Morgunblaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 3 0. A P R Í L 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 99. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is DAGLEGT LÍF»10-11 BLÓÐHEITA CARMEN ER VERÐANDI LÆKNIR FÓLK»42 HEIMILDARMYNDIR UM HREYFIÓÐA 6  Til að vernda grunnslóð hefur sjávarútvegsráð- herra kynnt til- lögur um bann við veiðum í dragnót í sjö fjörðum. Um er að ræða Önund- arfjörð, Hrúta- fjörð/Miðfjörð, Húnafjörð, Skagafjörð og Seyðis- fjörð/Loðmundarfjörð. Jón Bjarnason sjávarútvegsráð- herra segist hafa fengið fjölda af- dráttarlausra áskorana um aðgerð- ir sem þessar. Þær séu byggðar á vistfræðilegum rökum og séu í sam- ræmi við samstarfsyfirlýsingu rík- isstjórnarinnar. Víða erlendis sé í auknum mæli gripið til aðgerða sem þessara. »6 Takmarkanir á veiðum í dragnót í sjö fjörðum Jón Bjarnason  Hraun heldur áfram að renna til norðurs í upp- tökum Gígjökuls. Af gufu sem leggur upp af jöklinum ráða vísindamenn hjá Veðurstofu og Jarðvísinda- stofnun Háskóla Íslands að hraun- ið sé komið í hallann til norðurs. Kvikustreymi og gosmökkur er með svipuðum hætti og undanfarna daga. Ekki sjást merki um að gosi sé að ljúka. »2 og 9 Hraunið virðist vera komið í hallann á Gígjökli Eldur Svipaður kraftur er í gosinu.  Í yfirlýsingu sem Íslandsbanki sendi frá sér í gær vegna jarðar- innar Skáldabúða í Árnessýslu er því mótmælt að jörðin hafi ekki ver- ið auglýst. Hún hafi verið auglýst hjá Lögmönnum Suðurlands. Einn- ig leggur bankinn áherslu á að ábú- endum hafi verið gefinn kostur á að selja jörðina í frjálsri sölu. Unnið hafi verið með ábúendum í tvö ár og leitast við að afstýra gjaldþroti. Hefur bankinn farið þess á leit við eftirlitsnefnd, sem skipuð er af ráðherra efnahags- og viðskipta- mála, að hún fari yfir öll gögn og feril málsins. »4 Eftirlitsnefnd fari yfir sölu jarðarinnar Skáldabúða SAMANBURÐUR á trygginga- fræðilegri stöðu stærstu lífeyris- sjóða landsins sýnir að staða A- deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins er verst. 13,2% munur er á skuldbindingum og eignum deildar- innar. Staða annarra sjóða sýnir um eða innan við 10% neikvæðan mun. Sjóðirnir ætla flestir að minnka þennan mun með því að skerða rétt- indi. Maríanna Jónasdóttir, formaður stjórnar lífeyrissjóðsins, segir ekki ákveðið hvernig sjóðurinn bregðist við þessari stöðu, en samkvæmt lög- um á ríkið að hækka iðgjald ef munur er á eign- um og skuldbind- ingum umfram 15%. Á næsta ári má munur á eign- um og skuldbind- ingum ekki vera umfram 10%. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fara yfir lífeyrismál í heild sinni. Í hópnum verða fulltrúar opinbera og almenna lífeyriskerfis- ins. „Það skiptir máli að horfa yfir málið í heild og horfast í augu við hvað er í vændum hjá opinbera líf- eyrissjóðakerfinu og sambúð þess við almenna lífeyrissjóðakerfið,“ sagði Steingrímur í samtali við Morgunblaðið. Steingrímur minnti á að almennu lífeyrissjóðirnir hefðu fyrir hrun aukið réttindi sjóðsfélaga, en það hefði LSR ekki gert. Staðan núna hjá opinbera og almenna kerfinu væri því líkast til svipuð og hún var árið 2006. egol@mbl.is | 6 Fjármálaráðherra skipar starfshóp um lífeyrismál Staða A-deildar LSR verst Steingrímur J. Sigfússon „Ég heyri að þeir eru ekki sáttir og geri ráð fyrir því að tekist verði á um þetta mál fyrir dómi, ef þannig verkast vill,“ segir Árni Tómasson, formaður slita- stjórnar Glitnis, um þá kröfu Gildis lífeyrissjóðs að víkjandi kröfu hans á þrotabú Glitnis verði breytt í al- menna kröfu á þeirri forsendu að sjóðurinn hafi verið blekktur. Árni kveðst lítið geta tjáð sig um þetta mál. „Það eru ákveðin skjöl sem liggja þessari kröfu til grundvallar og virðist nokkuð ljóst samkvæmt þeim hvað þetta er. Hvað hefur verið sagt á fundum á árunum 2008 eða 2007 veit ég hins vegar ekki,“ segir hann. Fer fyrir dómstóla Árni Tómasson Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is STJÓRN Gildis lífeyrissjóðs telur að Glitnir hafi blekkt sjóðinn í útboði á víkjandi skuldabréfum bankans á árinu 2008. Stjórnin mun fara með málið fyrir dómstóla ef slitastjórnin samþykkir ekki að breyta kröfunni í almenna kröfu. Lífeyrissjóðir keyptu víkjandi skuldabréf í útboði Glitnis. Þannig keypti Gildi lífeyrissjóður bréf fyrir 3,7 milljarða króna. Almenni lífeyr- issjóðurinn hefur afskrifað að fullu 2,9 milljarða króna víkjandi lán til Glitnis. Líta má á víkjandi lán sem eins konar blöndu af skulda- og hluta- bréfi og gat Glitnir notað það til að hækka eigið fé sitt. Við gjaldþrot fara slíkar kröfur hins vegar aftur fyrir almennar kröfur. Stjórn Gildis lífeyrissjóðs hefur krafist þess að kröfunni verði breytt úr víkjandi í al- menna en slitastjórnin fer eftir orða- lagi skuldabréfanna og flokkar þau sem víkjandi kröfur. „Þegar okkur býðst í ársbyrjun 2008 að taka þátt í þessu útboði gerð- um við það í góðri trú,“ segir Vil- hjálmur Egilsson, formaður stjórnar Gildis lífeyrissjóðs. „Kjörin voru mjög góð, eða átta prósenta verð- tryggðir vextir. Allar upplýsingar sem við fengum, bæði opinberar upplýsingar og þær sem okkur voru afhentar á þessum tíma, sýndu fram á sterka eiginfjárstöðu Glitnis og gott tekjustreymi.“ Raunveruleg staða bankans var hins vegar öllu verri, eins og vitað er nú, og segir Vilhjálmur að þeir sem sjóðurinn átti samskipti við hjá Glitni hafi vitað eða hafi mátt vita hvernig málum var háttað hjá bank- anum. Sjóðurinn hafi með öðrum orðum verið blekktur.  Lífeyrissjóðurinn blekktur | 18 Telja sig hafa verið blekkta í útboðinu  Stjórn Gildis fer í mál við Glitni ef víkjandi kröfum verður ekki breytt » Víkjandi krafa Gildis nemur 3,7 milljörðum » Almenni lífeyrissjóð- urinn afskrifar 2,9 millj- arða víkjandi lán Glitnis SNÆFELL úr Stykkishólmi varð í gærkvöldi Íslandsmeistari í körfuknatt- leik karla í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þar með rauf félagið einokun liða frá Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, en ekkert landsbyggðarlið hefur landað þeim stóra áður. Fimmti úrslitaleikurinn gegn Keflavík var aldrei spennandi þar sem Snæfell hafði gríðarlega yfirburði. Lokatölur 105:69 og Snæfell vann samanlagt 3:2. Mikil hátíðarhöld voru fyrirhuguð í Stykkis- hólmi í nótt enda uppskeran ríkuleg á leiktíðinni: Bikar- og Íslandsmeist- aratitill. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, lyftir hér Íslandsmeist- arabikarnum á loft við mikinn fögnuð leikmanna. | Íþróttir Morgunblaðið/hag SÖGULEGUR ÁFANGI DAVID Cameron, leiðtogi Íhalds- flokksins í Bretlandi, er álitinn sigurvegari þriðju og síðustu sjón- varpskappræðna leiðtoga þriggja stærstu flokka landsins í gærkvöldi, samkvæmt tveimur skyndikönn- unum. 35-41% aðspurðra töldu Cameron hafa staðið sig best en 32-33% nefndu Nick Clegg, leiðtoga Frjáls- lyndra demókrata. Aðeins 25-26% töldu Gordon Brown standa sig bet- ur en keppinautarnir og honum tókst því ekki að vinna kjósendur á sitt band eftir klúður hans í fyrra- dag þegar hann var staðinn að því að baktala kjósanda. | 19 Cameron þótti bestur Lokalotan Frá þriðju sjónvarps- kappræðunum í gærkvöldi. Brown tókst ekki að snúa vörn í sókn Reuters

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.