SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Qupperneq 2
2 5. júní 2011
Við mælum með …
Laugardagur 11. júní
Fyrsti leikur Íslands á lokamóti
Evrópumóts landsliða sem skip-
uð eru leikmönnum 21 árs og
yngri verður gegn Hvít-Rússum
og hefst kl. 16.
Íslendingar eru í riðli með Dan-
mörku, Sviss og Hvíta-
Rússlandi og eru taldir eiga góð-
an möguleika á að komast upp
úr sínum riðli og keppa um sæti
á Ólympíuleikunum á næsta ári.
Morgunblaðið/Ómar
… litlu strákunum okkar
23 Farsæl flothylki úr togleðri
Gúmmíbjörgunarbáturinn er með bestu björgunartækjum sem fundin
hafa verið upp og ætluð eru til bjargar sjómönnum í neyð.
26 Með góðu glossi gera þær góðverk
Átakið Á allra vörum hefur safnað um 200 milljónum króna fyrir góð-
gerðarstofnanir á undanförnum árum.
28 Leiðbeining til stjórnmálamanna
Björn Bjarnason segir bók sína um Baugsmálið eiga brýnt erindi í póli-
tíska samtíð okkar. Hann víkur einnig að fjölmiðlamálinu.
36 Þetta er
ævintýraheimur
Í meira en tuttugu ár hefur Árni Björn
Jónsson komið að kasta flugum sínum
fyrir urriðann í opnunarholli Laxár í Lax-
árdal.
38 Káta Kaliforníustelpan
Blake Lively skaust upp á stjörnuhimininn sem slúðurstúlkan Serena
van der Woodsen. Hún hefur líka vakið athygli fyrir flottan fatastíl og
er andlit Chanel.
40 Mjög áhugasamir um
vestræna tónlist
„Þetta var í einu orði sagt frábær ferð,“ segir Nína Margrét Gríms-
dóttir sem lauk á dögunum við sína aðra tónleikaferð um Kína.
Lesbók
44 Glíman við einmanaleikann
Bandaríski rithöfundurinn David Foster Wallace var flestum harm-
dauði þegar hann féll fyrir eigin hendi fyrir þremur árum.
32
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
34
32
Þær voru skrautlegar konurnar sem mættu á dömudaginn á Epsom-
veðreiðunum í Bretlandi. Á þessum degi mæta konurnar með hatta
og eru uppáklæddar að fylgjast með spennandi keppninni. Gjarnan
er líka kampavínsglas í hendi, svona til að kæla sig niður, en gott
veður var á dömudaginn í þetta sinn.
Veröldin
Þessi er að sjálfsögðu með hatt og er bæði með kampavín og myndavél í
hendi. Ekki spilla vel lakkaðar neglurnar fyrir.
Reuters
Dýrlegt á dömudegi
8.-11. júní
Páll Óskar
Hjálmtýsson
flytur öll sín
vinsælustu lög
ásamt Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í Eldborg Hörpunnar. Alls
verða tónleikarnir fimm talsins.
Kl. 20 alla dagana fjóra og að
auki kl. 16 á laugardeginum.
9. júní
Íslenska óper-
an efnir til
prufusöngs
fyrir þrjú hlut-
verk í Töfra-
flautunni eftir Mozart, sem
frumsýnd verður í Hörpu í
haust. Um er að ræða hlutverk
„drengjanna þriggja“, „Drei
Knaben“.
Leitað er að ungum drengjum
eða stúlkum með bjartar raddir,
þó ekki yngri en 10 ára.
A
f einhverjum sökum
er ég annaðhvort
staddur í New York
eða Noregi þetta
misserið. Síðasta ferð mín til
Noregs (sú þriðja á hálfu ári!) var
þó ekki til höfuðborgarinnar í
þetta sinnið, heldur til Bergen.
Borgina þekkti ég mætavel sem
höfuðvígi svartþungarokksins en
nú var strákurinn gerður út af
örkinni til að fylgjast með Þjóð-
leikhúsinu setja upp Gerplu Balt-
asars Kormáks á alþjóðlegu leik-
listarhátíðinni þar í borg. Ég segi
nánar frá þeirri upplifun annars
staðar í blaðinu en hér langar
mig, þó ekki sé nema í eitt
„augnablik“, að skoða hátíðina
aðeins sem slíka en hún var með
eindæmum metnaðarfull.
Per Boye Hansen, listrænn
stjóri hátíðarinnar, setti upp
ákveðið tema í þetta skiptið sem
skýrir að mörgu leyti veru
Gerplu á hátíðinni. Í gegnum
leiksýningarnar var rýnt í tengsl
hefða og nýsköpunar og þar á
Gerpla svo sannarlega heima en
ekki var Laxness bara að pota í
arfinn heldur er Baltasar líka að
pota í arf Laxness með fram-
úrstefnulegri uppsetningu sinni.
Ef Norðmennirnir vildu velta sér
upp úr þessum tengslum hins
gamla og nýja þá fengu þeir tvö-
faldan skammt frá Íslandi! Há-
tíðin er annars þekkt fyrir
áherslur sínar á nýjar leikgerðir.
Þannig fékk hún í ár svissneska
leikstjórann Christoph Mar-
thaler til liðs við sig en söng-
leikur hans, ±0, sem fjallar um
sögu Grænlands hefur vakið
mikla athygli og var Bergen
fyrsta stopp í umfangsmiklum
Evróputúr. Önnur leikrit voru
sýnd sem líkt og Gerpla settu
snúning á aldagömul verk.
Norski leikstjórinn Eirik Stubø
hefur t.a.m. sett óperu Igors
Stravinskí, Oedipus Rex, í norska
yfirhalningu (hátíðin var opnuð
með þeirri sýningu) og hinn
efnilegi Tore Vang Lid sýndi
„endurgerð“ sína á leikriti hins
þýska Gerharts Hauptmann, Be-
fore Sunrise. Dansmenntir fengu
einnig að svífa um, Ísraelinn
Sharon Eyal skrifaði verk sér-
staklega fyrir nútímadansflokk
Noregs, Carte Blanche og fransk-
túnisíski dansarinn Héla Fat-
toumi sýndi algerlega magn-
þrungið verk þar sem hún setur
múslímska þjóðbúninga undir
mælikerið. Svo frétti ég það
svona á skotspónum að um leið
og þessi yfirgripsmikla leiklist-
arhátíð var í gangi var verið að
keyra djasshátíð. Bergen er
greinilega að kafna úr menningu.
Og er það vel. Sjónlistirnar voru
þó í brennidepli í þetta skiptið.
Djassinn á næsta ári? Einhver?
Augnablikið
Den National Scene að næturlagi. Þetta glæsta leikhús er eitt þriggja þjóðleikhúsa Norðmanna og það elsta.
Burðugt er leikhús-
lífið í Björgvin