Morgunblaðið - 31.03.2010, Side 37

Morgunblaðið - 31.03.2010, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010 Einhverjir fínustu tónleikarsem ég hef farið á voruþeir sem orgelsnilling-urinn Hans-Ola Ericsson hélt í Hallgrímskirkju fyrir nokkr- um árum síðan. Hann lék verk eftir Messiaen og gerði það svo und- ursamlega vel að ég gleymi því aldr- ei. Um helgina settist hann aftur við Klaisorgel kirkjunnar, en í þetta sinn flutti hann tónsmíðar eftir sjálf- an sig. Tónleikarnir mörkuðu upp- haf Kirkjulistahátíðar og má segja að hátíðin hafi byrjað með látum því þarna voru engin smáræðis átök. Það var nefnilega ekki bara orgel kirkjunnar sem hljómaði, heldur var það ríkulega skreytt rafhljóðum. Rafhljóðin byggðust m.a. á upp- tökum á því sem heyrist þegar vængjahurðir í kirkju eru opnaðar og þeim lokað aftur. Einnig gat að heyra hljóm úr gömlum orgelum. Þessi sérstæðu hljóð blönduðust við orgelleik Ericssons og var útkoman oft býsna hávaðasöm. Verkin voru fjögur. Það sísta var jafnframt hið fyrsta, Laglína til minningar um látinn vin. Titillinn vísar til sorgar, en í tónleikaskránni stóð einnig að innblásturinn hefði verið fenginn úr málverki eftir Hie- ronymus Bosch. Málverkið sýnir göngin, „sem þeir sem næst hafa komið dauðanum hafa lýst.“ Í tón- listinni var þannig fólgin von, en ég gat ekki heyrt hana. Þvert á móti hljómaði verkið eins og tónlist við hryllingsmynd, mjög LANGA hryll- ingsmynd. Vel hefði mátt sleppa þessu atriði dagskrárinnar. Meira var varið í næstu tónsmíð, Canzon del Principe, en þar blönd- uðust rafhljóðin og orgelleikurinn í áhugaverðri hugleiðingu um verk eftir endurreisnartónskáldið Carlo Gesualdo. Endurreisnarstíllinn skapaði skemmtilega togstreitu við nútímalega meðhöndlun Ericssons og var útkoman hljómfögur, litrík og spennandi. Þriðja verkið á dagskránni, Vængjahurðir fyrir orgel og raf- hljóð, var ekki eins gott. Hljómurinn í dyrum að opnast var svo djúpur og mikill að maður sá fyrir sér hurð sem var stærri en öll Hallgríms- kirkja! Á þessum hljómi byggðist allt verkið, en þar sem hljómurinn var svo voldugur var erfitt að bæta nokkru við hann. Úrvinnsla Erics- sons var fremur máttleysisleg og virkaði fálmkennd; hljómurinn í hurðinni hefði sennilega dugað einn og sér. Langlengsta tónsmíðin var síðust, Messa byggð á trúartextum eftir Olov Hartman. Þar ægði öllu saman, orgelleikurinn var ýmist kraftmikill eða innhverfur, og annarsheimsleg rafhljóðin, frá örveikum blæbrigðum upp í gríðarlega kröftugar hljóma- sprengjur, komu úr hverju horni. Kaflarnir, sem voru átta, voru furðu- lega ólíkir, og kannski var veikleiki verksins fólginn í því. Fátt virtist tengja þá innbyrðis, og tónmálið var auk þess í einkennilega litlum tengslum við textana sem voru birtir í tónleikaskránni. Maður vissi ekk- ert hvað var að gerast í verkinu! Engu að síður var ýmislegt mjög sérkennilegt, jafnvel ójarðneskt – já, stemningin í mörgum köflunum líkt- ist engu hér á jörð. Það vantaði bara heildarmyndina. Ég held að maður biðji um Messi- aen næst þegar Ericsson heldur hér tónleika. Þrumur í Hallgrímskirkju Ericsson ,,Ég held að maður biðji um Messiaen næst,“ segir m.a. í dómi. Hallgrímskirkja Orgeltónleikarbbmnn Verk fyrir orgel og rafhljóð eftir Hans- Ola Ericsson í flutningi hans sjálfs. Hljóðstjórn: Ríkharður H. Friðriksson. Sunnudagur 28. mars. JÓNAS SEN TÓNLIST FJÓRAR kvikmyndir verða frum- sýndar í bíóhúsum landsins í dag, tvær gamanmyndir, ein rómantísk mynd og ein ævintýramynd. Það verður því fjölbreytt úrval mynda til að skella sér á í páskafríinu. Hot Tub Time Machine Fullorðinsárin hafa farið illa með fjóra vini, sem eru orðnir frekar leiðir á lífinu og finnst það ekki al- veg hafa farið eins og þeir ætluðu. Eftir gott fyllerí í heitum potti vakna þeir árið 1986 og fá annað tækifæri til að ákvarða framtíð sína. Með helstu hlutverk í mynd- inni fara John Cusack, Rob Cordry, Craig Robinson og Clark Duke. Erlendir dómar: Metacritic: 65/100 Variety: 61/100 Rotten Tomatoes: 63/100 How To Train Your Dragon Að Temja Drekann Sinn, eins og hún hefur verið þýdd á íslensku, er ævintýramynd sem fjallar um vík- ingastrákinn Hiccup sem sver sig ekki alveg í ættina en í fjölskyldu hans eru hugumdjarfir drekab- anar. Líf Hiccup breytist þó fljótt þegar hann kemst í kynni við pínu- lítið öðruvísi dreka. Myndin verður sýnd með ensku og íslensku tali og einnig í 3D. Með helstu radd- hlutverk fara Jay Baruchel, Gerard Butler, Craig Ferguson, America Ferrera og Jonah Hill. Metacritic: 74/100 Variety: 79/100 Rotten Tomatoes: 97/100 Dear John Hermaðurinn John kynnist náms- meynni Savannah þegar hann er í tveggja vikna leyfi frá herstöð sinni í Þýskalandi. Ástin kviknar og Sav- annah lofar að skrifa honum þá 12 mánuði sem hann á eftir af herþjón- ustunni en atburðir 11. september leggja stein í götu þeirra þegar John ákveður að skrá sig aftur í herinn. Með aðalhlutverk fara Channig Tatum og Amanda Seyf- ried. Erlendir dómar: Metacritic: 43/100 Variety: 50/100 Rotten Tomatoes: 28/100 I Love You Phillip Morris Steven Russel er hamingjusamlega giftur Debbie þar til bílslys fær hann til að endurmeta líf sitt og hann kemur út úr skápnum. Hann stundar svik og pretti til að standa undir dýrum lífstíl og endar brátt í fangelsi þar sem hann hittir Phillip Morris og verður yfir sig ástfang- inn og lífið fer að snúast um að frelsa ástvininn með öllum mögu- legum og ómögulegum ráðum. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum. Með aðalhlutverk fara Jim Carrey og Ewan McGregor. Erlendir dómar: Empire: 80/100 Variety: 68/100 Rotten Tomatoes: 79/100 Kvikmyndafrumsýningar» Páskamyndirnar í ár I Love You, Phillip Morris Ewan McGregor og Jim Carrey leika elskhuga í gamanmynd sem byggð er á sannsögulegum atburðum. How To Train Your Dragon Þrívíddarteiknimynd og mikið ævintýri. Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is 39 þrep (Samkomuhúsið) Fim 1/4 kl. 19:00 Lau 3/4 kl. 19:00 Fös 16/4 kl. 19:00 Ný sýn Fim 1/4 kl. 22:00 Aukas. Lau 10/4 kl. 19:00 Lau 17/4 kl. 19:00 Síðasta s. Síðasta sýning 17.apríl Fúlar á móti (Marina - Gamli Oddvitinn) Fös 2/4 kl. 21:00 1.sýn Lau 3/4 kl. 21:00 2.sýn Horn á höfði (Rýmið) Mið 31/3 kl. 16:00 1.sýn Fim 1/4 kl. 16:00 3.sýn Lau 3/4 kl. 16:00 5.sýn Fim 1/4 kl. 14:00 2.sýn Lau 3/4 kl. 14:00 4.sýn Leiklestraröð - Spænsk ástríða (Samkomuhúsið) Mið 7/4 kl. 20:00 Lorca og heitur tangó 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Faust HHHH IÞ, Mbl Gauragangur (Stóra svið) Mið 7/4 kl. 20:00 Mið 21/4 kl. 20:00 K.8. Fös 21/5 kl. 20:00 Fim 8/4 kl. 20:00 Fim 22/4 kl. 20:00 K.9. Lau 22/5 kl. 20:00 Fös 9/4 kl. 20:00 Fös 23/4 kl. 20:00 Fös 28/5 kl. 20:00 Lau 10/4 kl. 16:00 K.4. Fim 29/4 kl. 20:00 K.10 Sun 30/5 kl. 20:00 Lau 10/4 kl. 20:00 K.5. Fös 30/4 kl. 20:00 K.11 Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 16/4 kl. 20:00 K.6. Fös 7/5 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Lau 17/4 kl. 16:00 K.7. Lau 8/5 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00 Lau 17/4 kl. 20:00 Mið 12/5 kl. 20:00 Lau 12/6 kl. 20:00 Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk Faust (Stóra svið) Sun 11/4 kl. 20:00 Ný auka Lau 24/4 kl. 20:00 Ný auka Fim 6/5 kl. 20:00 Ný auka Fim 15/4 kl. 20:00 Ný auka Sun 25/4 kl. 20:00 Ný auka Sun 18/4 kl. 20:00 Ný auka Sun 2/5 kl. 20:00 Ný auka í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 10/4 kl. 12:00 Lau 17/4 kl. 14:00 Lau 24/4 kl. 12:00 Lau 10/4 kl. 14:00 Sun 18/4 kl. 12:00 Lau 24/4 kl. 14:00 Sun 11/4 kl. 12:00 Sun 18/4 kl. 14:00 Sun 25/4 kl. 12:00 Sun 11/4 kl. 14:00 Fim 22/4 kl. 12:00 Sun 25/4 kl. 14:00 Lau 17/4 kl. 12:00 Fim 22/4 kl. 14:00 Dúfurnar (Nýja sviðið) Lau 10/4 kl. 20:00 Frum Fös 23/4 kl. 22:00 aukas Sun 9/5 kl. 20:00 k.13. Mið 14/4 kl. 20:00 K.2. Mið 28/4 kl. 20:00 k.8. Mið 12/5 kl. 20:00 k.14. Fös 16/4 kl. 19:00 K.3. Fim 29/4 kl. 20:00 k.9. Fim 13/5 kl. 20:00 k.15. Fös 16/4 kl. 22:00 aukas Fös 30/4 kl. 19:00 k.10 Fös 14/5 kl. 20:00 k.16. Lau 17/4 kl. 19:00 K.4. Fös 30/4 kl. 22:00 aukas. Fös 14/5 kl. 22:00 Lau 17/4 kl. 22:00 aukas Fös 7/5 kl. 19:00 k.11. Lau 15/5 kl. 19:00 k.17. Mið 21/4 kl. 19:00 K.5. Fös 7/5 kl. 22:00 Lau 15/5 kl. 22:00 Fim 22/4 kl. 20:00 K.6. Lau 8/5 kl. 19:00 k.12. Fös 23/4 kl. 19:00 K.7. Lau 8/5 kl. 22:00 frumsýnt 10. apríl Rómeó og Júlía í leikstjórn Oskaras Korsunovas (Stóra svið) Fös 14/5 kl. 20:00 Lau 15/5 kl. 20:00 Í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík Eilíf óhamingja (Litli salur) Mið 31/3 kl. 20:00 k.2 Fös 16/4 kl. 19:00 K.5 Sun 25/4 kl. 20:00 Fös 9/4 kl. 19:00 K.3 Fim 22/4 kl. 20:00 Fös 30/4 kl. 20:00 Sun 11/4 kl. 20:00 K.4 Fös 23/4 kl. 20:00 Fyrir þá sem þora að horfa í spegil. Snarpur sýningartími Villidýr / Pólitík eftir Ricky Gervais (Litla svið) Lau 24/4 kl. 20:00 Frums Sun 2/5 kl. 20:00 Lau 1/5 kl. 19:00 Fös 7/5 kl. 20:00 Uppsetning Bravó - aðeins þessar 4 sýningar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Mbl., GB Nánar á leikhus id.is Sími miðasölu 551 1200 Síðasta sýning 25. aprí l Tryggðu þér miða á þes sa frábæru fjölskyldusý ningu! NÝJASTA slúðursagan um 23. kvikmyndina um James Bond, þ.e. þá næstu, er sú að leikkonan Rachel Weisz muni leika í henni. Hún á þó ekki að leika sk. Bond-gellu heldur óþokka, glæpakvendi. Vefurinn Cinema Blend segir frá þessu en varar þó við að allt geti þetta breyst. Hvað sem því líður þykir líklegt að glæpakvendi verði í myndinni en karlar hafa verið algengari en konur í hlutverkum óþokka í kvikmynd- unum um njósnarann góða. Reuters Weisz Yrði föngulegt glæpakvendi, illvígt að innan en alúðlegt að utan. Weisz glæpakvendi í Bond 23?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.