SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 12

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 12
12 5. júní 2011 Mánudagur Margrét H. Blöndal hreyfir eyrun og fer inn í pabba sinn Hjalti Már Björns- son Vill í ljósi allrar læknadóps- umræðu benda á tvennt. Í fyrsta lagi væri ekkert mál að hindra misnotkun á ávísuðum lyfjum með því að læknar hefðu aðgang að miðlægum gagnagrunni um ávísanir eftirritunarskyldra lyfja. Þannig kerfi er til staðar þar sem ég vann hér vestanhafs og þar flettum við upp í öllum vafa- tilvikum hverju viðkomandi ein- staklingur hafði fengið ávísað af sterkum lyfjum í gjörvöllu fylkinu. Þriðjudagur Einar Kárason Ég er sammála kollega mínum Þráni Ber- telssyni um að það hafi verið ónær- gætið í morgun af Sigga Svavars að kalla alþing- ismenn hálfvita. En ef stjórn Al- þingis tekur til umræðu bannið um tóbaksreykingar í bíómyndum, þá því miður er ekki um neitt að ræða framar. Fésbók vikunnar flett Hvað eru hinir að gera? spyr kannski einhver – hvernig hyggjast aðrir fram- leiðendur svara iPad? Málið er bara að þeir vita það ekki sjálfir. Fyrir ári eða svo skiptu framleið- endur á spjaldtölvum hundruðum, en svo hættu þeir flestir við, þeir áttu einfaldlega ekkert svar. Hluti af því er að Apple var búið að gera langtíma- samninga við helstu framleiðendur á snertiskjám og aðrir komust því ekki að en líka að stýrikerfið sem þeir hugðust nota, Android, er símastýri- kerfi og ekki orðið nógu gott til að geta staðist iPad snúning. Hvað með Windows, segir þú, tja, það er eiginlega ekkert með Wind- ows. Windows 7 fyrir snjallsíma og spjaldtölvur er enn á teikniborðinu að mestu leyti og bíður eftir því að tölv- urnar og símarnir verði öflugri. Stærsti tölvuframleiðandi heims, HP, er reyndar með spjaldtölvu í smíðum, en hún átti upphaflega að vera með Windows 7. Nú er ljóst að sú tölva, To- uchPad, sem sjá má hér fyrir ofan, verður með endurbættri útgáfu af Palm-stýrikerfinu (man einhver eftir því?) og kemur á markað síðsumars. Það fyrsta sem menn taka eftir þegar þeir taka sér iPad 2 í hönd er hve vel græjan fer í hendi. Víst er hún þung, en hún er líka þunn og meðfærileg. Þegar búið er að setja á hana kápu, eins og til að mynda Smart Cover sem Apple framleiðir, þá fer hún fáránlega vel í hendi, hvernig sem maður snýr henni. Það er rétt að taka fram að þessi texti er skrifaður á iPad og það gekk bara vel, þakka þér fyrir. Það er nefnilega hægt að gera flest það sem mann langar á vél- inni og hún er til að mynda frá- bær ferðafélagi. Það gengur þó dálítið hratt á rafhlöðurnar, sér- staklega ef maður er með netið í gangi, svo maður þarf að gæta að því hvað er í gangi bakvið tjöldin. Með tölvunni fylgja ýmisleg forrit sem vonlegt er, vafri og músíkspilari o.s.frv. Aðalfjörið er þó öll þau forrit sem hægt er að sækja sér í iTunes- sjoppunni, mörg ódýr, fleiri næstum ókeypis og enn fleiri ókeypis. Alls eru til í búðinni ríf- lega 350.000 forrit til að gera allt það sem manni getur dottið í hug og margt sem manni hefði aldrei dottið í hug. Draumurinn er að vera alltaf í sam- bandi og það er hægt með 3G gerð iPadsins, sem var tekinn til kosta. Með 3G kort frá Nova í græjunni voru allir vegir færir á meðan maður hélt sig á mölinni. Það er líka hægt að nota þráð- laust net þegar opið net er innan seilingar. Hvað kostar apparatið? 114.990 kr. í Eplabúðinni. ... fáðu þér frekar iPad Fyrsta spjaldtölva Apple, iPad, endurskilgreindi fyrirbærið. Skyndilega var komin á almennan markað græja sem komið gat í staðinn fyrir flestar tölvur við daglega notkun. Við þá sem eru að spá í að fá sér aukatölvu á heimilið, fartölvu eða borðtölvu segi ég þetta: Fáðu þér frekar iPad. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is Samkeppnin Hvar eru hinar spjaldtölvurnar?

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.