Monitor - 14.04.2011, Qupperneq 3
Ívikunni mátti sjá ýmsarfurðuverur hoppandi og
skoppandi út um allar trissur
undir þeim formerkjum
að þar væru á ferðinni
menntskælingar að dimmt-
era. Með öðrum orðum er
tímabil „dimmiteringa“ eða
dimission, árlegur viðburður
í ýmsum framhaldsskólum
landsins, gengið í garð.
Eins og margir vita gengurdimission í grófum dráttum
út á það að nemendur sem
eru á leið í sín síðustu próf
í menntaskólanum sínum
klæða sig upp í búninga og
mála bæinn rauðan. Þessu
fylgja síðan ýmsar sérhefðir
sem eru breytilegar milli skóla.
Á meðal þeirra framhaldsskóla
sem viðhalda dimission-hefðinni
eru MH, MR og MS.
Athyglisvert væri aðvita hvaðan hefðin er
sprottin og jafnvel hver
upphaflega pælingin á
bak við hana var. Var
bara einhver mennt-
skælingur sem datt í
hug einn daginn að
það að klæða sig upp
í búning og drekka
væri fullkomin leið til
að kveðja framhalds-
skólann sinn? Hvað sem
því líður er mikilvægast
að fólk láti sér ekki bregða
þótt það sjái hóp af Stubbum eða
Disney-fígúrum á skralli um bæinn því að öllum
líkindum eru það bara saklausir menntskælingar á
tímamótum í sínu lífi að skemmta sér.
Skyndibitastaðurinn
Ali Baba hefur staðið við Ingólfstorg
í nokkur ár núna.
Þar eru fáan-
leg helfersk
kebab sem
klikka ekki.
Mennt-
skælingar
og aðrir
sem vinna í
miðbænum eru
algeng sjón á staðnum í hádeginu
á virkum dögum en einnig er
staðurinn tilvalinn stoppustöð að
miðbæjarskralli loknu um rauða
nótt. Ofar öðru er réttur númer sex,
Shawerma-rúllan.
Frönsku
sokkabuxurnar frá DIM eru
ómissandi í fataforða
hvers kvenmanns.
Aðalpartítrix
helgarinnar
er að eiga að
minnsta kosti
eitt par af
sokkabuxunum
sem fá einfald-
lega ekki lykkjufall.
Hægt væri að velta sér
upp úr götunni í miðbæ Reykjavíkur
án þess að lykkjufall líti dagsins ljós.
Tónlistarhátíðin
Reykjavík Music Mess sem fram fer
um helgina er splunkuný á nálinni.
Hér er á ferðinni
metnað-
arfullt
framtak
með
þrusu-
hljóm-
sveitum.
15.- 17.
apríl eru því
allir tónlista-
runnendur hvattir til að flakka á
milli Nasa, Sódómu og Norræna
hússins þar sem reikna má með
ósviknu tónleikafjöri. Sjá nánar á
bls. 8 í blaðinu.
Monitor
mælir með
Í GOGGINN
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Gunnþórunn Jónsdóttir (gunnthorunn@monitor.is) Sigyn Jónsdóttir
(sigyn@monitor.is) Auglýsingar: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Forsíða: Sigurgeir Sigurðsson Myndvinnsla: Hallmar F.
Þorvaldsson Grafík: Elín Esther Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569-1136 Netfang: monitor@monitor.is
FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2011 Monitor
Feitast í blaðinu
Dagur Sigurðsson.
Sló rækilega í gegn
á Söngkeppni fram-
haldsskólanna
á Akureyri.
Viðtalið. Halldór
Gylfason er með
meðaleinkunnina
6,5 í lífinu eins
og í skólanum.
Skammarverðlaun
Hollywood. Hress
umfjöllun um
Razzie-verð-
launin góðu.
12
Lokaprófið. Vignir
Snær Vigfússon
þreytti Lokaprófið
og stóðst það
með stæl.
Blóðug banda-
slit. Umfjöllun
um krassandi
endalok
hljóm- 16
10
Ritstjóri Monitor var valinn
Ræðumaður Íslands árin 2004 og 2005.
Í NÆRFATASKÚFFUNA
„Þetta var ótrúlega sætur sigur og um leið mjög
fyndinn í ljósi þess að enginn okkar er frjálshyggjumað-
ur og við allir frekar vinstrisinnaðir,“ segir Jóhann Páll
Jóhannsson, stuðningsmaður í ræðuliði MR-inga, sem
fór með sigur af hólmi í úrslitaviðureign MORFÍS þar
sem rökrætt var um frjálshyggju fyrr í vikunni. Jóhann
Páll hefur verið í ræðuliðinu öll sín ár í MR og hefur
því haft augu á sigrinum lengi. „Við erum allir búnir að
vinna mikið fyrir þessu og loksins rættist draumurinn,“
segir Jóhann Páll og bendir á að mikið hafi verið í húfi
fyrir MR-inga í Háskólabíói á þriðjudagskvöldið. „Við
vildum endurheimta Háskólabíósstoltið,“ segir hann og
vísar í úrslitaviðureignina í Gettu betur sem fór nýlega
fram í Háskólabíói en þá þurftu MR-ingar að láta í minni
pokann fyrir sigurliði Kvennaskólans.
Mikilvægara að sigra keppnina
Jóhann Páll segist ekki bera kala til Þóris Freys sem
hlaut titil Ræðumanns Íslands þrátt fyrir að vera í
tapliði úrslitakvöldsins. „Við sættum okkur við það
enda er miklu mikilvægara að vinna keppnina en að
eiga ræðumanninn,“ segir Jóhann Páll og hrósar Þóri
fyrir góða frammistöðu í keppninni. „Hann var flottur,“
viðurkennir Jóhann Páll sem segist ekki hafa fengið leið
á liðsfélögunum þrátt fyrir alla samveruna í vetur. „Við
erum fjölskylda og höfum lært að elska hvern annan.“
Úrslitaviðureign ræðukeppninnar MORFÍS fór fram á þriðjudagskvöldið. Þar öttu kappi
lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund og fór MR með sigur af hólmi.
Ræðumaður Íslands árið 2011 er þó MS-ingurinn Þórir Freyr Finnbogason. Monitor ræddi
við Jóhann Pál Jóhannsson úr liði MR-inga um undirbúninginn og langþráðan draum.
Vala Grand
Fékk mér
Svakalega kúr
i gær omg........
it was like
being in a haven while being
touch by a angel .....þetta var
svakalegt nótt mar
11. apríl kl. 14:51
Sveinn Andri
Sveinsson
“A man is only
as old as the
woman he
feels.” (Groucho Marx)
13. apríl kl. 01:08
Efst í huga Monitor
Dimmisjón menntskælinga
Óli Geir
Geggjaður
dagur, Getzinn
kominn á ný
dekk og kominn
úr viðgerð, búinn að taka
hellaða æfingu og gufu, núna
eru bringur í grillinu og sætar
kartöflur :D
11. apríl kl. 22:15
XXX X X XX
Mynd/Golli
Í EYRUN
Loksins rættist
draumurinn
Sigga Kling
Ég vill mann
sem er meiri
háttar kjút
ég vill mann
sem býður kellu út
ég vill mann sem neglir nagla
á vegg
vitið þið hvar ég finn þennan
eðalstegg.............tralalavoff-
voff 12. apríl kl. 15:25
Vikan á...
JÓHANN, MAGNÚS OG AUÐUNN
SÁTTIR MEÐ BIKARINN.
Á MYNDINA VANTAR LIÐSMANNINN ÓLA.
6 - óttist eigi!
22
Hefur pælt mikið í Bill Clinton
MS-ingurinn Þórir Freyr var valinn Ræðu-
maður Íslands í úrslitakeppni MORFÍS á
þriðjudagskvöldið. „Ég er ekki alveg bú-
inn að átta mig á þessu ennþá,“ sagði
Þórir þegar Monitor náði tali af honum
nývöknuðum daginn eftir sigurinn.
Blendnar tilfinningar
„Mér finnst þetta auðvitað
geðveikt enda er þetta mikill
heiður,“ bendir hann á og
segist hafa þráð titilinn lengi.
Hann segist þó glíma við
blendnar tilfinningar eftir
sigurinn enda tapaði lið hans
úrslitunum með 40 stigum.
„Þetta er áfangi fyrir mig sem
einstakling og ræðumann en
um leið svo ógeðslega leiðin-
legt fyrir mig sem liðsmann,“
segir hann skúffaður með tap
liðsins.
Engin sérstök keppnisrútína
Allir liðsmenn MS-inga voru að
keppa í MORFÍS í fyrsta skipti. Hann
segist ekki vera með nein sérstök
brögð til að undirbúa sig fyrir
keppni. „Í rauninni er ekkert sérstakt
sem ég geri fyrir keppni nema að
einbeita mér mikið. Ég hlusta
ekki á eitthvað ákveðið Sigur-
rósarlag eða neitt slíkt,“ segir
ræðumaðurinn knái sem á
sér þó nokkrar fyrirmyndir í
ræðumennskunni. „Forverar
mínir eru allir fantagóðir og
þá sérstaklega Hafsteinn
Gunnar Hauksson, hann
er frábær ræðumaður,“
segir hann og bætir við að
fyrrum Bandaríkjaforseti sé
líka í miklu uppáhaldi hjá
sér. „Ég hef pælt mikið í Bill
Clinton.“