Monitor - 28.04.2011, Page 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2011
stíllinn
Leikkonan Eliza Dushku og Victoria‘s Secret
fyrirsætan Selita Ebanks skarta hér sama metal
kjólnum. Kjóllinn er ekki upp á marga fiska og
lítur út fyrir að vera svolítið „cheap“. Kjóllinn
fer líkamsbyggingu Ebanks mun betur enda
svakalegur kroppur en Dushku má eiga það að
hún valdi sér fallegri skó sem gera mikið fyrir
minna spennandi kjól. Hins vegar sigrar Ebanks.
Halle Berry og Abbie Cornish klæðast sama
Calvin Klein kjólnum. Þrátt fyrir að þetta sé
sami kjóllinn, þá lítur hann alls ekki út fyrir að
vera það, þar sem þær stöllur eru mjög ólíkar
í laginu. Berry hefði átt að fara í skóna hennar
Cornish, þar sem að ökklabönd á skóm gera
mann lágvaxnari og leggirnir fá ekki að njóta
sín.
Hvor ber pelsinn betur? Ashley Tisdale eða
Kourtney Kardashian? Pelsinn sem Kardashi-
an systirin skartar er einhvernveginn flottari
en pelsinn hennar Tisdale, þrátt fyrir að hann
sé alveg eins. Kourtney sigrar stríðið að þessu
sinni, það er nefnilega eitthvað smart við að
vera í skóm í stíl við pelsinn. Ashley er líka
svolítið skinkuleg.
Stórvinkonurnar Kelly Osbourne, sem er
einmitt orðin grönn og glæsileg og Miley Cyrus,
barnastjarnan sem er við það að tryllast úr
kynþokkaþrá, eru hér í eins kjól. Kelly reynir
að gera kjólinn eitthvað „emo“ með því að
nota gaddabelti við hann en Miley gerir kjólinn
bara sætari með fallegu hálsmeni og fallegum
einföldum svörtum hælum.
Stjörnustríð
„Að dæma aðrar konur er slæmt fyrir
sálina.“ - Kim Kardashian.
Go
Blonde!
Ertu enn og aftur komin
með dökka rót? Hérna er
vandamálið leyst.
Nýja undravaran frá John
Frieda er sannkallað meist-
araverk. GoBlonder er fyrir
þær/þá sem vilja lýsa hárið
smám saman á sem eðlileg-
astan hátt. Stíllinn fékk að
prufa þessa snilldarvöru og
getur með sanni sagt að þetta
virkar. Nú þegar er GoBlonder
til í öllum verslunum sem
selja John Frieda vörur, t.d.
Hagkaup og Fjarðarkaup. „Ég
býst við því að þetta eigi eftir
að rokseljast og sérstaklega
núna þar sem sumarið er
vonandi að koma og við viljum
öll vera ljósari og ferskari að
sjá, sérstaklega undan vetri,“
segir Margrét Helgadóttir sölu-
og markaðsstjóri hjá John
Frieda umboðinu. En hvað ætli
hárgreiðslustofurnar segi?
„Ég tel að þær verði alls ekki
glaðar þar sem mikið hefur
dregist saman hjá þeim, en
málið er að á þessum tímum
eru rannsóknir og þróun
fyrirtækja orðin svo mikil að
það kemur að því að það komi
vörur sem eru ódýrari og henti
viðskiptavininum betur“.
GoBlonder virkar þannig að
spreyjað er í handklæðablautt
hárið og síðan blásið með
hárblásara, en efnið verður
virkt með hita. Það er enginn
vafi á að þú sérð mun á hárinu
þínu eftir 3-5 skipti. Eitt af því
mikilvægasta er þó að við-
skiptavinir John Frieda viti að
þetta er ekki fyrir brúnhærða
þar sem varan lýsir hárið.
1Hún Gemma Ward er einaf þeim allra vinsælustu.Hún er frá Ástralíu en býrí New York og er fædd 3.nóvember árið 1987. Nú
er Gemma hins vegar eitthvað að
leita á leiklistarmiðin.
„Ég spáði aldrei í því hvernig ég liti
út, mér var alveg sama“
2Freja Beha Erichsen erdönsk að uppruna. Húner fædd 18. október 1987og býr í New York. KarlLagerfeld elskar hana og
hefur notað hana mikið í auglýsing-
ar og fleira hjá sér.
„Ég vildi óska þess að ég væri betri í
að treysta fólki“
3Natasha Polevshchikovaer sæt og seiðandi, fæddog uppalin í Rússlandi.Hún er fædd 12. júlí árið1985 og eins og flestar
fyrirsætur, býr hún í New York.
„Ég hlusta á rússneska poppmúsík“
4Lara Stone er mjög eft-irsótt hollensk fyrirsæta.Hún er fædd 20. desem-ber 1983. Hún er líklegaþekktust fyrir sérstakt
útlit sitt og svakalegt frekjuskarð,
virkilega falleg.
„Ef ég hefði agann til að vera súper
mjó, myndi ég vera það. Ég hugsa um
að fara í megrun, en svo fæ ég mér
pizzu. Ég er kona, og allar konur langar
að vera súper mjóar – því miður“
5Breska fyrirsætan LilyDonaldson er sjóðandiheit. Hún er fædd 27.janúar árið 1988. Hún býrí London og hefur unnið
mikið fyrir Alber Elbaz.
„Já, að mörgu leyti líður mér eins og
ég hef verið 21 árs í nokkur ár“
Stíllinn kíkti aðeins á þessar ungu og upprennandi fyrir-
sætur sem eru með þeim vinsælustu um þessar mundir.
Flottustu
fyrirsæturnar
GEMMA WARD FREJA BEHA ERICHSEN
NATASHA POLEVSHCHIKOVA LARA STONE LILY DONALDSON