Monitor - 31.03.2011, Page 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Marga dreymir um að öðlast heimsfrægð
og sumir væru til í að gera allt fyrir frægð-
ina. Hér eru nokkrar góðar aðferðir fyrir þá
sem stefna á toppinn eða vilja einfaldlega
bara vekja meiri athygli á sjálfum sér.
Langar þig
að slá í gegn?
HEIMSMET Í FLESTUM
GRÍMUKLÆDDUM
STRUMPUM SLEGIÐ
Heimsmet
Það hljómar kannski erfitt en
allir ættu að geta fundið sér
eitthvað til að slá heimsmet
í. Til dæmis er skráð í heimsmetabók Gu-
inness met í að rista brauð. Þú gætir jafnvel
fengið sem flesta til að koma saman og setja
hendurnar upp í loft á sama tíma.
Það er meira að segja hægt að
öðlast frægð við að reyna að slá
heimsmet nú þegar YouTube er
komið til sögunnar.
Það virðist
vera hægt að
slá heimsmet í
hverju sem er.
Líklega
tímafrekt.
Góðgerðarstörf
Gefðu mikinn pening eða eyddu
miklum tíma í góðgerðarstörf
og reyndu að komast í helstu
fjölmiðlana. Góðverk eru alltaf
vinsæl. Um daginn fjölluðu allir
helstu fjölmiðlarnir um konu sem tók
upp plastflösku af gólfi í verslunarmiðstöð
og henti henni í ruslið. Auðvelt, ekki satt?
Erfitt að safna
miklum pening
til að gefa.ALLIR VITA HVER
MÓÐIR TERESA ER
Raunveru-
leikaþættir
Þessi leið til frægðar er mál-
ið fyrir þá sem eru tilbúnir
til að opinbera líf sitt fyrir
almenningi. Það eru kannski
ekki margir möguleikar á
að taka þátt í raunveru-
leikaþáttum á Íslandi en
ekki gefast upp því þú þarft
ekki að leita lengra en til
Bretlands til að finna um
það bil þúsund slíka.
Krefst engra
hæfileika.
Gæti reynst
erfitt andlega.
KARDASHIAN SYSTURNAR EIGA
SINN EIGIN RAUNVERULEIKAÞÁTT
Hæfileikar
Ef þú syngur vel,
getur leikið eða
hefur einhvern
frábæran hæfi-
leika er það gullni
miðinn til Hollywood.
Samkeppnin er reyndar
fáránlega hörð en
málið er að reyna
að vera öðruvísi
en hinir til að
vekja athygli.
HVAÐ ÆTLI ÞAÐ TAKI
LANGAN TÍMA AÐ LÁTA SÉR
VAXA SVONA NEGLUR?
Gefandi.
HEATHER MILLS ER SJÚK Í
GÓÐGERÐARSTÖRF EN HÚN VAR
LÍKA GIFT PAUL MCCARTNEY
Varanlegur
árangur.
Hörð sam-
keppni.
Uppfinning
Mögulega erfiðasta
leiðin til frægðar
en án efa ein sú
skemmtilegasta.
Það virðist sem
allt hafi nú þegar
verið fundið upp
en finnirðu upp
eitthvað sem
almenningur
vill kaupa ertu á
grænni grein.
Gæti rakað inn
milljónum.
Litlar líkur
á árangri.
BEYONCÉ
KANN ÞETTA
MARK ZUCKERBERG FÉKK MEIRA
AÐ SEGJA BÍÓMYND UM SIG
YouTube
Gerðu eitthvað fáránlegt, taktu það upp á myndband og
settu á YouTube. Aðdáandi Britney Spears sem bað fólk
um að láta hana í friði varð frægur á einni nóttu svo
hugmyndin þarf ekki einu sinni að vera góð.
Ódýrt í
framkvæmd.
Yfirleitt nauðsyn-
legt að gera sig
að fífli um leið.
CHRIS CROCKER BER HAG
BRITNEY FYRIR BRJÓSTIKEENAN CAHILL ER
UPPÁHALD ALLRA Í
HOLLYWOOD
Sambönd
Til að gulltryggja
frægðina er ótrú-
lega sniðugt að
vera skyldmenni
einhvers frægs
einstaklings, eiga
í ástarsambandi
við frægan
einstakling eða
einfaldlega þekkja
einhvern frægan.
Paris Hilton er til
dæmis ekki fræg
fyrir neitt annað en að vera
dóttir föður síns og reyndar
mikið partíþol.
Krefst engra
hæfileika.
Tímafrekt að
koma sér í sam-
band við fræga
einstaklinga.
PARIS HILTON ER MEÐ
ÞEIM ATHYGLISSJÚKARI