SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Page 16
arfrí. Það gekk samt ekki og þá kom upp frekar erfið staða.“
– Voru fleiri lið en Stoke inni í myndinni?
„Já. Stoke var samt tilbúið að borga hæsta verðið og Móna-
kó þrýsti þess vegna svolítið á að ég færi þangað.“
– Hvernig er formið á þér núna?
„Ég er bara í fínu standi. Ég ætla svo sem ekki að segja að ég
sé í mínu besta leikformi, ég hef bara byrjað inni á í fjórum til
fimm leikjum hjá Fulham. Til að ná mínu besta formi hefði ég
þurft að spila í hverri viku, þannig lagað séð, en ég er á réttri
leið. Verst var að tímabilið skyldi enda – það var rétt að byrja
hjá mér.“
– Í tvö ár hefurðu verið á flandri en konan og synirnir
þrír búa ennþá í Barcelona. Hefur það ekki verið erfitt?
„Jú, það er erfitt að vera sundur sem fjölskylda og ef til vill
hefur það spilað inn í mitt gengi í fótboltanum. Á móti kemur
að þegar knattspyrnumaður er kominn á þennan aldur, bú-
inn að ná sínum helstu markmiðum og toppa, hlýtur hann að
setja hag fjölskyldunnar á oddinn. Við erum mjög sátt við þá
ákvörðun að leyfa drengjunum að búa áfram í Barcelona. Þar
líður þeim vel. Hefði fjölskyldan fylgt mér hefði hún þurft að
rífa sig upp og flytja á fjögurra mánaða fresti. Það er ekki gott
fyrir börn. Það segir sig sjálft.“
– Kemur til greina að fjölskyldan flytji til Lundúna, semj-
irðu áfram við Fulham?
„Það er of snemmt að taka afstöðu til þess. Verði ég hins
vegar áfram í London munum við örugglega skoða málið
mjög vandlega, meta kosti og galla.“
Með syninum í landsliðinu?
– Að fleiru er líka að hyggja. Tveir eldri synir þínir, Sveinn
Aron og Andri Lucas, eru til að mynda í knattspyrnuaka-
demíu Barcelona.
„Mikil ósköp. Það er auðvitað frábært tækifæri fyrir þá að
vera í þeirri frægu akademíu. Sá elsti er þrettán ára og alvar-
an á bak við æfingarnar er mikil. Hann æfir nánast eins og at-
vinnumaður.“
– Erum við þá að tala um Guðjohnsen-feðga í landsliðinu
eftir allt saman?
Nú hlær Eiður Smári dátt – að spurningunni sem hefur
fylgt honum svo til alla ævi.
„Það væri kannski nær að pabbi tæki fram skóna aftur,“
segir hann síðan í léttum dúr. Eftir stutta þögn heldur hann
áfram, alvarlegri í bragði: „Strákurinn hefur mikinn metnað
og virðist vera harðákveðinn í að verða knattspyrnumaður.
Maður veit samt aldrei hvað verður. Auðvitað yrði gaman að
spila með syni sínum í landsliðinu en þetta er ekkert sem ég
velti fyrir mér dagsdaglega. Satt best að segja á ég fullt í fangi
með að halda sjálfum mér inni í landsliðinu þessi misserin …“
Hann hlær.
Þjálfun kemur til greina
– Þú ert á 33. aldursári, hvað vonastu til að spila lengi í
viðbót?
„Ég er í býsna góðu standi, í fínu formi og laus við meiðsli.
Ég hef alltaf jafngaman af því að fara á æfingar og á meðan
áhuginn er fyrir hendi og skrokkurinn í lagi mun ég halda
áfram.“
– Hvað tekur þá við?
„Það er ekki gott að segja. Ég verð þó mjög líklega viðloð-
andi fótbolta áfram.“
– Kæmi þjálfun til greina?
„Já, tvímælalaust. Ég er farinn að velta allskonar hlutum
fyrir mér, gæti til dæmis hugsað mér að byrja sem aðstoð-
arþjálfari einhvers staðar og möguleikarnir liggja víða þar
sem ég tala ein fimm eða sex tungumál.“
– Muntu setjast að á Íslandi í framtíðinni?
„Ég sé það ekki fyrir mér, alla vega ekki eins og staðan er
núna. Það er alltaf gaman að koma heim, sérstaklega á sumr-
in, en ég er búinn að búa svo lengi erlendis að mín sóknarfæri
eru miklu frekar þar.“
Svo mörg voru þau orð. Við Eiður Smári yfirgefum „lo-
unge-ið“ á Hilton og stígum aftur inn í lyftuna. Hann fer út á
fimmtu hæð – ég fer alla leið niður.
Útför Englandsmeistara Manchester Unit-
ed var gerð frá Wembley-leikvanginum í
Lundúnum um liðna helgi. Séra Pep Guar-
diola þjónaði fyrir altari og Lionel Messi
lék einleik, dyggilega studdur af Kamm-
ersveit Katalóníu. Fátt í þeirri athöfn kom
Eiði Smára í opna skjöldu.
„Ég man ekki nógu langt aftur til að geta
fullyrt að Barcelona-liðið í dag sé besta lið
sem uppi hefur verið en í nútímaknatt-
spyrnu, hvenær svo sem hún byrjaði, er
þetta mjög líklega besta liðið,“ segir hann.
Að dómi Eiðs Smára eru Börsungar vel
að afrekum sínum komnir. „Auðvitað eru
þeir með Messi og tvo til þrjá aðra af-
burðaknattspyrnumenn en það er ekki
bara það. Aðalatriðið í mínum huga er
hvernig þeir leika leikinn, hugarfar félags-
ins gagnvart fótbolta er alveg einstakt.
Það mun aldrei breyta sínum stíl til að
þóknast ákveðnum leikmanni eða leik-
mönnum. Í því liggur fegurðin.“
Hann segir Johan Cruyff að öðrum ólöst-
uðum manninn á bak við þessa hug-
myndafræði og kynslóðin sem leikur með
liðinu nú sé að njóta ávaxtanna.
Eiður Smári lék einn vetur undir stjórn
Peps Guardiola og segir hann einstakan.
„Hann var frábær leikmaður og ekki síðri
þjálfari. Hann býr að því að geta sett sig í
spor leikmanna enda upplifði hann allar
þessar tilfinningar sjálfur sem leikmaður
og veit upp á hár hvaða merkingu það hef-
ur fyrir Katalóna að leika með Barcelona-
liðinu.“
Framganga Lionels Messis á und-
anförnum tveimur leiktíðum hefur verið
með þvílíkum ólíkindum að æ fleiri velta
því nú fyrir sér hvort hann sé orðinn besti
knattspyrnumaður sögunnar. Eiður Smári
vill ekki ganga alveg svo langt. „Það er
erfitt að segja að hann sé sá besti sem
uppi hefur verið. Hann er klárlega besti
leikmaður sinnar kynslóðar og óhætt að
nefna hann í sömu andrá og Pelé og
Maradona.“
Messi berst ekki á, virkar þvert á móti
hógvær og hlédrægur. Eiður Smári stað-
festir það. „Hann er jarðbundinn og mikill
fjölskyldumaður. Fólk kann að meta það.
Saga hans er líka mjög rómantísk, hvern-
ig hann flutti kornungur frá Argentínu til
Spánar og menn óttuðust að hann ætti
ekki eftir að stækka nóg til að geta spilað
fótbolta með þeim bestu. Þá tók félagið
hann undir sinn verndarvæng og hann
hefur aldeilis endurgoldið traustið.“
Eiður Smári
og Xavi fagna
Evróputit-
ilinum í Róm
fyrir tveimur
árum.
Einstakt hugarfar – einstakt lið