Monitor - 29.09.2011, Blaðsíða 18
Steldu
stílnum
18 Monitor FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2011
stíllinn
Jennifer Love-Hewitt vs. Blake Lively
Stjörnuleikkonurnar Blake Lively og Jennifer
Love-Hewitt er báðar glæsilegar í þessum Herve
Leger-kjól. Þó er það slúðurdrottningin sem ber
sigur úr býtum, og það fyrir litavalið. Hún mætti
reyndar velja sér aðra skó þegar hún skellir sér
í kjólinn næst. En engu að síður glæsileg.
Kim Kardashian vs. Kyra Sedgwick
Glamúrstjarnan Kim Kardashian fyllir
fullkomlega út í þennan svarta drungalega
kjól. Þrátt fyrir það er Stíllinn hrifnari af síðari
útgáfunni af kjólnum og einnig krulluðu ljósu
lokkunum hennar Kyru Sedgwick sem gerir
hana að verðskulduðum sigurvegara. Vel gert.
Selita Ebanks vs. Jessica Alba
Fegurðardísirnar Selita Ebanks og Jessica
Alba eru sjóðheitar í þessum eldrauða
síðkjól. Selita geislar af þokka, hún tekur
hárið fallega frá andlitinu og leyfir „one
sleef“-lúkkinu að njóta sín. Selita ber því
augljóslega sigur úr býtum.
Marie-Ange Casta vs. Kate Hudson
Þær Marie-Ange Casta og Kate Hudson klædd-
ust báðar þessum fallega svarta kjól fyrir
stuttu. En þrátt fyrir að þær líti báðar fáránlega
vel út, líkar Stílnum vel við breytinguna á
kjólnum hennar Kate. Hún fær því vinninginn
að þessu sinni.
Stjörnustríð
SKYRTA
TOP SHOP 12.990 KR.
VESKI
SIX 2.995 KR.
BUXUR
TOP SHOP 14.990 KR.
SKÓR
KAUPFÉLAGIÐ 10.995 KR.
The O.C.-stjarnan Rachel Bilson
gerir sjaldan mistök þegar kemur
að tísku og fatavali. Hér stillir
hún sér pent upp fyrir ljósmyndar-
ana enda gullfalleg stúlka í flott-
um fötum. Stíllinn fór og svipaðist
um eftir svipuðum flíkum.