Morgunblaðið - 31.03.2010, Síða 36

Morgunblaðið - 31.03.2010, Síða 36
36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010  Hin skemmtilega nefnda Blues Willis er úr Hafnarfirði og sækir auðsjáanlega innblástur til has- arhetjunnar óðdauðlegu. Sveitin er nú með fjögurra laga stuttskífu klára og mun fagna henni næst- komandi fimmtudag (skírdag) á Næsta bar. Efalaust verður mikill hasar þar (ho ho ho). Bruce Willis innblástur fyrir íslenskt rokk Fólk BLÚSHÁTÍÐ í Reykjavík er á blússandi siglingu um þessar mundir og í kvöld mun ein af goðsögnum tónlist- arformsins troða upp á Hilton Reykjavík Nordica Hotel, og það á slaginu kl 20. Billy Branch, fyrrverandi munnhörpuleikari Willie Dixon og Chicago Blues All Stars, kemur þá í fyrsta skipti fram á Blúshátíð í Reykjavík. Billy Branch er einn af virtustu og vinsælustu blúsmönnum heims í dag, margverðlaunaður og hefur spilað með flestum stórstjörnum blústónlistarinnar frá upphafi. Branch fluttist til Chicago, vindasömu borg- arinnar, á unglingsárum og sótti nám við há- skólann í Illinois-fylki. Fyrr en varði var hann kominn í sveit með blúsrisanum Willie Dixon og leysti þar Carey Bell af í munnhörpuleiknum. Á áttunda áratugnum stofnaði hann eigin sveit, The Sons of the Blues, en með honum þar voru þeir Lurrie Bell gítarleikari og Freddie Dixon bassaleikari, synir þeirra Willies og Careys. Branch er í dag eftirsóttasti blúsmunnhörpuleikari Chicago og hefur auk þess komið að kennslu í skólum, stýrði m.a. verkefninu Blues in the Scho- ols. Síðasta plata Branch, Don’t Mess With The Bluesmen, kom út árið 2004 en þar leikur gítarleikarinn Carlos Johnson með honum. Á tónleikunum kemur einnig fram íslenska stór- söngkonan Ragnheiður Gröndal og syngur blús. Blúshátíð lýkur svo á morgun með tónleikum Su- per Chikan. Dagskrá má nálgast á www.blues.- is. Billy Branch spilar á Blúshátíð í kvöld Blúsaður Billy Branch í stuði.  Útgáfudagur fyrstu sólóplötu Jónsa er 5. apríl næstkomandi. Stærri rit í músíkkreðsunni eru far- in að birta dóma um hana og má skynja mikla spennu ytra gagnvart gripnum. Clash Magazine birti í vikunni afar lofsamlegan dóm um plötuna, gefur henni 9 af 10 og seg- ir plötuna það besta sem Jónsi hafi afrekað á ferli sínum. Rýnir talar um að Sigur Rós hafi verið orðin fyrirsjáanleg í seinni tíð en leifar af tónlist hennar séu vart á kreiki á þessari plötu. Jónsi sé einlægari en áður, lögin séu stutt og poppaðri og handbragð Nico Muhly skili inn sannkölluðu meistarastykki. „Besta platan á ferli Jónsa til þessa“  Vefsíðan Cool Hunting, sem snuðrar uppi allt sem svalt er eins og nafnið gefur til kynna, skrifar um Hönnunarmars í nýlegri grein. Húsgagnahönnuðir innlendir fá reyndar tvo þumla niður á meðan Sruli Recht er sagður maðurinn og fær tvo feita þumla upp. Það er ekki tekið út með sældinni að vera undir smásjá svalheitaspæjara. „Hippsterar“ fjalla um Hönnunarmars Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is BELGÍUMAÐURINN Wim Van Ho- oste er læknir að atvinnu með atvinnu- sjúkdóma sem sérgrein. Tæplega hálf vinnuvika hjá honum, ca. fimmtán tímar, fara svo í að viðhalda bloggi sem kallast I Love Icelandic Music (með hjartatákni í stað „love“). Lengst getur þó á tímafjöldanum því að Wim þarf stundum að henda inn einhverju einn, tveir og þrír með engum fyr- irvara. Þá er ekki slæmt að hann þarf að keyra í um þrjá tíma til vinnu en hann starfar við sjúkrahús í Brussel. Nýtir hann bílferðina til að hlusta á ís- lenska tónlist en hann er með um 5000 lög í spilastokknum sínum. Plötur og geisladiskar skipta þá hundruðum, t.a.m. á hann 150 diska með Björk. Margar af plötunum eru sjaldgæfar og aðstoðar hann safnara um allan heim í leit sinni að sjaldgæfum íslensk- um plötum. Bjó á Akureyri Ég hitti á Wim á kaffihúsi við Laugaveginn en hann er staddur hér vegna tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður. Hann segist reyna að koma hingað tvisvar á ári, í kringum áð- urnefnda hátíð og svo á Iceland Airwa- ves-hátíðina á haustin. „Ég heyrði „Ammæli“ með Syk- urmolunum á sínum tíma, þá var ég sextán ára. Ég varð heltekinn af lag- inu, hljómsveitinni og síðan landinu. Ég fór að grennslast fyrir um sveitir sem tengdust Sykurmolunum og fór að panta í gegnum póstkröfu frá Smekkleysu. Fór líka að fylgjast með fréttum frá Íslandi en allt þetta fól í sér þónokkra fyrirhöfn í þá daga. Ég fór að safna peningum til að komast til landsins og kom í fyrsta skipti 1991 og ferðaðist um í tvær vikur. Ég hitti fullt af fólki sem var hingað komið út af tónlistinni, fólk frá Ástralíu, Banda- ríkjunum o.s.frv.“ Á endanum kom Wim hingað til að búa. Árið 1998 kom hann og vann sem læknir á Akureyri í rúmt ár. Segir hann vistina þar hafa verið erfiða, samfélagið hafi verið lokaðra en í Reykjavík en hann hafi á móti verið fljótur að læra málið og talar hann sæmilegustu íslensku. Popppunktur í gegnum netið „Eitt sinn kom sveitin Skátar til Belgíu og spilaði þar og ég missti af tónleikunum. Vissi ekki af þeim. Það var ein af ástæðunum fyrir því að ég byrjaði með bloggið. Ég fór að safna efni um íslenska tónlist og hóf að þýða yfir á ensku, með það í huga að búa til einhvers konar fréttaveitu fyrir er- lenda áhugamenn um íslenska tónlist. Ég skrifa þá ekki bara um nýja tónlist, heldur fer ég líka í söguna. Ég tek það líka fram að ég er ekki að dekka alla íslenska tónlist, ég hef mestan áhuga á því sem mætti kalla jaðarrokk.“ Síðan hefur fengið ágætar viðtökur frá áhugamönnum um allan heim, en hún er rekin sem hreint áhugamál, engir kostunaraðilar eru á bak við hana og Wim er ekki í samstarfi við ís- lenska aðila. Vefsíðan er svo hluti af bloggsamfélagi, Music Alliance Pact, sem leiðir saman 36 blogg frá 36 ólík- um löndum. „Ég vinn sjálfstætt ef svo mætti segja (hlær). Ég sinni síðunni á kvöld- in og um helgar. Ég er alltaf að dytta að henni. Stundum þarf ég að setja eitthvað inn strax að mér finnst. Ég er stöðugt að róta eftir nýrri tónlist, finna eitthvað til að setja þarna inn. Ég hlusta svo á aðra tónlist líka en ég ákvað snemma að einbeita mér að ís- lenskri tónlist. Ég viðurkenni að ég tek þetta akademískum tökum, líkast til vegna menntunarinnar. Ég er t.d. mjög harður á því að hafa allar stað- reyndir á hreinu.“ Wim segist hafa ætlað að skrifa bók um þetta áhugamál sitt en segir að Paul Sullivan hafi verið á undan sér (Waking Up in Iceland, 2003). „Ég var með nákvæmlega sömu hugmynd. En hann er miklu betri í ensku en ég, enskan mín er ekki nógu góð finnst mér.“ Wim hefur eðlilega bundist hinum og þessum íslenskum tónlistar- mönnum vináttuböndum og þeir halda honum uppfærðum með fréttir og slíkt. „En í dag, með tilkomu netsins, er þetta orðið svo auðvelt. Ég get streymt íslensku útvarpi og ég fylgdist grannt með síðasta Popppunkti. Ég var reyndar að hugsa um að koma hingað til að búa aftur og var meira að segja búinn að sækja um sem heim- ilislæknir. En svo brast á með bless- uðu hruninu.“ Reynir að greiða götur Spurður um uppáhaldstónlist- armenn íslenska nefnir hann Syk- urmolana, Björk, Ensími og Gang Bang. Síðast heyrði hann nýja plötu með Pascal Pinon og Bárujárni. „Ég ætlaði að búa til einhvern lista yfir hundrað uppáhaldsplöturnar mín- ar en ég held að ég geti það ekki. Þetta er síbreytilegt hjá mér. Stundum fæ ég sendar plötur og fólk biður mig um að gagnrýna þær en ég hef ekki áhuga á að beita mér þannig.“ Wim er ekki að leita sérstaklega eft- ir því að hitta íslenska tónlistarmenn, hann segist kunna því best að sjá þá álengdar á Laugaveginum eða rekast utan í þá á tónleikum. „Þetta er það sem er svo skemmti- legt við þetta land. Nálægðin. Það er ekki hægt að upplifa þetta í öðrum löndum.“ Á dögunum fékk hann plötu Bjarkar frá 1977 að gjöf í skiptum fyrir víny- leintak af Buffalo Virgin með Ham. Hann viðurkennir að tilfinningin hafi verið „góð“ þegar hann handlék þenn- an eftirsótta grip sem fer venjulega á tugi þúsunda íslenskra króna erlendis. „Ég fæ stundum fyrirspurnir um hitt og þetta sem tengist íslenskri tón- list og plötum. Ég reyni að greiða götu fólksins eins og ég get. Fyrir mér snýst þetta fyrst og síðast um að koma tón- listinni á framfæri, breiða út boðskap- inn. Ég er ekkert að sjoppa á eBay eða neitt slíkt. Ég hjálpaði manni um dag- inn að verða sér úti um fyrstu plötu Hudson Wayne. Ég átti eintak og skipti því við hann á annarri plötu. Það skiptir mig máli að gera svona hluti með fólki sem elskar sjálfa tónlistina og er í þessu ástríðunnar vegna en ekki út af einhverju peningaplokki.“ „Ég elska íslenska tónlist“  Belginn Wim Van Hooste hefur verið forfallinn unnandi íslenskrar tónlistar í 23 ár  Heldur úti bloggi þar sem fræðast má um íslenska tónlist, gamla sem nýja Morgunblaðið/Árni Sæberg Sannur „Fyrir mér snýst þetta fyrst og síðast um að koma tónlistinni á framfæri, breiða út boðskapinn.“ Síðan er með bloggsíðusniði og lit- rík mjög. Wim setur t.a.m. inn lag vikunnar og í hliðarstiku má nálg- ast hlekk á youtube þar sem síðan er með útskot. Hægt er svo að fletta marga mánuði aftur í tímann og skoða hinar margvíslegustu færslur um íslenska tónlist. Vefsíðan  Hann Jens Guð, ofurbloggari, tónlistarspekingur, gervigrasa- læknir og húðsnyrtivöruinnflytj- andi kann sitt pönk upp á tíu. Lofar hann liðna pönkhátíð í hástert á bloggi sínu en hún fór fram á Amst- erdam nú á laugardaginn. Stapp- fullt var á staðnum og tóku margar af helstu hetjum íslenska pönksins þátt í atinu. M.a. kom sveitin Snill- ingarnir fram og spilaði hún efni sem ekki hefur heyrst síðan í Kópa- vogsbíói 1980. Segist Jens hlakka til hátíðarinnar 2011. Jens Guð hæst- ánægður með pönkið http://icelandicmusic.blogs- pot.com/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.