SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 26

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 26
26 5. júní 2011 H eimurinn hrynur þegar fólk greinist með alvarlega sjúk- dóma. Daglegt líf breytist á augabragði og hversdagslegir hlutir verða fólki ofviða. Gróa Ásgeirs- dóttir var rétt orðin fertug þegar hún greindist með brjóstakrabbamein, haustið 2007. Á innan við viku var hún komin á skurðarborðið og gekk í gegnum erfiða aðgerð. Fæstir á þessum aldri leiða hug- ann að endalokum lífs síns, heldur eru frekar að byggja stoðir undir framtíðina, sem síðan er á augabragði að engu orðin þegar krabbamein finnst í brjósti. Myrkt ský leggst yfir öll plön einsog Gróa orðar það; „ósjálfrátt fer maður bara að und- irbúa sína eigin jarðarför.“ En krabba- meinsæxli setur ekki aðeins líf sjúklings- ins á hvolf heldur einnig aðstandenda. „Ég er svo heppin að eiga góða fjölskyldu og vini sem stóðu og hafa staðið við bakið á mér í blíðu og stríðu“. Í miðri krabba- meinsmeðferðinni kviknaði sú hugmynd hjá Gróu og vinkonum hennar, þeim Guðnýju Pálsdóttur og Elísabetu Sveins- dóttur, að snúa þessu svartnætti í birtu, breyta neikvæðri orku í jákvæða. Á sjúkrahúsinu þar sem Gróa lá með leiðslur í höndunum og næringu í æð byrjaði skipulag verkefnis sem átti eftir að færa ýmsum góðum málefnum um 200 millj- ónir króna á næstu árum. Þegar kraftur þriggja kvenna er lagður saman er allt mögulegt. Gróa er þakklát starfsfólkinu á spítalanum. „Þetta fólk sem vinnur á krabbameinsdeild Landspítalans ætti að fá fálkaorðuna og það á hverju ári, alltaf,“ segir Gróa. „Það er ómetanlegur stuðn- ingur sem það veitir á erfiðleikatímabili í lífi manns.“ Sumarið 2008 ákváðu vin- konurnar að fara í söfnunarátak með því að selja gloss til styrktar Krabbameins- félaginu og þakka þar með fyrir góða umönnun. Hugmyndin um glossin þótti góð þar sem allar konur elska góð gloss og nota það einmitt til að lífga upp á sál og bæta útlitið. Átakið fékk nafnið „Á allra vörum“ og í dag þekkja það flestir lands- menn. Farið var í samstarf við heildsöluna Halldór Jónsson ehf. sem flytur einmitt inn snyrtivörur frá Dior og fleirum. Í þessu fyrsta átaki gerðu þær sér lítið fyrir og seldu yfir 20.000 glossa á okkar litla landi. Í miðju átakinu bauðst þeim að vera með söfnunarþátt á Skjá einum þar sem stöðin var tilbúin til að gefa eftir allan kostnað við útsendinguna. Maríanna Friðjónsdóttir var fengin til starfans og hún var ekki lengi að safna saman fagfólki úr sjónvarps- og kvikmyndageiranum Kraftaverkakonurnar Guðný, Gróa og Elísabet eru upphafsmenn átaksins Á allra vörum sem hefur á undanförnum árum safnað um 200 milljónum króna til góðra verka. Með góðu glossi gera þær góðverk Átakið Á allra vörum hefur safnað um 200 millj- ónum fyrir góðgerða stofnanir á undanförnum árum. Í sumar mun átakið beina kastljósinu að Neistanum, félagi hjartveikra barna. Þrjár konur eru upphafsmenn átaksins en að því koma um 200 manns sem allir gefa vinnuna sína. Börkur Gunnarssonborkur@mbl.is Gróa Ásgeirsdóttir og Elísabet Sveinsdóttir eru hér með Dorrit Mo- ussaieff forsetafrú, en hún kaupir alltaf fyrsta glossið í söfnuninni.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.