Monitor - 14.04.2011, Page 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2011
Háskólalíf á Akureyri
Monitor ræddi við nokkra nemendur Háskólans á Akureyri sem fluttu þangað úr höfuðborginni
og forvitnaðist um félagslífið, námið og helstu kosti þess að búa á Akureyri.
Myndir/Skapti
Smábæjar-
menningin
heillar
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Háskólann á Akureyri? Smábæjar-
menning heillar mig þó Reykjavík
sé líka frábær. Svo er mjög mikil
alþjóðatenging í laganáminu á
Akureyri og þú getur til dæmis valið
hvort þú vilt taka mastersgráðuna á
Íslandi eða erlendis.
Tekur námið mikinn tíma í hverri
viku? Já, þetta er náttúrulega krefj-
andi lögfræðinám. Maður tekur próf
næstum því aðra hverja viku sem
er mikil keyrsla en maður heldur
athyglinni vel.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú hefur lært hingað til? Mér finnst
grunnfögin mjög skemmtileg sem
kom mér á óvart því margir segja
að þau séu svo þurr. Svo kennir
Háskólinn á Akureyri fag sem heitir
Alþjóðlegur einkamálaréttur sem
er ekki ósvipaður Icesave-málinu
svo það var gaman að fá innsýn inn
í það.
Hvernig er félagslífið? Það er rosa
sérstakt ef maður kemur úr Verzló
því þetta er lítil deild. Ég þekki alla í
grunnnáminu og líka eiginlega alla í
mastersnáminu. Ég sat í nemenda-
félaginu og það er allt svo opið. Ef
þú hefur áhuga á að gera eitthvað í
félagslífinu er það ekkert mál.
Hvað er það besta við að búa á
Akureyri? Hvað það er auðvelt að
kynnast fólki og það kemur mér
líka stöðugt á óvart hvað það er allt
til alls hérna. Þetta er svo vinalegur
bær.
ÁSDÍS AUÐUNSDÓTTIR
LÖGFRÆÐI
1987
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Ekkert slæmt
við að búa á
Akureyri
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Háskólann á Akureyri? Ábyggilega
af sömu ástæðu og þeir sem fara í
Háskóla Íslands; til að mennta mig.
Það er gott að vera á Akureyri.
Tekur námið mikinn tíma í hverri
viku? Ég er í skólanum frá 8-16 á
hverjum degi svo þetta eru 40 tímar
á viku. Ég er að vinna í fjórum rann-
sóknum núna. Einn helsti kosturinn
við að vera í Háskólanum á Akureyri
er að hérna eru meiri líkur á að fá
að vinna náið í rannsóknum með
prófessorunum sínum.
Hvernig er félagslífið? Það er hörku-
gott. Núna er ég reyndar orðinn
einhver skrifstofublók og tek lítinn
þátt í félagslífinu.
Hver var stærsta breytingin við að
flytja til Akureyrar? Engin. Ennþá
sama tungumálið og sama fólkið,
minni Ártúnsbrekka, færri bílar og
betra að vera hérna.
Hvað er það versta við að búa á
Akureyri? Ég held það sé ekkert
slæmt við að búa á Akureyri.
Ert þú byrjað að tala með norð-
lenskum hreim? Ég hef reyndar
alltaf talað þannig þó ég sé fæddur í
Hafnarfirði.
Hvort er betra að prumpa í stamp-
inn eða drekka kók í bauk? Það
hlýtur að vera best í prumpa í bauk.
Mjög öflugt
félagslíf
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Háskólann á Akureyri? Þetta
byrjaði nú eiginlega þannig að
ég fór í fjarnám í Háskólanum
á Akureyri í eitt ár. Fjarnámið
hentaði mér á þeim tíma og svo
leist mér svo vel á skólann að ég
ákvað að skrá mig í staðnámið.
Tekur námið mikinn tíma
í hverri viku? Það er mjög
misjafnt. Verkefnavinnan og
hópavinnan tekur hvað mestan
tíma held ég og oft þarf ég að
læra frameftir nóttu þegar það
eru stór verkefnaskil sem er
stressandi en samt ákveðin
stemning.
Hvernig er félagslífið? Það
er mjög gott. Það er sérstakt
nemendafélag fyrir hverja deild
og viðskiptafræðideildin er með
mjög öflugt félagslíf. Nóg af
vísindaferðum og bjórkvöldum
og svoleiðis.
Hver var stærsta breytingin við
að flytja til Akureyrar? Ég bjó
hjá foreldrum mínum áður svo
mesta breytingin var líklega að
flytja að heiman. Hérna getur
maður líka gengið allt og lífið er
rólegra.
Hvað er það besta við að búa
á Akureyri? Fólk er miklu
afslappaðra yfir lífinu og ekki
mikið stress og læti.
Ert þú byrjaður að tala með
norðlenskum hreim? Nei,
ekkert slíkt. Sumir hérna tala
mjög afgerandi en ég heyri
engan mun hjá flestum.
Talar
stundum
með norð-
lenskum
hreim
Af hverju ákvaðst þú að fara í
Háskólann á Akureyri? Námið var
ekki í boði annars staðar á Íslandi
og ég var spennt að prófa eitthvað
nýtt.
Tekur námið mikinn tíma í hverri
viku? Já, það gerir það. Þetta tekur
mikinn tíma enda krefjandi nám
og mjög skemmtilegt.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú hefur lært hingað til? Hvernig
líkaminn virkar og hvað það er
margt sem getur haft áhrif á okkur
sem persónur.
Hvernig er félagslífið? Það er rosa-
lega gott og alltaf eitthvað um að
vera sama hvort það er á vegum
nemendafélagsins eða annarra.
Hver var stærsta breytingin við
að flytja til Akureyrar? Að fara frá
fjölskyldunni og það er rosalega
mikill snjór hérna miðað við í
Reykjavík.
Hvað er það besta við að búa á
Akureyri? Stuttar vegalengdir
og svo er veðrið einhvern veginn
hlýrra og minni rigning.
Ert þú byrjuð að tala með norð-
lenskum hreim? Já, ég held það
komi fyrir stundum. R-in og k-in
eru orðin harðari.
Hvort er betra að prumpa í
stampinn eða drekka kók í bauk?
Klárlega að drekka kók í bauk.
MARÍA EINARSDÓTTIR
IÐJUÞJÁLFUNARFRÆÐI
1986
FJÖLBRAUTARSKÓLINN Í GARÐABÆ
SVEINN ARNARSSON
ÞJÓÐFÉLAGSFRÆÐI
1984
FLENSBORGARSKÓLINN Í HAFNARFIRÐI
EINAR HALLSSON
VIÐSKIPTAFRÆÐI
1987
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS