Monitor - 28.04.2011, Blaðsíða 14

Monitor - 28.04.2011, Blaðsíða 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2011 Mér finnst krefjandi og skemmtilegt að vinna mér inn aðdáendur á Íslandi og reyna að sanna að þó maður sé poppari þá er alvara á bakvið þetta og að þetta er frá hjartanu. Ég veit að það hljómar voða væmið en ég var bara svo heppinn að ég fann bara réttu stelpuna þegar ég var 17 ára og hún 16. 30 milljónir aðdáenda á Facebook á meðan John Mayer, sem ég fíla sjálfur miklu meira, er með þrjár milljónir. Þess vegna er gott fyrir mig með tónlistina mína, sem er ekki eins fljót að fanga athygli fólks, að geta sagt að ég sé bróðir Friðriks. Það var kannski skrýtið fyrst af því að hann er yngri, en núna hika ég ekki við það ef það hjálpar til. Þið Friðrik eruð svolítið eins og Kaín og Abel er það ekki? Jú, ég er Kaín og ef þessari velgengni hans fer ekki að linna þá er fátt annað í stöðunni en að drepa hann. Á ég að gæta bróður míns? Pabbi ykkar er að minnsta kosti eins og Abraham. Þú meinar hvort hann þurfi að drepa son sinn líkt og Abraham drap Ísak? Ég held að pabbi neyðist til að drepa mig af því að ég hef verið svo væminn í þessu viðtali. Annað sem gerir þig að óhefðbundinni poppstjörnu er að þú ert líka knattspyrnumaður. Getur þú eitthvað í fótbolta? Ertu hvíti Cafu eða er þetta bara hobbí? Ég hef náttúrulega spilað fótbolta síðan ég man eftir mér. Það er hluti af mér og mínum lífsstíl að æfa fimm sinnum eða oftar í viku. Mér þykir í raun rosalega skrýtið að ímynda mér lífið án fótbolta eða eins og einn limagóður félagi minn sagði: „Hvernig ætli það sé að eiga líf á milli 5 og 7?“ Ég er langt í frá hæfileikaríkasti gæinn á vellinum en ég fer þetta á áræðninni og kappseminni. Það sem er líka svo gaman í fótboltanum er að fyrir mér er hann svo krefjandi og ég þarf að standa mig virkilega vel til að fá að spila stóra rullu – ég tala nú ekki um þegar ég er í jafn góðu liði og FH-liðið er. Ég hef gaman af slíkum áskorunum og reyni á hverjum degi að bæta mig sem knattspyrnumaður. Ert þú eina íslenska poppstjarnan með six-pack, fyrir utan mögulega nafna þinn Jónsa í svörtum fötum? Er ekki Jónsi í Sigur Rós með six-pack líka? Orðið á götunni er að þrátt fyrir að þú spilir með einu besta liði landsins vitir þú ekkert um fótbolta. Er það rétt? Við skulum bara orða það þannig að þegar þessir spekingar byrja að tala og eru eitthvað: „Hvað var Manchester City að kaupa þennan Balotelli?“ Þá tek ég tvö skref aftur á bak og lauma mér út. Ég væri ógeðslega lélegur í fótbolta-pub-quiz. Hvers lenskur er Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool? Hann er velskur. Hann er skoskur. Ég vissi að hann væri skoskur. Ég var að grínast með að segja að hann væri velskur. Ekki hafa þetta með í viðtalinu. Við getum ekki hagrætt sannleikanum. Að öðru. Þú hefur aldrei drukkið áfengi. Hvers vegna tókstu þá ákvörðun? Ég hef alveg bragðað áfengi og veit hvernig það smakkast, en ég hef aldrei drukkið það mikið magn að ég finni á mér. Þetta er ekki ákvörðun sem ég tók, þetta hefur einhvern veginn bara þróast svona. Ég var alltaf bara heví hress á því og þurfti ekki að borga leigubíl heim og svona. Plús það að síðan varð þetta allt í einu töff, að ég væri eini gæinn sem var ekki að drekka. Svo reyndar eftir því sem ég eldist þá verða viðbrögð fólks skrýtnari þegar maður segir því að maður drekki ekki. Þá hugsa menn að maður hljóti að hafa hætt að drekka því maður hafi verið í einhverju veseni í fortíðinni. Þú hefur ekki þurft að drekka til að losa um hömlur? Feimni hefur ekki verið að hrjá þig? Nei, það er rétt hjá þér. Ég dansa yfirleitt mest af öllum og ef það eru læti þá er ég alveg til í að taka þátt. Þannig að ef þú meikar það úti er ólíklegt að við fréttum af þér að rústa hótelherbergjum. Ég gæti alveg gert það sóber. Ég væri bara í gleði- vímu eftir að hafa spilað fyrir milljón manns. Það er alveg draumur að rústa herbergi. Annað sem er ekki hefðbundið poppstjörnu- einkenni er að þú ert búinn að vera með sömu stelpunni síðan í menntaskóla. Þarftu ekki að hætta með henni þegar platan kemur út? Jú, það er stefnan. Hún veit að sambandi okkar er lokið þegar platan kemur út. Nei, nei, ég veit að það hljómar voða væmið en ég var bara svo heppinn að ég fann bara réttu stelpuna þegar ég var 17 ára og hún 16. Það er sama hver reynir að draga mig á tálar, ég lít ekki við því (hlær). Nú er hún í tannlæknanámi á meðan þú ert að syngja og leika þér í fótbolta. Finnst þér allt í lagi að hún sé að fara að sjá fyrir fjölskyldunni í framtíð- inni? Ætli þetta sé ekki þriðji vendipunkturinn í ákvörð- uninni um að gerast tónlistarmaður. Fyrst hún verður tannlæknir þarf ég ekkert að sjá fyrir fjöl- skyldunni, ég get bara verið að leika mér. Ég reyndar er með það stórt egó að ég sé mig ekki alveg vera að fara að þiggja einhverja ölmusu frá henni. Hvenær á að fara að hlaða niður litlum Jónum? Hvað er þetta viðtal í Nýju lífi? Ég er ekki að tala um börn, ég er að tala um jónir, samheiti yfir hlaðnar agnir. Auðvitað! Við höfum alveg rætt þetta, en ég veit ekki hvort maður á eitthvað að fara með þetta í fjölmiðla. Það kemur örugglega að því fyrir þrítugt. Hvernig er fimm ára planið, hvað varðar tónlistina, fótboltann og einkalífið? 2016? Orðinn þrítugur. Hvað varðar fótbolta vil ég vera búinn að vinna tvöfalt, það er að segja bikar- og Íslandsmeistaratitil á sama ári. Hvað varðar tónlist væri gaman að vera búinn að gefa út svona þrjár plötur og hafa náð að þróa mig í tónlistinni með hverri plötu. Ég myndi líka vilja upplifa það að fara í svona sex vikna túr á einhverja svala staði. Hvað varðar einkalífið þá vona ég að ég verði enn með þessari stelpu sem ég hitti þegar ég var 17 og að hún sé ekki hlaupin á brott með allan tannlæknapening- inn sinn.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.