkisstjórn sem við höfum. E.J. Ábending til Tryggingastofnunar ÉG VIL benda Tryggingastofnun á að þegar 1. dag mánaðarins, sem er útborgunardagur hjá Trygg- ingastofnun, ber upp rauðan dag, til dæmis eins og skírdag núna sem er 1. apríl, þá getur fólk ekki komist í banka fyrr en þriðjudaginn 6. apríl. Þetta getur valdið vandræðum fyrir fólk sem ekki notar netbanka eða kort, því margur not- ar enn bankabókina og þarf að fara í banka til að taka út peninga. Ingibjörg. Upplifun að sjá gosið ÞAÐ VAR sterk upplifun að koma að eldstöðinni, Þórðarfjalli á Fimmvörðuhálsi síðastliðinn laug- ardag. Að sjá eldvarpið og hraun- rennslið var eitthvað svo mik- ilfenglegt. Ég hef upplifað allmörg gos um ævina en aldrei áður kom- ið svona nálægt gosstöð og núna. Feikilega gaman og gefandi. Njörður Helgason. Ást er… … þegar leyndar tilfinn- ingar eru afhjúpaðar. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnu- stofa kl. 9, postulín. Grandabíó, kvik- myndaklúbbur, útskurður og postulíns- málning kl. 13. Árskógar 4 | Handav., smíði/útskurður kl. 9, heilsugæsla kl. 10, söngstund kl. 11. Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur, glerlist allan daginn. Böðun og hárgreiðsla. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9, leik- fimi kl. 10, Júlíus Vífill Ingvarsson syng- ur kl. 12.30. Verslunarferð kl. 14.40. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, vefnaður kl. 9, leikfimi kl. 11. Félag eldri borgara, Reykjavík | Söngvaka kl. 14, umsj. Sigurður Jónsson og Helgi Seljan, FEB söngæfing kl. 17. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30 og 10.30, glerlist kl. 9.30 og 13, leiðbeinandi í handavinnu við frá kl. 10, félagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15- 16, bobb kl. 16.30, línudans kl. 18, sam- kvæmisdans kl. 19. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd- list kl. 9, ganga kl. 10, postulín og kvennabrids kl. 13, Sturlunga kl. 16. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi, kvennaleikfimi, brids og bútasaumur, fastir tímar. Lokað á morg- un, föstudag og mánudag. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Lokað til 6. apríl. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, harmonikkutónlist, söngur dans og létt leikfimi kl. 10. Frá hádegi er spilasalur opinn. Starfsemi og þjónusta fellur niður hátíðardagana. Opnað 6. apríl samkvæmt dagskrá. Furugerði 1, félagsstarf | Skart- gripagerð kl. 9.30, söngstund kl. 14.15, Aðalheiður og Anna Sigga við píanóið. Grensáskirkja | Samverustund kl. 14 í safnaðarheimilinu. Hraunbær 105 | Handavinna og út- skurður kl. 9, tálgað með Óla kl. 13. Hraunsel | Rabb kl. 9, pútt og bók- mennta/sögu-klúbbur kl. 10, línudans kl. 11, handavinna og útskurður kl. 13, píla/ bingó kl. 13.30, Gaflarakórinn kl. 16, biljard alla virka daga kl. 9. Hvassaleiti 56-58 | Vinnustofa kl. 9, samverustund kl. 10.30, fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík koma í heimsókn kl. 13.30. Lokað um bæna- dagana. Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega í dag. Sími 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópavogs- skóla kl. 15.30. Upplýsingar í síma 554- 2780 og á glod.is. Korpúlfar Grafarvogi | Keila í Keiluhöll- inni við Öskjuhlíð á morgun kl. 10. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr- unarfræðingur kl. 10.30, iðjustofa – námskeið í glermálun kl. 13, handverks- stofa – myndlistarnámsk. kl. 13. Leshópur FEBK Gullsmára | Arngrímur Ísberg les Sturlungasögu kl. 16, í félags- heimilinu Gullsmára kl. 16. Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9, fé- lagsvist kl. 14. Sími 411-2760. Vesturgata 7 | Myndm./postulín kl. 9, sund kl. 10, Bónus kl. 12.10, trésk. kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, handavinnustofan opin, samvera, söng- ur með Sigríði og helgistund, fram- h.saga kl. 12.30, bókband, verslunarferð kl. 12.20, Dansað við undirleik Vita- torgsbandsins kl. 14. Þórðarsveigur 3 | Handavinna með Huldu Guðmunds. kl. 9. Jóhann Jónsson er skáld mánaðar-ins á Bókasafni Seltjarnarness og eru þar óbirt bréf og frásagnir frá honum, sem send voru hjónunum Elís Jónssyni og Guðlaugu Eiríks- dóttur á Djúpavogi. Þar var Jóhann heimiliskennari og kenndi dætrum þeirra, Halldóru og Guðnýju, en Skúli Pálsson, sonur Halldóru, lán- aði munina á sýninguna. Í einu bréfinu er ferðalýsing frá Djúpavogi til Reykjavíkur og segir þar frá stund í sæluhúsinu á Skeið- arársandi, þar sem gáfan kom yfir Jóhann og séra Friðrik. Klerkur átti fyrsta orðið: Þótt Skeiðará sér skellti fram úr skriðjöklinum svarta hefði ég Jón og hófaglamm heyrðist ég naumast kvarta. Jóhann svaraði: Þótt mig skelfi Skeiðará með skrattapörum sínum veð ég það, sem vaða má und verndararmi þínum. Og hann bætti við: Ég hefi nokkuð flækst um Frón og fundið af mörgu kvíða en fengi ég þig til fylgdar Jón þá færi ég, held ég, víða. Sigurður Jónsson tannlæknir byrjar alla daga á því að yrkja vísu í sundlauginni. Í gærmorgun orti hann um kattasmölunina: Jóhanna hefur með harla skýrum hætti náð að tala, því köttum er af öllum dýrum erfiðast að smala. Pétur Stefánsson yrkir í aðdrag- anda sveitarstjórnarkosninga: Þó allt sé laskað eftir hrun og eldfjall sé að gjósa, í borgarstjórn ég bráðum mun besta flokkinn kjósa. Vísnahorn pebl@mbl.is Af Skeiðará og köttum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.