SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Síða 25
5. júní 2011 25
Þ
að er gott hljóðið í Eiði Smára Guðjohnsen landsliðsmanni í knattspyrnu í samtali
við Sunnudagsmoggann í dag. Lítið hefur farið fyrir Eiði í íslenskum fjölmiðlum
undanfarin misseri en árin tvö síðan hann yfirgaf herbúðir Evrópumeistara
Barcelona hafa verið býsna strembin, einkum átti hann erfitt uppdráttar hjá
Mónakó og Stoke City. „Ég lifnaði allur við eftir þau vistaskipti,“ segir Eiður í viðtalinu og á
þar við skiptin frá Stoke í Fulham í janúar síðastliðnum. Eftir að hafa verið úti í kuldanum
hjá Stoke fékk hann fljótlega tækifæri til að sýna hvað í honum býr hjá Fulham og allt tal um
að leikmaðurinn væri ekki í formi var augljóslega úr lausu lofti gripið. Aðrar ástæður hafa
ráðið því að Tony Pulis vildi ekki tefla honum fram hjá Stoke. Eiður hefur ekki svör við því á
reiðum höndum en gæti sjálfsagt ekki verið meira sama úr því hann er laus úr prísundinni.
Í viðtalinu staðfestir Eiður að sér hafi liðið vel hjá Fulham og hann sé með tilboð um nýjan
samning á borðinu. Skjótt skipast hins vegar veður í lofti og á fimmtudag sagði Mark Hughes
knattspyrnustjóri Fulham starfi sínu lausu. Tíminn einn getur leitt í ljós hvort það hefur
áhrif á framtíð Eiðs Smára.
Eiður kemur nú aftur inn í íslenska landsliðið sem mætir Dönum í undankeppni Evr-
ópumótsins á Laugardalsvelli í kvöld, laugardag. Því ber að fagna enda spennandi tilhugsun
að sjá hann leika við hlið ungu leikmannanna sem óðum eru að taka að sér stærra hlutverk í
liðinu. Óhætt er að fullyrða að Eiður hafi stundum liðið fyrir að hafa ekki nægilega tæknilega
sterka leikmenn sér við hlið í landsliðinu en það gæti verið að breytast enda kjarninn í 21
árs-landsliðinu líklega mesti efniviður sem komið hefur fram í íslenskri knattspyrnu, alltént
um langt árabil.
Heimsbyggðin hefur fallið í stafi yfir framgöngu nýbakaðra Evrópumeistara Barcelona í
vetur og flestir sammála um að liðið hafi lyft hinni göfugu íþrótt í nýjar hæðir. Gaman er að
sjá Eið Smára votta Börsungum virðingu sína í Sunnudagsmogganum en hann þekkir þá
betur en flestir eftir að hafa leikið í þrjú ár með félaginu. Það er ekki lítið afrek að æfa og leika
með Lionel Messi, Xavi og Andrési Iniesta, einhverjum bestu knattspyrnumönnum sem
drepið hafa fæti á þessa jörð, gildir þá einu hvort Eiður var alltaf í liðinu eður ei. Það er
frækilegt afrek að vera þess umkominn að deila búningsklefa með þessum snillingum –
mikið lengra getur knattspyrnumaður varla komist.
Hetjur í lund
Fleiri hetjur láta ljós sitt skína í blaðinu í dag – annars konar hetjur. Gróa Ásgeirsdóttir
greindist með krabbamein fyrir fjórum árum. Mitt í baráttu upp á líf og dauða ákvað hún að
láta gott af sér leiða og hleypti ásamt tveimur vinkonum sínum, Guðnýju Pálsdóttur og El-
ísabetu Sveinsdóttur, af stokkunum átakinu Á allra vörum. Síðan hafa safnast um 200 millj-
ónir króna fyrir góðgerðarstofnanir í landinu. 55 milljónir króna voru eyrnamerktar kaup-
um á hvíldarheimili fyrir krabbameinsveik börn og aðstandendur þeirra, Hetjulund, sem nú
er að verða tilbúið. Brýn þörf hefur verið fyrir heimili af þessu tagi og framtak Gróu og vin-
kvenna hennar lofsvert. Það er aðdáunarverður hæfileiki að geta snúið neikvæðri orku upp í
jákvæða – og stutt við bakið á fjölda fólks í leiðinni.
Eiður lifnar við
„Ég held að Vinnueftirlitið ætti að
koma hingað, ég er búinn að vera
með hellu í eyrum síðan í morgun.“
Höskuldur Þórhallsson. Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir forseti Alþingis vék honum úr ræðustóli
undir miklum bjölluhljómi fyrr um daginn.
„Ég er Ratko Mladic hershöfðingi.
Ég er ákaflega veikur maður.“
Fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba þegar hann
kom fyrir stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóð-
anna í gær.
„Nei, það er ómögulegt að slíkar
myndir séu til.“
Karl Gústaf Svíakonungur svarar ásökunum um
að til séu myndir af honum með tveimur nöktum
konum á nektardansstað.
„Hann lýgur, lýgur, lýgur. “
Deanne Rauscher höfundur bókar þar sem greint
var frá myndunum.
„Tími hæstvirts ráðherra er lið-
inn.“
Forseti Alþingis þegar Jón Bjarnason sjáv-
arútvegsráðherra var í ræðustóli.
„Tóbak er ávanabindandi fíkniefni
og krabbameinsvaldandi og hvers
vegna á að vera að dreifa slíkum efn-
um um allar grundir í óvörðu um-
hverfi?“
Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands.
„Hvað svo sem gerðist í Srebrenica
átti hann engan hlut að máli. Hann
bjargaði fjölda kvenna, barna og
hermanna. ... Þótt aðrir hafi gert
eitthvað án hans vitundar er það ekki
hans mál.“
Darko Mladic, sonur Ratko,
fyrrverandi hershöfðingja
Bosníu-Serba sem sak-
aður er um að bera
ábyrgð á þjóðarmorðum
í Bosníustríðinu 1993-
1995.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
Fíkniefnalaust Ísland árið …?
En tilgangurinn lætur ekki nægja að helga meðulin.
Hann ruglar iðulega dómgreindina svo um munar.
Fyrir allmörgum árum var velmeinandi ráðherra
sem skipað hafði nefnd og lagði til í framhaldinu að
því yrði lýst yfir með lúðrablæstri og viðhöfn að Ís-
land yrði orðið fíkniefnalaust land, hið fyrsta í
heimi, árið 2000. Hann var spurður í ríkisstjórn-
inni hvort þetta háleita og eftirsóknarverða mark-
mið væri virkilega raunhæft. Hann hélt nú það og
vitnaði í vinnu nefndarinnar orðum sínum til full-
tingis. Honum var þá í mikilli vinsemd bent á að
svo vildi til að hann hefði einn ráðherra lyklavöld
yfir rammgerðasta húsi sem væri haft lokað og
læst, meira að segja einstök herbergi, og leitað á
mönnum sem þangað kæmu. Samt hefði ekki tek-
ist að halda þessu eina húsi, Litla-Hrauni, sem
slíkum lögmálum lyti, fíkniefnalausu og reyndar
virtist meira af slíkum efnum þar í umferð en að
meðaltali í öðrum húsum á Íslandi. Það varð nokk-
ur þögn á fundinum og svo voru önnur mál tekin
fyrir. Þegar málið kom næst á borð ríkisstjórnar
var búið að lengja örlítið í. Nú hét áætlunin: Fíkni-
efnalaust Ísland árið 2002. Nú væri fróðlegt ef fjöl-
miðlar, t.d. Fréttablaðið, gerðu góða úttekt á því
hvernig þetta hefði gengið.
En nú trúa alþingismenn því að apótekin séu
allra meina bót. En í tilviki sterkra fíkniefna virðist
viðbótin við smyglið, sem er mikið, ekki síst koma
í gegnum apótekin, ef marka má nýlegar umræður
um málið. En er ekki hugsanlegt að niðurstaðan sé
sú að það verði ekki öll vandamál leyst með há-
stemmdum yfirlýsingum, starfshópum, þings-
ályktunartillögum og loks boðum og bönnum, sem
jafnan er endapunktur alls hins. En kannski er slík
umræða lyfseðilsskyld.
Lopapeysurómantík
á Laugavegi
Morgunblaðið/Ómar