Monitor - 28.04.2011, Blaðsíða 6

Monitor - 28.04.2011, Blaðsíða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2011 Hvernig myndir þú lýsa tónlistinni ykkar í fimm orðum? Léttpoppuð nýbylgja undir hippískum áhrifum. Hvað er hydrophobic krossfiskur? Þetta þýðir í rauninni bara vatnshræddur krossfiskur. Nafnið er hugmyndasmíð Magnúsar og Arnars Péturs og er held ég bara eitthvað hljómsveitaflipp svo það er engin rosaleg meining á bak við vatns- hrædda krossfiskinn. Hversu erfitt er að vera eina stelpan í hljómsveitinni? Ég er ekki frá því að ég sé orðin ein af strákunum. Ég hlæ að sömu bröndurunum og fíla líka fótbolta alveg í döðlur. Þeir eru samt með svona strákahúmor sem ég er alveg komin inn í. Kærastinn minn tók að minnsta kosti eftir stórri húmorsbreytingu eftir að ég byrjaði í hljómsveitinni. Hvernig kom það til að þú byrjaðir í hljómsveitinni? Ég var í söngtíma og sá auglýsingu í FÍH en strákarnir eru einmitt allir að læra þar. Svo fór ég í áheynarprufu og þetta small allt saman alveg svakalega vel. Hvað ert þú að gera fyrir utan að vera söngkona í rokkhljómsveit? Ég er tónlistarkennari á Suðurnesjunum. Kenni söng og á þverflautu, klarinett, saxófón og trompet. Svo er ég sjálf að klára tónlistarnámið mitt í Reykjanesbæ. Er að klára burtfararpróf í rytmískum söng og þverflautu. Hvaða söngkona er þín helsta fyrirmynd? Þær eru eiginlega nokkrar. Ég er undir áhrifum frá Evu Cassidy, einhvers konar soul Aretha Franklin blundar í mér og svo vottur af Shady Owens. Það var allavega sagt við mig um daginn að ég hljómaði eins og hún sem er æðislegt. Draumagiggið? Eigum við ekki bara að segja Hróarskelda og Muse að hita upp fyr- ir okkur eða öfugt. Það væri pínu draumur að spila þar. Afkvæmi hvaða tveggja hljómsveita væri Hydrophobic Starfish? Ég myndi segja Trúbrot því við höfum oft fengið svona Trúbrots-vibe frá fólki og svo hefur okkur verið líkt við Írafár sem ég er ekki sammála. Ætli við séum ekki bara eingetið afkvæmi Trúbrots með áhrifum frá nýbylgju. Hvað er framundan hjá hljómsveitinni? Spila á Svínarí á Faktorý í byrjun maí og svo er stefnan að reyna að gigga sem mest og koma okkur að. Við ætlum að reyna að taka einhverja tónleika í sumar og spilum vonandi á Airwaves í haust. Það var æðislega gaman síðast. Er plata á leiðinni? Það fer eftir hversu vel gengur. Við eigum nóg efni í plötu en það verður bara að koma í ljós hvenær hún fær að líta dagsins ljós. Uppáhaldscoverlag? Það er pínu skrítið að við spilum engin coverlög. Reyndar tókum við eitt á æfingu um daginn, einhvern blús og ég tók nokkra flotta tóna á munn- hörpuna. Yfirleitt þegar þeir fara eitthvað að djamma á æfingum sest ég bara og fer í símann. Ætlið þið að meika það? Við stefnum á að verða nafn. Það er klárlega næsta skref og við viljum vera þekkt. Okkur finnst við hafa alla burði til þess og auðvitað er draumurinn að meika það og túra um Evrópu. Á Facebook-síðu hljómsveitarinnar segist þið stefna á heimsyfirráð eða dauða. Hvoru eru þið nær í augnablikinu? Ætli við séum ekki nær heimsyfirráðum því við erum afskaplega lifandi og eldhress. Mun ekki horfa á brúðkaupið Tónlistargoðið Morrissey ásak- aði bresku konungsfjölskylduna um að vera tækifærissinna í útvarpsviðtali á BBC 5live í vikunni. Hann sagðist ekki ætla að horfa á brúðkaup Vilhjálms og Kate Middleton en talið er að um tveir milljarðar manns muni horfa á athöfnina sem allir eru búnir að vera að tala um síðustu vikur og jafnvel mánuði. „Af hverju ætti ég að horfa á brúðkaupið? Af hverju ætti ég að horfa á það?“ sagði Morrissey í viðtalinu. „Ég get ekki tekið neitt af þessu alvarlega. Mér finnst þessi svokallaða konungsfjölskylda ekki tala máli Bretlands núna og mér finnst landið ekki þurfa á henni að halda,“ hélt Morrissey áfram og var hvergi nær hættur að segja skoðanir sínar á konungs- fjölskyldunni. „Mér finnst þau vera tækifærissinnar og ekkert annað. Ég held að þau þjóni engum tilgangi,“ sagði Morrissey sem er greinilega ekki par sáttur með gengið í Buckingham-höll. Hryllings- myndin Black Sabbath Tónlist Ozzy Osbourne og hljómsveitarinnar Black Sabbath mun prýða nýja hryllingsmynd sem sonurinn Jack Osbourne er með í bígerð um þessar mundir. Jack á framleiðslufyrirtækið Jacko Productions og gaf út yfirlýsingu varðandi nýju hryllingsmyndina eftir frumsýningu tónleikaheimild- armyndarinnar God Bless Ozzy Osbourne sem hann framleiddi einnig. Hann virðist hafa gaman af að gera kvikmyndir tengdar föður sínum og mun nýja myndin einfaldlega heita Black Sabbath og innihalda tónlist hljómsveitarinnar en ekki er komið í ljós hvernig söguþræðinum verður háttað. Með hákarla heima hjá sér Rapparinn Lil Wayne er um þessar mundir að leggja loka- hönd á níundu breiðskífu sína, The Carter IV, sem kemur út þann 16. maí í Bandaríkjunum. Flest lögin voru tekin upp og samin eftir að hann kom úr fangelsi þann 4. nóvember á síðasta ári. Í viðtali við MTV News sagðist hann vera búinn á því eftir mikla vinnutörn en hlakkar engu að síður til að gefa út plötuna. Paris Hilton tók áhugavert viðtal við Lil Wayne fyrir Interview Magazine og spurði hann meðal annars út í gæludýr þar sem hún hefur ein- mitt mikinn áhuga á slíkum, sérstaklega smáhundum. Þá kom í ljós að rapparinn á frekar óvenjuleg gæludýr er hann sagðist eiga fjöldamarga fiska og tvo hákarla. „Annar þeirra er nýfæddur en hinn er töluvert stærri,“ sagði Lil Wayne sem geymir hákarlana í búri á heimili sínu í Miami. Vill ekki búa í lúxusíbúð Söngdívan Susan Boyle afhjúpaði vaxmynd af sjálfri sér fyrr í vikunni á Madame Tussaud‘s safninu í Blackpool. Hún er því opinberlega orðin stórstjarna en vill ekki lifa sem slík. Á síðasta ári flutti hún af gamla heimili sínu í Blackburn eftir að unglingur braust inn í húsið. Hún flutti þá í lúxusíbúð sem sæmir stórstjörnu en hefur nú ákveðið að flytja aftur í gamla húsið sitt þar sem lúxus- inn henti henni illa. Susan sagði í nýlegu viðtali að hún saknaði einnig gömlu nágrannanna og samskiptanna sem fylgdu því að búa í grónu hverfi. Hljómsveitin Hydrophobic Starfish vakti athygli á Músíktilraunum í fyrra og hefur getið sér gott orð síðan. Monitor ræddi við Marínu Ósk, söngkonu sveitarinnar, sem er eitt allsherjar tónlistargúrú. nýbylgjuafkvæmi MARÍNA ÓSK ÁSAMT HINUM VATNSHRÆDDU KROSSFISKUM Eingetið Trúbrots Mynd/Sigurgeir HYDROPHOBIC STARFISH Stofnuð: 2009. Meðlimir: Marína Ósk (söngur), Arnar Pétur (gítar), Magnús Ben (hljómborð), Örn Ingi (bassi) og Gunnar Leo (trommur). Tvö góð lög: Leiðin heim og 1967. Fyndin staðreynd: Æfingastaður Hydropho- bic Starfish er stofa Magnúsar hljómborðs- leikara því þau eru svo rosalega heimilisleg.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.