SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Blaðsíða 44
44 5. júní 2011
Alan Campbell - Sea of Ghosts bbbnn
Þó margir hafi kunnað að meta Deepgate-bókaröð Alans Cam-
bells fannst mér þær svo uppskrúfaðar að ég nennti meira að
segja ekki að lesa síðustu bókina þar sem allt var útskýrt að mér
skilst. Sea of Ghosts er mun betur heppnuð
bók, vissulega flókin og harkaleg, en það sem
undir liggur er mjög forvitnilegt. Í sem
skemmstu má.li segir bókin frá uppgjafa her-
manni sem er hart leikinn af konungi sínum
og hrökklast í útlegð. Fyrir tilviljun nær hann
að frelsa dóttur sína og barnsmóður, en þegar
kemur í ljós að dóttirin býr yfir leyndu og
óttalegu afli flækir það líf hans til muna sem
vonlegt er. Bókin stendur ágætlega sem stök,
en þó er flest óuppgert við lok hennar.
Cherie Priest - Boneshaker bbmnn
Steampunk kalla menn bækur eins og þessa og mikið um að vera
í þeim afkima bókmenntanna. Boneshaker
gerist í Bandaríkjunum á öndverðri átjándu
öldu, en allt er þó með öðrum blæ en var í
raunveruleikanum. Menn hafa nefnilega náð
mun lengra í vísindum og fræðum, aðallega
þó vélfræðum, og fljúga um á loftskipum og
smíða flókin tæki eins og jarðbor sem er og
upphaf sögunnar. Málið er nefnilega að jarð-
bor mikill veldur gríðarlegum skemmdum á
borginni Seattle með þeim afleiðingum að
þúsundir farast og eins hleypir hann af stað eiturgasi sem gerir
alla að uppvakningum sem lenda í því. sem anda því að sér.
Sonur óþokkans sem stýrði bornum heldur inn í rústirnar til að
grafast fyrir um sekt föður síns og móðir hans eltir. Krassandi
saga en fulllöng.
Keith Thomson - Twice a Spy
bbmnn
Fyrsta bók Keiths Thomas vakti víða athygli,
enda sneri hún skemmtilega útúr hefðbund-
inni spæjarasögu – faðir söguhetjunnar er
með heilabilun. Að því er söguhetjan best veit
var faðirinn sölumaður sem sérhæfði sig í
ryksugum, en hefur verið á eftirlaunum um
hríð. Hið rétta er að hann var þrautþjálfaður leyniþjón-
ustumaður og þegar það spyrst út hve veikur hann er orðinn
ákveða yfirmenn hans að koma honum fyrir kattarnef. Það
verður feðgunum til bjargar að þó heilabilunin sé komin á alvar-
legt stig koma skynsemisglennur inn á milli og kemur sér vel á
æsilegum flótta. Seinni bókin er meira af því sama, en ekki eins
vel heppnuð; mun nær hefðbundinni hasarbók en fyrri bókin.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Erlendar bækur
Eymundsson
1. Worth Dying For - Lee Child
2. 9th Judgement - James
Patterson
3. Angelology - Danielle Trus-
soni
4. Mini Shopaholic - Sophie
Kinsella
5. Tigerlily’s Orchids - Ruth
Rendell
6. Sunset Park - Paul Auster
7. The Reversal - Michael
Connelly
8. Minding Frankie - Maeve
Binchy
9. Happy Ever After - Nora Ro-
berts
10. The Cobra - Frederick For-
syth
New York Times
1. Water For Elephants - Sara
Gruen
2. The Help - Kathryn Stockett
3. 10th Anniversary - James
Patterson & Maxine Paetro
4. Something Borrowed -
Emily Giffin
5. Dead Reckoning - Char-
laine Harris
6. Buried Prey - John Sand-
ford
7. The Jefferson Key - Steve
Berry
8. The Sixth Man - David Bal-
dacci
9. A Game of Thrones -
George R.R. Martin
10. Something Blue - Emily
Giffin
Waterstone’s
1. Lord of the Flies - William
Golding
2. The Short Second Life of
Bree Tanner - Stephenie
Meyer
3. The Midnight Palace - Car-
los Ruiz Zafon
4. Breaking Dawn - Stephenie
Meyer
5. The Girl Who Kicked the
Hornets’ Nest - Stieg Lars-
son
6. Kiss of Death - Rachel
Caine
7. Passion - Fallen - Lauren
Kate
8. A Dance with Dragons -
George R.R. Martin
9. Midnight - L.J. Smith
10. The Lost Symbol - Dan
Brown
Bóksölulisti
Lesbókbækur
Á
sinni tíð var bandaríski rithöfund-
urinn David Foster Wallace risinn
meðal ungra rithöfunda þar vestan
hafs. Hann var mælskur og hug-
myndaríkur, gagnrýninn og djarfur og kallaður
„rödd X-kynslóðarinnar“. Það kemur því ekki á
óvart að bandarískur bókmenntaheimur hafi
fengið áfall þegar Wallace hengdi sig á heimili
sínu í Claremont í Kaliforníu í september 2008.
Þó það hafi verið á margra vitorði að Wallace
væri þunglyndur, enda ræddi hann það op-
inskátt, vissu fáir hve veikur hann var og hann
skrifaði aldrei um það.
Helsjúkt samfélag
David Foster Wallace var ekki bara snjall rithöf-
undur, heldur var hann líka afburða námsmaður
og efnilegur stærðfræðingur þegar hann ákvað að
gerast frekar rithöfundur. Hann
lauk námi við Amherst-skólann í
Massachusetts og síðan meist-
araprófi frá Arizona-háskóla. Að
því loknu hélt hann í heim-
spekinám við Harvard-háskóla,
en lauk því ekki.
Fyrsta skáldsaga hans, The
Broom of the System, kom út
1987 og smásagnasafnið Girl with
Curious Hair 1989, en vöktu ekki
mikla athygli. Infinite Jest, sem
kom út 1996, vakti aftur á móti
mikla athygli, en í bókinni segir
hann meðal annars frá eitur-
lyfjaneyslu og glímunni við fíkn,
en líka frá helsjúku samfélagi.
Bókin gerist í heimi þar sem ríkið
Norður-Ameríka nær yfir Banda-
ríkin, Kanada og Mexíkó, en stór hluti landsvæð-
isins er svo mengaður af eitur- og spilliefnum að
ekkert fær þrifist þar. Allt er falt í þeim heimi, sem
sést meðal annars af því að fyrirtæki kaupa réttinn
á heiti ára og bókin gerist á ári Depend-nærfata.
Markmiðið að hjálpa fólki
Infinite Jest er mikil að vöxtum, ríflega þúsund
síður, en næstu bækur Wallace voru smásagna-
söfn, Brief Interviews with Hideous Men, sem
kom út 1999 og 2004 kom út Oblivion: Stories.
hann var með aðra skáldsögu í smíðum þegar
hann féll frá, The Pale King, sem hann hafði unnið
að í um áratug. Sú bók kom út í síðasta mánuði og
hefur mjög verið rædd vestan hafs.
Handritið að bókinni kom í ljós þegar eiginkona
Wallace fór í gegnum pappíra hans, en einnig voru
uppköst að bókinni á tölvu hans. Vinur Wallace,
Michael Pietsch, tók svo að sér að
búa verkið til prentunar. Afrakst-
urinn er ríflega fimmhundruð
síðna bók í fimmtíu köflum.
Wallace byrjaði á The Pale King
2007, en nafnið á bókinni er ekki
frá honum komið, hann kallaði
hana „fyrirbærið langa“ ef hann
nefndi það við félaga sína. Bókin
segir frá skattaeftirlitsmönnum í
Illinois og því hvernig þeir glími
við leiðindi hversdagsins. Það var
og markmið Wallace að hjálpa
fólki að eiga við einmanaleika,
„skáldskapur er um það hvað það
er að vera maður og góðar bók-
menntir eiga að leiða til þess að
við séum ekki eins einmana“.
Bandaríski rithöfundurinn David Foster Wallace, höfundur The Pale King sem kom út fyrir stuttu.
Glíman við ein-
manaleikann
Bandaríski rithöfundurinn David Foster Wallace var flest-
um harmdauði þegar hann féll fyrir eigin hendi fyrir þrem-
ur árum. Fyrir stuttu kom út ókláruð skáldsaga sem hann
lét eftir sig.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is