Austri


Austri - 15.12.1960, Page 9

Austri - 15.12.1960, Page 9
Jólin 1960. AUSTRI 'IIK Ö laust niður til okkar. Ætluðum við að handstyrkja okkur á kaðlinum upp á skipið og reyndist það auð- velt fyrir félaga mína, en þegar ég ætlaði að grípa til hægri handar- innar var hún gjörsamlega mátt- laus. Brá þá formaðurinn kaðlin- um undir hendurnar á mér og yf- ir herðarnar og þannig drógu fé- lagar mínir mig upp á skipið. Reyndist þetta vera brezkur tog- ari frá Grimsby. Þegar við vorum allir komnir upp, urðum við fyrst varir við mann á skipinu. Var það háseti. Spurði hann okkur hvort við hefðum verið fleiri á bátnum og svöruðum við því neitandi. Sögðu togaramenn, að í stýris- húsi hefðu verið tveir menn, stýri- maður og háseti, og einn maður í vélarúmi skipsins þegar árekstur- inn varð. Fórum við nú af hval- baki niður á dekk. Kom þá skip- stjórinn til okkar. Var það mið- aldra maður, mjög viðkunnanleg- ur sem og skipshöfnin öll. Þegar skipstjóri hafði fengið fulla vissu um það, að við vorum allir komn- ir á dekk, skipaði hann stýrimanni að sigla skipinu aftur á bak, og þegar skipið skreið til baka, losn- aði báturinn samstundis af stefni þess og sökk á fimm mínútum. Vorum við nú gestir í togaranum í tuttugu og fjórar klukkustund- ir, í góðu yfirlæti. Lét skipstjóri liggja við akkeri þangað til þok- unni létti, en sigldi þá inn til Norð- fjarðar. Þar var þá konsúll brezku stjórnarinnar Páll Þormar. Þegar til Norðfjarðar kom, fór ég til læknis, Eiríks Björnssonar, og gerði hann að meiðslum þeim er ég hlaut þegar slysið varð. Byrjuðu svo réttarhöldin og vor- um við yfirheyrðir í þrjú skipti. Komumst við svo heim að kvöldi hins þriðja dags. Ekki man ég nafn togarans, en nafn skipstjóra var Sigurður, borið fram á ís- lenzku. I nóvember, þetta sama ár, kom togari þessi til Eskifjarðar með veikan mann. Hitti ég þá þennan sama skipstjóra sem var á togar- anum þegar slysið vildi til á Njáli. Heilsaði hann mér þá eins og kunnugum manni og var mjög vingjamlegur. Var hann þá stýri- maður og sagðist hafa misst skip- stjóraréttindi í tvö ár fyrir þetta. Ári síðar sigldi Einþór Stefánsson (sonur Stefáns Þórarinssonar fyrrum bónda á Mýrum í Skrið- dal) á báti til Englands. Var Ein- þór túlkur við réttarhöldin út af ásiglingunni á Njál. Hitti hann þá aftur skipsjtóra þennan og spurði hann þá enn um líðan okkar og lét þess getið að hann fengi ekki skip til umráða fyrr en að tveim ár- um liðnum frá slysinu, og hefði hann orðið manni að bana, hefði hann ekki fengið skipstjórarétt- indi aftur fyrr en eftir fimm ár. Þess má geta, að þegar mótorbát- urinn Njáll fórst, var Magnús Gíslason sýslumaður í Suður- Múlasýslu. Trésmiðjan Einir óskar öllum viðskiptamönnum sinurn gleðilegra jóla og góðs komandi árs og þakkar viðskiptin á árinu, sem er að líða. Jóhann P. Guðmundsson. Byggíngafélagið Brúnás hf. sendir öllum viðskiptaviaum sínum og starfsfólki beztu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. BRtJNÁS H F. Jóla- og nýársmessur Aðfangadagur: Messa í Sjúkrahúsinu kl. 4. Messa kl. 8. Jóladagur: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2. 2. í jólum: Messa í samkomuhúsi Norð- fjarðarhrepps kl. 2. Gamlárskvöld: Messa kl. 8. Nýársdagur: Messa kl. 2. Vilhjálmur Sigurbjörnsson ábyrgðarmaður NESPRENT HF Allar myndir í blaðinu, að und- anteknum þremur, hefur Reynir Zoega tekið. LANDSSMIÐ3AN Sími 16680 (4 línur). Símnefni. Landssmiðjan, Reykjavík. SELJUM. Súgþurrkunartæki, rafstöðvar, dieselvélar, bátavélar, dælur, bílavogir, málma o. fl. o. fl. JÁRNIÐNAÐUR : Járnsmíði (eldsmíði), ketil- og plötusmíði, rennismíði, raf- og logsuða. Framkvæmdar viðgerðir á skipum, vélum og eimkötlum o. fl. Utvegum m. a. hita- og kælilagnir, olíu- geyma og síldarbræðslutæki. TRÉIÐNAÐUR: Skipasmiði, rennismíði, kalfakt. Framkvæmir viðgerðir á c skipum, húsum og fleiru. MÁLMSTEYPA: Járn- og koparsteypa, aluminíumsteypa. Alls konar véla- hlutir, ristar o. fl. Forstjóri: Jóhannes Zoéga, verkfrJeðingur. WVWVWWWWV/WWV/'AA/WWWWv/ ^WWWVWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWW^A/WWWWWWWWWWWWW

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.