SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 27

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 27
5. júní 2011 27 sem sömuleiðis gaf alla sína vinnu. Úr varð þáttur í beinni útsendingu og átakið skilaði það árið yfir 50 milljónum króna. Fyrir peningana náðist að greiða upp nýja vél sem greinir brjóstakrabbamein á frumstigi. Fleiri átök Þetta átak heppnaðist svo vel að þær stöllur ákváðu að leggja í annað átak að ári liðnu. „Sumarið 2009 ákváðum við að styrkja SKB – Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna,“ segir Elísabet. „Í því átaki söfnuðust tæplega 55 milljónir króna, en þeir peningar voru eyrnamerktir kaupum á hvíldarheimili fyrir sjúklinga og að- standendur þeirra. Auk þess gaf Guð- mundur Jóhannesson landeigandi á Ket- ilsstöðum okkur lóðina undir heimilið, nokkrir gáfu vinnu sína við uppgröft á lóðinni og Guðmundur Gunnlaugsson arkitekt sem hannaði húsið sömuleiðis. Sennilega námu þessar gjafir á bilinu 15– 20 milljónum. Heimilið fékk nafnið Hetjulundur og opnar nú á næstu vikum. „ Við erum ákaflega stoltar af þessu verk- efni og það er ólýsanlegt að sjá draum þeirra og okkar rætast í byggingu þessa yndislega húss,“ segir Gróa. Þriðja söfnunin Árið 2010 var komið að þriðju söfnuninni. Núna ákváðu þær að beina kastljósinu að endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðinni Ljósinu, en þangað geta krabbameins- sjúkir og aðstandendur þeirra leitað stuðnings. „Við kynntum okkur hvar peningarnir kæmu sér best,“ segir Guðný. „Ljósið er fallegt og þangað er gott að koma. Þetta er ekki stofnun, meira svona heimili, þar sem tímanum er varið í fönd- ur og allskonar námskeið sem eru í gangi á meðan fólk er að safna kröftum. Starf- semin er í leiguhúsnæði og við sáum fyrir okkur að geta með söfnuninni tryggt þeim grunn að framtíðarhúsnæði. Við söfnuðum rúmlega 40 milljónum króna með sölu á glossum og í söfnunarþætt- inum,“ segir Guðný. Af litlum neista.... Í lok sumars 2011 fer fjórða verkefnið af stað hjá þessum ótrúlegu konum og hvaða málefni fær notið krafta þeirra í ár? „Eftir miklar vangaveltur og heimsóknir til ým- issa félaga ákváðum við að fara í samstarf við Neistann, félag hjartveikra barna,“ segir Gróa. Við höfðum samband við for- svarsmenn Neistans og ræddum við barnahjartalækna á Barnaspítala Hrings- ins. Í þeim samtölum kom í ljós að vöntun er á að endurnýja hjartaómskoðunartæki fyrir fóstur og börn, en slíkt tæki er notað oft á dag á spítalanum. Um 70 börn grein- ast árlega með hjartagalla og með nýju tæki mun takast betur og nákvæmar að greina tilfelli. Það getur bæði sparað pen- inga og bjargað lífum. Tækið kostar á milli 40 og 50 milljónir króna og vonandi tekst okkur að ná því með hjálp þjóðarinnar líkt og áður. Einnig er markmiðið að vekja at- hygli á starfsemi Neistans sem er frábær, enda halda þau utan um hjartveik börn og fjölskyldur þeirra af miklum sóma“. Galdurinn Engan hefði órað fyrir hvað þessi litla hugmynd vinkvennanna myndi leiða af sér margt gott. „Nei, þetta var pínulítill galdur,“ segir Guðný. „Þetta bara gerðist. Ég held að þetta hafi bara átt að gerast, því þetta gerði okkur öllum mjög gott. Þarna var veikindunum snúið upp í tækifæri.“ „Já, það var skrítið hvernig þetta gerðist,“ segir Gróa. „Ég var hálf grá og guggin og ósköp þungt yfir mér. Margir sögðu; æi greyið og auðvitað þótt mér vænt um það en það vill enginn vera í þeirri stöðu að vera vorkennt. Í miðri meðferð var frá- bært að geta hugsað um eitthvað annað og ekki skemmdi fyrir að selja 20 þúsund gloss fyrsta árið. „Það er ákveðin orka sem fer í gang þegar konur sameina krafta sína og þá fæst ýmsu áorkað. Við erum þó ekki einar að verki. Sennilega koma á milli 150-200 manns að einu svona átaki og það er algjörlega ómetanlegt. Án þess að nefna einn umfram annan verðum við þó að nefna auglýsingastofuna Fíton sem hefur stutt okkur ómetanlega með frá- bærum herferðum ár eftir ár“, segir El- ísabet. Það hefur svo sannarlega sýnt sig að þegar þessar þrjár konur úr Kópavog- inum komu saman einn daginn og spurðu sig; hvað getum við gert sem er gott fyrir aðra, þá átti það eftir að breyta lífi margra til hins betra. Fyrsta skóflustungan að Hetjulundi tekin. En núna er búið að klára húsið og heimilið verður opnað á næstu vikum. Hópurinn sem stóð að sjónvarpsátakinu. Allir sem tóku þátt í því gáfu vinnu sína. ’ Þetta fólk sem vinnur á krabbameinsdeild Landspítalans ætti að fá fálkaorðuna og það á hverju ári, alltaf.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.