Morgunblaðið - 31.03.2010, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2010
Handritið að The MenWho Stare at Goats erunnið upp úr sam-nefndri bók blaða-
mannsins og rithöfundarins Ron
Jonson en sú bók mun að einhverju
leyti vera byggð á raunverulegum
atburðum, tilraunum Bandaríkja-
hers til þess að beita yfirskilvitleg-
um aðferðum í hernaði og þjálfun
hermanna í því að beita hugarork-
unni. Í upphafi myndarinnar er ein-
mitt tekið fram að margt sem fyrir
augu ber sé byggt á raunverulegum
atburðum. Og hefst þar með afar
farsakennt ferðalag og háðsádeila á
hernað, herþjálfun og veru Banda-
ríkjamanna í Írak. Þá er einnig vís-
að í pyntingaraðferðir Bandaríkja-
manna á föngum í Guantanamo-
búðunum (fangi læstur inni í litlum
klefa látinn hlusta á risaeðluna Bar-
ney úr Sesamstræti syngja sama
lagið aftur og aftur).
Í myndinni segir af blaðamann-
inum Bob Wilton (McGregor) sem
verður fyrir því óláni að eiginkona
hans tekur saman við yfirmann
þeirra beggja. Wilton ákveður að
„gera það sem karlmenn gera við
slíkar kringumstæður“, þ.e. halda í
stríð. Hann dreymir um að komast
til Íraks, færa fréttir af stríðinu og
sýna eiginkonunni fyrrverandi að
hann sé karl í krapinu. Wilton
kemst þó ekki til Íraks, þarf að bíða
í Kúveit og þar kynnist hann stór-
furðulegum manni og fyrrverandi
„ofurhermanni“, Lynn Cassady
(Clooney). Cassady þessi var áður
„jedíi“ (já, eins og í Stjörnustríði) í
sérstökum hópi bandarískra her-
manna, New Earth Army, her-
manna sem þjálfaðir voru í því að
beita friðsamlegum bardagaaðferð-
um, beita hugarorkunni frekar en
stríðstólum. Cassady segist m.a.
geta gert sig ósýnilegan og leyst
upp ský á himni og trúir Wilson fyr-
ir því að hann sé í leynilegri sendi-
för fyrir Bandaríkjaher. Wilton
leggur í ferðalag um eyðimerk-
urlandslag Íraks með þessum und-
arlega, og að því er virðist vit-
skerta, manni og þar lenda þeir í
ýmsum vandræðum, er m.a. rænt.
Cassady segir Wilton sögu sína á
ferð þeirra að ónefndum áfanga-
stað, hvernig ofurhermannaþjálf-
unin fór fram í búðum Bills nokkurs
Django (Bridges), fyrrverandi her-
manns sem fékk vitrun á vígvell-
inum í Víetnam þegar hann var
skotinn í brjóstið. Hann sá ljósið,
svo að segja, og tók að stúdera alls
konar nýaldarspeki og hug-
leiðsluaðferðir. Django þessi beitti
heldur óhefðbundnum þjálfunar-
aðferðum á Her hinnar nýju Jarðar,
lét hermennina m.a. dansa og ganga
á glóandi kolum. Wilton kemst fljót-
lega að því að Cassady var misnot-
aður af illgjörnum liðsmanni of-
urhersins (Spacey) sem lét hann
drepa geit með hugarorkunni og
sendi hann þar með yfir til „myrku
hliðarinnar“ (jebb, aftur Stjörnu-
stríð). Wilton er engu að síður heill-
aður af þeirri trú Cassady að hann
búi yfir yfirskilvitlegum kröftum og
getur ekki annað en dáðst að hon-
um.
Kvikmyndin ber nokkurn keim af
gamanmyndum Coen-bræðra, fá-
ránleikinn er í fyrirrúmi en þó með
alvarlegum undirtóni, sem fyrr seg-
ir. Sum atriðanna í myndinni eru
óborganleg og má þar m.a. nefna
atriði þar sem hermaður er beðinn
um að komast að því hvar Manuel
Noriega er niður kominn og sá seg-
ir að leikkonan Angela Lansbury
kunni svarið við því. Lansbury svar-
ar því til að hún hafi ekki hugmynd
um það!
Clooney stendur sig frábærlega
sem hinn galni Cassady, augnaráðið
eitt fær mann til að skella uppúr og
McGregor er flottur sem hinn blá-
eygi blaðamaður. Jeff Bridges fer
mikinn að vanda í sínu hlutverki,
magnaður leikari þar á ferð og
óborganlegt að sjá hann og Clooney
dansa við lag Billys Idol, „Dancing
With Myself“. Myndin fer þó ögn úr
gríngírnum þegar líður undir lok,
sem er miður, og alvarlegri undir-
tónn tekur við. Þá má einnig setja
út á sífelld skipti milli nútíðar og
fortíðar, þ.e. ferðarinnar um eyði-
mörkina og þjálfunarbúðanna, bet-
ur hefði farið á því að dvelja lengur
við hvort tveggja í senn og skrúfa
enn betur upp í fáránleikanum þeg-
ar líða tekur á myndina. En bláend-
irinn er rökréttur miðað það sem á
undan er gengið og sú staðreynd að
myndin er byggð að einhverju leyti
á raunverulegum atburðum krydd-
ar söguna og sýnir hversu fáránlegt
hernaðarbrölt getur orðið.
Að stara geit í hel
Sambíóin Álfabakka
og Kringlunni
The Men Who Stare at Goats
bbbmn
Leikstjóri: Grant Heslov. Aðalleikarar:
George Clooney, Ewan McGregor, Jeff
Bridges, Kevin Spacey. 94 mín. Band-
ríkin, Bretland.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYND
Clooney og geit Ofurhermaður drepur geit með hugarorkunni.
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000
Dear John kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
Earth kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ
Shutter Island kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
Daybrakers kl. 8 - 10:15 B.i. 16 ára
The Good Heart kl. 5:50 B.i. 10 ára
Dear John kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
Kóngavegur kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.10 ára
Lovely Bones kl. 8 - 10:30 B.i.12 ára
The Good Heart kl. 8 - 10:10 B.i.10 ára
Avatar 3D kl. 4:40 B.i.10 ára
Mamma Gógó kl. 6 LEYFÐ
I love you Phillip Morris kl. 10 B.i. 12 ára
Kóngavegur kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
Dear John kl. 8 B.i. 7 ára
Nanny McPhee kl. 6 LEYFÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA
HHH
-Dr. Gunni, FBL
HHHH
-H.S.S., MBL
HHHH
-Ó.H.T. - Rás 2
SÝND Í XXXXX
Ógleymanleg mynd í ætt við meistaraverkið
Ferðalag keisaramörgæsanna
SÝ Í REGNBOGANUM
MARK WAHLBERG STANLEY TUCCI
RACHEL WEISZ SUSAN SARANDON
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓSÝND Í SMÁRABÍÓ OG BORGARBÍÓI
HHHH
ENTERTAINMENT WEEKLY
„DÁSAMLEGA SKEMMTILEG FLUGFERГ
HHHH- EMPIRE
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU
OKKUR SHREK & KUNG FU PANDA
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
Hvað myndir þú gera við bréf sem breytti öllu?
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNU
M
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m